09.04.1923
Efri deild: 35. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í B-deild Alþingistíðinda. (582)

24. mál, fjáraukalög 1922

Frsm. (Einar Árnason):

Jeg sje ekki ástæðu til að tala frekar um þetta mál nú, því jeg þarf engu að svara út af þeim umræðum, sem hjer hafa, orðið, því að þær hafa að mestu snúist um að skýra ýmsa liði í fjáraukalagafrv. Vænti jeg því, að háttv. deildarmönnum sjeu orðnir þeir fyllilega ljósir.

Ef brtt. á þskj. 291 verður samþykt. hlýtur fjárhæðin í 1. gr. að breytast. Verður því að líta svo á, að skrifstofan hafi heimild til að breyta henni samkvæmt atkvæðagreiðslunni.