07.04.1923
Neðri deild: 36. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 533 í B-deild Alþingistíðinda. (603)

1. mál, fjárlög 1924

Magnús Guðmundsson:

Jeg ætla mjer ekki að vera lengi í eldhúsinu að sinni, og geta því háttv. þm. verið óhræddir fyrir mjer; þeir munu fá að komast þar að, Það eru aðeins tvær fyrirspurnir, sem jeg ætla mjer að koma með til hæstv. stjórnar.

Fyrri spurningin er viðvíkjandi Eyrarbakkaspítala í Árnessýslu. Mjer er tjáð, að ekki muni verða lokið við að fullgera það hús í fyrirsjáanlegri framtíð og eigi heldur muni vera trygging fyrir, að það verði nokkurn tíma tekið til rekstrar sem sjúkrahús. Það mun vera búið að greiða úr ríkissjóði um 50 þús. krónur til þessa fyrirtækis, en mjer skilst svo, að í fjárlögunum sje þessi fjárveiting bundin því skilyrði, að húsið komist upp og í öðru lagi verði tekið til rekstrar.

Síðari spurning mín er um það, hvort greidd hafi verið til ríkissjóðs uppboðsskuld fyrir fisk, sem seldur var að tilhlutun útflutningsnefndar, að upphæð ca. 9–10 þús. kr., og ógreidd var síðast, þegar jeg vissi til, eða hvort nokkrar líkur væru til, að ekki fengist greidd.

Það eru þessi tvö atriði, sem mjer sjerstaklega er hugleikið að fá upplýsingar um hjá hæstv. stjórn.