07.04.1923
Neðri deild: 36. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í B-deild Alþingistíðinda. (606)
1. mál, fjárlög 1924
Pjetur Ottesen:
Hæstv. fjrh. (MagnJ) hefir svarað fyrirspurnum mínum, ef svar skyldi kalla. Að því er snertir fyrri spurninguna, um húsaleiguna, þá sagði hann, að nauðsynlegt hefði verið fyrir sig að leigja þetta herbergi, svo að hann gæti boðið þar inn gestum, sem erindi eiga við hann sem ráðherra. En nú vita allir, að hver ráðherranna fyrir sig hefir herbergi eða skrifstofu í stjórnarráðshúsinu, sem þeir veita þeim mönnum viðtal í, er erindi eiga við stjórnina; það er því orðin og á að vera föst venja, að ráðherrarnir sjeu þar til viðtals við menn, er þurfa að reka erindi sín við þá, enda miklu hagkvæmara á allan hátt fyrir almenning, að geta snúið sjer þar til ráðherranna en að þurfa að vera að elta þá út um allan bæ.
Það er í alla staði gersamlega óheimilt hæstv. fjármálaráðherra að greiða úr ríkissjóði umgetna húsaleigu, þó undir þessu yfirskyni sje; það er öllum vitanlegt, að hjer er um hans privat herbergi eða íbúð að ræða og ekkert annað. Aðrir ráðherranna en hv. forsrh. hafa engan rjett til húsnæðis á ríkiskostnað fyrir sig eða sína, framar því sem þeir vitanlega gegna embættisskyldu sinni í stjórnarráðshúsinu. Þarna hefir því hæstv. fjrh. (MagnJ) gengið inn á alveg nýja og hjer áður óþekta braut, og vil jeg ekki láta það óvítt. Það er aðferðin, sem hæstv. fjármálaráðherra hefir hjer viðhaft, að taka þannig fje ríkissjóðs úr eigin hendi og verja til sinna þarfa, sem fyrst og fremst þarf að víta, og það svo, að slíkt komi ekki aftur fyrir; og ef ávítanir einar duga ekki í því efni, þá getur orðið þörf að grípa til kröftugri ráða.
Það þarf líka að gjalda varhuga við, að hver ráðherra, ef fleiri verða en einn í framtíðinni. geti ekki smátt og smátt komið því svo fyrir að láta ríkið borga íbúð sína, uns þeir að lokum hafa allir ókeypis húsnæði. Tel jeg að koma beri í veg fyrir þetta strax í byrjun og láta slíkt ekki viðgangast átölulaust.
Hvað viðvíkur ábyrgðinni. þá er það nú víst orðin æðimikil fúlga, sem ríkið hefir tekið ábyrgð á fyrir Reykjavíkurbæ. Skiftir það víst nokkrum miljónum nú orðið. Hæstv. fjrh. (MagnJ) bar það fram stjórninni til afsökunar, að fordæmi væri fyrir því. Það er að vísu rjett, að ríkið hefir áður gengið í ábyrgð fyrir bæinn. En það er ekkert fordæmi fyrir því, ekki eitt einasta, að slíkt hafi verið gert í algerðu heimildarleysi, eins og nú, í hið eina skifti áður, sem ekki var bein lagaheimild fyrir ábyrgð, þ. e. þegar rafveitulánið var tekið, leitaði þáverandi stjórn símleiðis álits þingmanna áður en ábyrgðin var látin í tje, og fjekk á þann hátt fulla trygging fyrir því, að ábyrgðin yrði formlega samþykt eftir á. Það er því þýðingarlaust að vitna til fordæmis fyrir slíkri aðferð sem þessari. Það er ekki til. Þetta er alveg ný aðferð, að ganga þannig í ábyrgð án heimildar þingsins. Í þessu lýsir sjer svo mikið kæruleysi og virðingarleysi gagnvart þinginu, að slíkt á ekki og má ekki koma fyrir.
Í sambandi við þessa hálfrar miljónar króna ábyrgð vil jeg geta þess, að jeg hefi heyrt, að hæstv. stjórn hafi gert það að skilyrði fyrir ábyrgðinni, að hún fengi 350 þúsundir af láninu í dönskum krónum í Kaupmannahöfn, sem hún síðan hafi notað til sinna þarfa. Hjer virðist því hafa verið um nokkurskonar verslun að ræða milli ríkisstjórnarinnar og Reykjavíkurbæjar, og er það út af fyrir sig dálítið óviðfeldið. Hæstv. fjrh. (MagnJ) hefir orðið að viðurkenna rjettmæti ásakana minna á hann út af þessum atriðum, og má því alls ekki niður falla, að gangskör verði gerð að því að ráða bót á þessu.