07.04.1923
Neðri deild: 36. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í B-deild Alþingistíðinda. (610)
1. mál, fjárlög 1924
Forsætisráðherra (SE):
Að því er snertir ábyrgðina fyrir Reykjavíkurbæ, þá er það mitt álit, að hjá því hafi ekki verið hægt að komast, en jeg vona, að hæstv. fjrh. (MagnJ) leiti síðar samþykkis þingsins viðvíkjandi því. Um húsaleiguna hefi jeg ekkert vitað fyr en nú.
Þá kem jeg að spítalamálinu á Eyrarbakka. Veit jeg ekki, hvort jeg get nú gefið fullnægjandi upplýsingar, eða eins nákvæmar og jeg vildi, en áskil mjer rjett til að gera það síðar.
Þetta er orðið mesta vandræðamál. Byrjaði með því, að menn fyrir austan byrjaði með á að gangast fyrir byggingu spítala. Landlæknir mælir með því, og vil jeg með leyfi hæstv. forseta lesa upp kafla úr brjefi hans:
„Og verð jeg að segja, að þar er í smíðum eitt allravandaðasta sjúkrahúsið hjer á landi, og legg jeg eindregið til, að hið háa dómsmálaráðuneyti fallist á og samþykki gerð hússins, sem er hálfsmíðað.“
Það hefir staðið í miklu stappi um málið milli spítalanefndar og stjórnarinnar. Stjórnin hjelt því fast fram, að hún myndi ekki greiða af höndum fjárupphæðina fyr en skilyrðum fjárlaganna væri fullnægt. Í vetur kom málaleitun frá spítalanefnd, þar sem sýnt var fram á, hve miklu fje hefði þegar verið varið til spítalans, og farið fram á, að stjórnin greiddi þessar 80000 krónur, sem heimilaðar eru í fjárlögunum fyrir 1922. Nú hafði stjórnin altaf talið undirskilið, að sýslunefndin í Árnessýslu, legði fram 40000 krónur á móti tillögunni úr ríkissjóði. Spurðist stjórnin því fyrir um, hvort fje þetta hefði verið greitt, eða hve nær ætti að greiða það, en svör sýslunefndaroddvita voru ekki svo skýr, að neitt ákvæðið yrði ráðið af þeim. En til þess að bæta úr brýnustu vandræðunum greiddi stjórnin 50000 kr. á móti því, sem einstakir menn höfðu þegar lagt fram. Standa því eftir 30000 kr., er spítalanefndin leggur ríka áherslu á, að greiddar verði nú þegar. Byggir hún það á því, að stjórnin hafði sent skeyti og lofað að greiða fjeð, þegar skilyrðum fjárlaganna væri fullnægt. Í þessu skeyti var ekki tekið fram, að nægilegt fje yrði að vera fyrir hendi til þess að fullgera spítalann, en það þótti stjórninni svo sjálfsagt atriði, að ekki þyrfti að taka það fram. En nú neitaði stjórnin að greiða þessar 30000 kr., sem eftir standa, fyr en sýslan hefir greitt þær 40000 kr., sem um var talað, enda hefir sýslunefndin lofað að leggja það fje fram, eftir skýrslu, sem stjórnin hefir fengið frá spítalanefndinni. Þar segir svo: „Samkvæmt ályktun aðalfundar sýslunefndar Árnessýslu 1920 er heitið styrk úr sýslusjóði, helmingi á móti ríkissjóðsstyrk, til þess að koma upp spítala á Eyrarbakka. Er sú upphæð nú kr. 40000 og stendur sú ályktun sýslunefndarinnar óhögguð. Þetta lofaða fje hefir spítalanefndin upp á að hlaupa við framhaldsbyggingu spítalans“,
Stendur nú í þessu stappi, að sýslunefndin hefir ekki greitt fjeð og ekki heldur gefið nein ákveðin loforð um greiðslu, og vill stjórnin því ekki inna af höndum eftirstöðvarnar af fjárveitingunni. Verði spítalanum ekki haldið áfram, verður að reyna að krefjast endurgreiðslu á þessum 50000 kr. Annars álít jeg, að málið sje komið svo langt, sjerstaklega þar sem sýslunefndin í Árnessýslu hefir leyft Eyrarbakkahreppi að taka að sjer rekstur sjúkrahússins, að hún muni tæplega geta dregið sig í hlje, heldur muni hún greiða þessar 40000 kr. Að öðrum kosti mun stjórnin ekki greiða þær 30000 kr. sem eftir standa. nema þingið skipi svo fyrir.
Annars er jeg fús á að rannsaka mál þetta betur og gefa nánari skýrslu, ef þess yrði óskað og tækifæri gefst síðar.