07.04.1923
Neðri deild: 36. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (630)

1. mál, fjárlög 1924

Bjarni Jónsson:

Jeg hefi lagt hlustirnar við því, meðal annars. er háttv. 2. þm. Skagf. (JS) mælti í garð hæstv. atvinnumálaráðherra (KIJ) um það, að sá hinn sami hafi gert sig sekan í glópsku þeirri að ákveða að leggja síma að Staðarfelli. Þetta hlýtur að vera mjög góð stjórn, þegar hún er ásökuð fyrir það að hafa nú framkvæmt 8 ára gamalt loforð þings og stjórnar. Ef einhver kynni að efast um, að það sje rjett, sem jeg segi, skal hann snúa sjer til landssímastjórans, Forbergs, er veit alt hið sanna um þetta mál og mun staðfesta mína frásögn. 1914 bar jeg fram á þingi frv. um, að sími yrði lagður frá Búðardal að Tjaldanesi, yfir Staðarfell og Skarð. Skal jeg ekki rekja það nánar, hvar jeg hugsaði mjer, að síminn skyldi liggja, en menn geta sjeð það á uppdrætti, sem prentaður er í þingtíðindum þess árs og Forberg ljet gera yfir þessa hluti. Hann vildi ekki fallast á að láta símann fara þessa leið, þar eð koparþráður sá, sem ætlaður var til hans, var 3,3 mm. að þvermáli, og yrði því of dýr. En í þess stað lofaði hann þá að leggja aukalínu út að Staðarfelli, en Skarðslínuna vildi hann eigi fallast á. Mig undrar eigi, þótt sýslumaður Dalamanna hafi fengið góðar undirtektir hjá Pjetri sál. Jónssyni, því að hann var einn af fleiri í símanefndinni 1914, og vissi því vel um hið gefna loforð. Einnig var því lofað, að símalína þessi skyldi lögð 1916. Á þessum loforðum hefi svo jeg og Dalamenn verið dregnir í 6 ár, uns atvinnumálaráðherra lætur kaupa í fyrra sumar efni til símans, og hefst þannig fyrstur handa til að efna hið marggefna loforð. (JS: Það loforð hefir verið gefið á bak við tjöldin). Bak við hvaða tjöld? Það ei á allra vitorði, þeirra er málið þekkja, að hætv. atvrh. (KIJ) ríður hjer fyrstur á vaðið til að uppfylla gamalt þingloforð. Hann á síst skilið ákúrur fyrir það, heldur þakklæti fyrir að hafa bætt afbrot undanfarinna stjórnarvalda. Hitt væri hægt að átelja fyrir, sem sje hinn mikla drátt, sem orðið hefir á framkvæmdunum.