07.04.1923
Neðri deild: 36. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 591 í B-deild Alþingistíðinda. (634)
1. mál, fjárlög 1924
Forsætisráðherra (SE):
Háttv. 4. þm Reykv. (MJ) hefir ekki fundist loga nógu bjart í eldhúsinu, og hefir því viljað auka eldana að Aðilshöllu, og skal jeg ekkert kvarta undan því.
Um hið svonefnda Ólafsmál hefir verið reistur stormur gegn mjer um alt land. Á undan storminum, meðan á honum stóð og eftir hann hefi jeg nákvæmilega hugsað um það, sem jeg gerði, og jeg hefi ávalt betur og betur sannfærst um, að jeg hafi gert rjett.
Jeg hefi ekki enn sagt eitt orð um þetta mál. enda þótt árásirnar hafi dunið yfir mig landshornanna á milli. Jeg þagði, og þó hafði jeg nóg að segja. En jeg hjelt, að þögnin væri þessu máli best, bæði út á við og inn á við. Og enn mundi jeg hafa þagað, ef jeg hefði ekki verið nú knúður til að taka til máls. Jeg skal byrja á því að rifja upp gang máls þessa í stórum dráttum.
Eins og kunnugt er, tók Ólafur Friðriksson dreng að sjer í Rússlandi og kom með hann hingað. Jeg hygg, að hann hafi tekið þennan dreng í góðgerðaskyni; viljað hrífa hann úr rússnesku eymdinni og ganga honum í föðurstað. En svo vildi svo hörmulega til, að þessi drengur reyndist hafa augnsjúkdóm — trachoma. — sjúkdóm, sem var óþektur hjer áður og er hættulegur. Stjórnin ákvað því, eftir samráði við lækna, að vísa drengnum úr landi. Þetta var heilbrigðisráðstöfun. En í stað þess að beygja sig fyrir þessu, tók Ólafur til þess óyndisúrræðis að veita mótspyrnu og halda drengnum með valdi. Þá skeði það, að lögreglustjórinn hjer fór með lögregluna á heimili Ólafs til að taka drenginn. Lítilfjörleg mótstaða var veitt og endalokin urðu þó, að Ólafur hjelt drengnum. Var ekki hægt að dylja það, að framkoma lögreglustjóra var ærið óheppileg. Í stað þess að taka Ólaf og ganga einarðlega fram, yfirgaf hann vígvöllinn alt of fljótt.
Næsti þáttur þessa máls var sá, að Ólafur sat í húsi sínu og hafði drenginn hjá sjer og hafði vörð um sig. En nú var liði safnað í bænum, það búið sem best að vopnum, sem föng voru á. Sjúkrahús var innrjettað til að leggja þá særðu inn í og dauðu, ef svo skyldi verkast, og eftir þennan mikla undirbúning var svo haldið á sólríkum, björtum degi heim að húsi Ólafs og það umkringt. Nýi lögreglustjórinn gengur svo djarfmannlega að húsinu með brugðnu sverði og heimtar það opnað í kóngsins og laganna nafni. Með lítilli fyrirhöfn var svo komist inn í húsið. Og sjá — þar inni situr Ólafur Friðriksson, vafalaust þreyttur og úrvinda af svefni og æsingu undanfarinna daga. Með honum var kona hans og nokkrir menn aðrir. Hann er umsvifalaust tekinn, handfjötur er settur á hann og honum tafarlaust ekið í fangelsið ásamt konunni og fylgismönnum hans. Bærinn er settur í nokkurskonar herhald, bíóum og öðrum opinberum skemtistöðum er lokað um kvöldið, og ýmsir menn voru handteknir og sumir lítt sekir. — Þetta er annar þátturinn.
Svo hefst sá þriðji. — Ólafur situr í gæsluvarðhaldinu og sveltir sig þar í 10 daga. Dómur er feldur yfir honum í undirrjetti og síðan í hæstarjetti. Og svo skeður það, að jeg legg það til við konunginn, að Ólafur verði náðaður skilyrðisbundið, — hegningin falli niður, ef hann hagar sjer vel næstu 5 árin, — og hans hátign konungurinn verður við þessari bæn minni. Og það er þetta, sem valdið hefir storminum gegn mjer.
Skulu nú athugaðir allir málavextir.
Fyrsta spurningin er nú, hvort stjórnin hafi brotið landslögin með þessari náðun. Ef svo hefði verið, þá er það altaf allalvarlegt atriði. Jeg held, að enginn hafi haldið því fram, að stjórnin hafi brotið stjórnarskrána eða önnur lög með náðuninni, enda er rjetturinn til náðunar tekinn svo ótvírætt fram í stjórnarskránni. Þá hefir verið fundið að því, að Ólafur hafi ekki sjálfur beðið um náðun, heldur aðrir fyrir hann. Jeg játa, að jeg hefi ekki rannsakað svo náðunar-„praksis“ annara landa, að jeg þori að segja, hver regla er í þessu, en jeg fæ ekki sjeð, að neitt sje því til fyrirstöðu, að aðrir en sökunauturinn biðji um náðunina. Margir vinir þessa manns báðu um náðunina og mikill hluti alþýðu þessa bæjar stóð þar að. Og mennirnir, sem báðu um hana, trúðu því einlæglega, að með þessu móti væri málinu best borgið, því að ella mundi kvikna eldur í hugum manna, sem lengi mundi brenna.
En hvernig var nú sú alþýða, sem bað um þessa náðun?
Það var sama alþýðan, sem á stríðsárunum sýndi hina mestu stillingu og siðprýði, þegar alt logaði í uppþotum úti um heiminn. Það var svona skapi farin alþýða, sem bað fyrir Ólaf. Og er ekki örðugt að loka eyrunum fyrir bænum slíkrar alþýðu, sem maður hlýtur að vera stoltur af á þessum óróatímum.?
Og það voru fleiri en þessir menn, er mæltust til, að Ólafur væri náðaður, og það sumir, er á eftir bljesu mest að eldinum.
Þá hefir það verið ein ásökunin, að hæstirjettur hafi ekki verið spurður um, hvort skyldi náða. En ætli nokkur hafi athugað það, að fyrverandi stjórn spurði heldur ekki hæstarjett, þegar hún náðaði. Og þó náðaði hún, eða lagði til náðun við konung, fyrir einhvern þann ógeðslegasta glæp, að bora göt á skip og setja þar með mörg mannslíf í voða. Þá æpti enginn, þegar fyrir þetta var náðað án þess að spyrja hæstarjett. Og ef litið er á náðunar-„praksis hjer, sjest það, að stundum hafa dómstólarnir verið spurðir áður en náðað hefir verið, stundum hafa þeir alls ekki verið spurðir, og komið hefir fyrir, að náðað hefir verið gegn tillögum þeirra. Hjer hefir því engin venja eða „praksis“ verið brotin, þótt hæstirjettur væri ekki spurður. En satt er það, rangt gat verið að náða, þótt engin lög eða venja hefði verið brotin. Og hjer vaknar þá sú spurning: Hví lagði stjórnin til, að náðað yrði. Áður en þeirri spurningu er svarað, er rjett að athuga eðli þess brots, sem náðað var fyrir, hvort það hafi borið vott um sjerstaklega glæpsamlegt hugar far eða ekki. Jeg játa, að brotið, sem drýgt var, er mjög alvarlegt, en jeg neita, að það sje þess eðlis, að það beri vott um glæpsamlegt hugarfar.
Það, sem dró Ólaf Friðriksson til mótþróans gegn lögreglunni, var áreiðanlega tilfinningin fyrir munaðarleysingjanum, sem hann dró úr þeirri rússnesku eymd. Hann var nýbyrjaður að njóta föðurgleðinnar, en svo kom óhamingjan. Auðvitað átti hann að hlýða lögunum; allir eiga að hlýða lögunum. En Ólafur Friðriksson er óneitanlega hugsjónamaður, og að sumu leyti með „forskrúfaðar“ hug sjónir, og því greip hann til þess óyndis úrræðis, sem enginn borgari má grípa til, að óhlýðnast lögreglunni. En jeg spyr nú, þar sem drögin að hinni þungu sök Ólafs Friðrikssonar voru þessi: Var það þá nauðsynlegt og var það rjett að hrinda honum niður fyrir svarta bakkann ? Og eru ekki einmitt þau brot, sem runnin eru af því hugarfari, sem jeg hefi greint hjer að framan, einmitt þau brot, sem sjerstök ástæða er að náða fyrir? Sú er og var skoðun mín. Jeg trúi ekki á svartholið. Ekki í sök eins og þeirri, sem hjer er að ræða um, að minsta kosti. Jeg tek alla ábyrgð á mig óhræddur af þessu máli.
Jeg skal játa, að það var vont, að Ólafur Friðriksson skyldi ferðast um landið með æsinguni, áður en málinu var ráðið til lykta, og að hann skyldi viðhafa þau óviðurkvæmilegu orð um hæstarjett, sem hann gerði, en jeg var þá fjarverandi og vissi ekki um þetta. En jeg mótmæli því harðlega, að jeg eða stjórnin hafi viljað með náðuninni móðga hæstarjett eða gera lítið úr honum. Hvernig hefði mjer átt að koma slíkt til hugar? Jeg, sem var einn af aðalhvatamönnum þess, að hæstirjettur var fluttur heim. Jeg, sem hefi altaf borið virðingu fyrir þessum háa rjetti. Jeg, sem á þar tengdaföður minn fyrir dómsforseta, mann, sem jeg hefi altaf borið mjög óskorað traust til. Hvílík fjarstæða er það, að láta sjer detta í hug, að jeg hafi viljað rýra álit þessa virðulega rjettar. Eða hvernig er það móðgun við rjettinn, þótt miður sje náðaður, sem rjetturinn hefir dæmt. Þó náðunin hefði verið órjettmæt, þá gat hún aldrei rýrt álit rjettarins hún gat þá aldrei rýrt álit annara en stjórnarinnar. Með náðuninni er engin afstaða tekin til þess, hvernig dómurinn er. Og aldrei hefir stjórninni dottið í hug að draga í vafa, að dómur hins háa rjettar í þessu máli væri fullkomlega í samræmi vi lögin.
Þá hefir það verið átalið í blöðunum, og kom einnig fram hjá háttv. 4. þm. Reykv. (MJ) að dómurinn hefði verið sendur bæjarfógeta til fullnægingar, en svo hefði stjórnin látið sækja hann. Það er rjett, að jeg skipaði að sækja dóminn, því að hann var sendur til bæjarfógeta án þess jeg vissi af. Varla verður dómsmálaráðherra víttur fyrir það, þó hann í máli eins og þessu vilji sjá dóminn áður en hann er sendur til fullnægingar. Hvílík fásinna að átelja mig fyrir það, sem var vanræksla, ef jeg hefði ekki gert það.
Þá hefir því verið haldið fram, að jeg hafi gert þetta til að afla mjer fylgis. Jeg mótmæli þessu harðlega. Jeg mótmæli því, að þetta hafi nokkurn tíma komið í huga mjer, svo mikil fjarstæða er það. Enda sjá allir, hver afstaða þm. þessa flokks er til mín hjer í þinginu. Hann er í beinni andstöðu við mig.
Jeg hefi ekki beðið um fylgi fyrir aðgerðir mínar í þessu máli, og mjer hefir aldrei komið það til hugar. Ekkert mál sem þetta hefir valdið mjer jafnmikilli áhyggju, og um ekkert mál hefi jeg betur hugsað. Jeg get líka glatt mig við það, að endalok málsins hafa orðið þau bestu, sem unt var: Friður er orðinn hjá þjóðinni um málið, og þess eðlis var það bæði út á við og inn á við, að þetta var hið besta. Eða trúa háttv. þm. því, eða nokkur annar, að betra hefði verið, að refsivöndur laganna hefði hitt þennan mann harðara en orðið var? Það skiftir litlu, þótt þjóðin eða einstakir menn hafi reist storm gegn mjer út af þessu; hitt skiftir meiru, ef endalok þessa máls hafa orðið þau bestu, sem völ var á, og jeg sannfærist altaf betur og betur um, að svo hafi verið. Ekki alls fyrir löngu skrifaði góður vinur minn í Danmörku, einn af þeirra bestu lögfræðingum, mjer, að hann skildi ekki annað en að þá storma, sem risið hefðu gegn mjer út af náðun Ólafs Friðrikssonar, mundi fljótt lægja, því sú hugsun væri nú að verða ríkjandi hjá siðuðum þjóðum, að það væri ekki það eftirsóknarverðasta eða heppilegasta að svala sjer í hefndinni, ef hægt væri að fá sömu niðurstöðu með öðru móti. Ýmsir ágætismenn hjer, sem hafa sagt mjer, að þeir hafi í byrjun staðið á öndverðum meiði við mig í þessu máli, hafa viðurkent við mig, að þeir haldi, að það, sem jeg hafi gert, hafi verið það rjetta. Og stundum er það svo, að einmitt þegar maður þorir að gera það rjetta, þá blæs stormurinn harðast, en sjaldan nema litla stund. Skal jeg svo láta útrætt um þetta.
Hv. 4. þm. Reykv. (MJ) spurði, hvernig á því stæði, að þessi nefnd við Landsbókasafnið hefði ekki verið skipuð. Þar er því að svara, að jeg hafði ekki veitt því eftirtekt, að lögunum var ekki fullnægt í þessu efni, en sjálfsagt er að kippa þessu máli hið fyrsta í lag.
Þá var það viðvíkjandi kenslunni í lagadeild háskólans: þykir mjer líklegast, að þessi fyrirspurn sje borin fram eftir ósk lagadeildarinnar. Jeg sje, að þingmaðurinn mótmælir ekki, og jeg tel því þessa ályktun mína rjetta. Fyrst verð jeg að víkja lítið eitt að sögu þessa máls.
Jeg hefði tekið það fram áður hjer í þinginu, að jeg teldi óheppilegt, að hæstarjettardómarar hefðu kenslustörf á hendi og hafði látið í veðri vaka við hr. Magnús Guðmundsson. 1. þm. Skagf., að jeg mundi setja hann í þessa stöðu, ef lagadeildin væri því meðmælt. En í stað þess að mæla með M. G. óskaði lagadeildin einróma, að L. H. Bjarnason hæstarjettardómari hefði kensluna áfram. En þegar hæstarjettardómarinn kom aftur heim frá útlöndum, vildi hann ekki taka að sjer nema hálfa kensluna, og vildi lagadeildin fela herra Magnúsi Guðmundssyni hinn helming kenslunnar. Spurði jeg þá Magnús Guðmundsson að því, hvort hann vildi taka á móti setningu í stöðuna, því mjer fanst þá rjettast, að hann hefði það þá alt á hendi, en hann neitaði því. (MG: Það var ekki fyr en í október í haust, sem jeg var að þessu spurður). Síðan tóku þeir að sjer kensluna Lárus H. Bjarnason og Einar prófessor Arnórsson, og hafa gegnt henni þangað til þeir nú hafa sagt henni af sjer frá 1. þessa mánaðar. Jeg hefi nú síðan boðið mjög góðum manni setningu í stöðuna, en hann neitaði. Fjármálaráðherra hefir lofað mjer að tala við fyrri embættisbræður sína í lagadeildinni um að taka við kenslunni til bráðabirgða, og veit jeg ekki, hverju þeir hafa svarað. En fáist enginn til að gegna starfinu, þá verð jeg auðvitað að halda því fast að prófessorunum við lagadeildina, að þeir skifti kenslunni á milli sín í bili. Besti maður í starfið er auðvitað hæstarjettardómari Lárus H. Bjarnason, en jeg sje mjer ekki fært, vegna hæstarjettar, að halda því fast að honum að hafa kensluna áfram.