09.04.1923
Neðri deild: 37. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í B-deild Alþingistíðinda. (644)

1. mál, fjárlög 1924

Bjarni Jónsson:

Háttv. 4. þm. Reykv. (MJ) var að amast við tillögu fjárveitinganefndarinnar og skaut því að háttv. frsm. (MP), hvort hann talaði fyrir hönd allrar nefndarinnar. Jeg tek það fram nú, að þá talaði hann fyrir mína hönd og að jeg er staðráðinn í því að greiða atkvæði á móti frv. háttv. 4. þm. Reykv. (MJ). Þó að það sje vitanlega lærdómur mikill í því fólginn að láta ekki vín upp í sig, er sá lærdómur þó fulldýru verði keyptur með þessu, þar sem menn þó mundu geta hitt á lagið, ef þeir vildu láta vera að bragða það. Þá er fram komið frv. eitt í hv. Ed. um svipað efni, er jeg vildi heldur styrkja, enda þótt það sje auðvitað dauðadómur yfir sjálfum mjer. Allir vita, hversu jeg hefi viljað styrkja vísindin og listirnar — en nú á að fara að menta menn með víninu, og vil jeg því heldur hallast á sveif með þessu frv. í Ed., er veitir 1000000 kr. á ári til lista og vísinda. En vjer sjáum nú, hvernig fer, þegar það kemur hjer fyrir þessa deild. Ef svo færi nú, að þessi ágóði af víninu næmi sem svaraði einni miljón, þá munu menn vart fara að hneykslast á mínum litlu upphæðum, sem jeg hefi viljað láta veita til þessara mála. En þetta frv. er ekki talið eyðslusemi, enda vil jeg fylgja því fram til sigurs, og þætti mjer þá þessu fje vel varið.