10.04.1923
Neðri deild: 38. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 692 í B-deild Alþingistíðinda. (669)
1. mál, fjárlög 1924
Forsætisráðherra (SE):
Mjer þótti það undarlegt hjá háttv. 1. þm. Skagf. (MG) að líkja skrifstofum sýslumanna við einkaskrifstofur prófessora og annara embættismanna. Þetta nær vitanlega engri átt. Sýslumenn þurfa stöðugt að taka á móti fjölda manna og afgreiða þá; hjá þeim er eilíf ös, og þess vegna er óhugsandi, að skrifstofan geti verið eitt herbergi af íbúð þeirra. Ef þessi nýja kenning háttv. þm. (MG) yrði viðurkend, þá yrði að sjálfsögðu að láta ganga eitt yfir alla og láta það sama gilda um embættisskrifstofur hjer í Reykjavík. Og einmitt þetta veldur óánægju sýslumanna, að hjer fá embættismennirnir allan sinn skrifstofukostnað greiddan, en þeir verða að greiða nokkuð úr eigin vasa. Háttv. þm. (MG) leggur mikið kapp á að sýna fram á, að þessi kostnaður sje of mikill hjá stjórninni, en þó hann grípi til þess örþrifaráðs að telja skrifstofumar einkaherbergi og draga þá upphæð frá, þá verður áætlun hans samt of lág. Jeg get bent á sýslumanninn í Snæfellsnessýslu, sem allir viðurkenna, að sje sjerstakur sparnaðarmaður. Þó að skrifstofuleigan sje dregin frá, þá vantar hann samt 400–500 kr. á það, sem hann fær frá stjórninni, til þess að fá allan kostnað sinn greiddan.
Þá verð jeg að telja það hreina fjarstæðu, að þingaferðir kosti ekki neitt. Jeg veit það, að aldrei hafði jeg ráð á að kaupa mjer hesta, þegar jeg var sýslumaður í Borgarfjarðarsýslu; varð altaf að leigja hesta, og jeg er viss um, að það var ódýrara fyrir mig heldur en að eiga þá. Jeg held það sje óþarfi að eyða fleirum orðum að því en gert hefir verið, að kostnaður við embættisrekstur sýslumanna er mjög gætilega ákveðinn.