10.04.1923
Neðri deild: 38. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 705 í B-deild Alþingistíðinda. (675)
1. mál, fjárlög 1924
Magnús Guðmundsson:
Jeg get verið skammorður. Hæstv. forsætisráðherra sagði, að ef skilningur minn á launalögunum væri rjettur, myndi af því spretta óánægja meðal sýslumanna úti um land. er þeir bæru kjör sín saman við embætti í Reykjavík. Jeg skal ekkert um það segja. En það er alkunna, að dýrara er að lifa hjer en annarsstaðar á landinu, enda ber frv. það er kom fram hjer í deildinni um daginn, vott um það. Aðalatriðið stendur óhaggað, sem sje, að flestir embættismenn hjer þurfa að hafa að minsta kosti eitt herbergi út af fyrir sig. Um hestahald sýslumanna get jeg ekki verið á sama máli, eftir minni reynslu. Það er vitaskuld ekki hægt að gera ráð fyrir öðru en að sýslumaðurinn verði að leigja sjer hest fyrir borgun, ef hann á engan sjálfur. En jeg held því fram, að það borgi sig fyrir sýslumenn að eiga hesta sjálfir, og því sje sjálfsagt fyrir þá að gera það. Allir vita, að ferðalög sýslumanna í embættiserindum geta verið mjög mikil. Þeir fá borgun fyrir hesta til þeirra ferða, og við það fæst fóðurkostnaður hestanna. Það tjáir ekki að mótmæla því, að flestir embættismenn verða að hafa vinnuherbergi fyrir sig, án þess að fá sjerstaka borgun, og jeg sje ekki, að sýslumenn eigi fremur kröfu á borgun fyrir það embætti en aðrir, og ákvæði launalaganna eru ekki þessum skilningi til fyrirstöðu.