11.04.1923
Neðri deild: 39. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í B-deild Alþingistíðinda. (694)

1. mál, fjárlög 1924

Forsætisráðherra (SE):

Jeg heyri sagt, að háttv. frsm. (MP) hafi verið að víta stjórnina fyrir það, að hún hafi ekki verið viðstödd umr. hjer. Mjer þykir hart, að hann skuli ætla að fara að gera sig að siðameistara hjer, einkum þar sem það í þessu tilfelli var skylda mín að sitja í hv. Ed., þar sem jeg átti málum að svara og atkvæði að gegna. Jeg verð því að átelja þetta og skoða það vott um skort á almennri kurteisi. En annars hefi jeg hlustað á allan þann vísdóm, sem dropið hefir af vörum þessa hv. þm. í framsögu hans í fjárlögunum, og eftir því, sem á undan er farið, hygg jeg, að jeg hafi nú engu glatað, þó jeg væri ekki viðstaddur, vegna anna þeirra, er jeg gat um áðan.

Jeg vík nú að nokkrum atriðum í ræðu háttv. framsögumanns.

Hann gat ekki rökstutt það, að þörf væri á því að hækka laun forstöðumanns yfirsetukvennaskólans, og get jeg í því efni vísað til fyrri ummæla minna, að því viðbættu, að vel má vera, að rjett sje á sínum tíma, eins og jeg hefi vikið að áður, að leggja þessa kenslu undir háskólann, og verði hún þá að felast í embættisstarfi einhvers háskólakennarans, en ekki greiða neitt sjerstaklega fyrir það verk.

Um þóknunina til Jóns Hjaltalíns Sigurðssonar hjeraðslæknis, fyrir háskólakensluna, get jeg sagt það eitt, að það undrar mig, að henni skuli vera mótmælt. Honum ber engin embættisskylda til þess að annast þessa kenslu, en kensla hans er hins vegar mjög mikils virði fyrir háskólann, og er hann þar eiginlega ómissandi maður nú og vinnur sjer meira og meira traust. Jeg álít, að það geti ekki komið til mála að fella þessa fjárveitingu.

Að því er snertir brtt. 56 við 14. gr., um alþýðuskóla í Þingeyjarsýslu, skildi jeg svo háttv. frsm., að hann vildi slá því „principi“ föstu, að veitt yrði til þessara skóla 2/5 hlutar kostnaðar. Nú vil jeg spyrja: Hefir háttv. fjvn. gert sjer grein fyrir því, hvað mörg skólahús á að reisa og hvar þau eiga að vera? Og á að skilja það sem tilboð frá hv. fjvn., að hún vilji leggja til 2/5 hluta kostnaðar til þessara bygginga? Eftir orðum hv. frsm. var helst hægt að skilja þetta svo. Annars skal jeg taka það fram afdráttarlaust, að jeg fellst ekki á þessa aðvörun hv. frsm. við því að veita fje til barnaskólabygginga. Jeg skil og ekki, hversu kalt andar úr þessari átt til barnafræðslunnar. Held jeg, að það rjettasta væri að ætla vissa upphæð til barnaskólabygginga, sem stjórninni væri falið að ráða yfir. En að hætta að byggja barnaskóla og auka þá tel jeg svo mikið spor aftur á bak og svo ramt afturhald, að jeg á engin orð til yfir það. Vil jeg ekki láta þetta tækifæri ónotað til þess að mótmæla þessari óheillastefnu í fræðslumálum landsins. Ef ekki fæst ein upphæð til barnaskólanna, er jeg því meðmæltur, að veitt verði þessi litla upphæð til barnaskólans á Nesi í Norðfirði, sem farið er fram á í brtt. háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ).

Þá vildi jeg víkja nokkrum orðum að þeirri brtt. meiri hl. fjvn., að laun Jóh. L. Jóhannssonar verði lækkuð úr 7000 kr., sem stjfrv. ákveður, og niður í 6000 kr. Jeg skil ekki hvers vegna háttv. nefnd leggur þetta til, nema ef á að skilja það svo, að hún vilji, að starfið sje lagt niður, og hefir þá verið lítið ráð í að byrja nokkurn tíma á þessu verki. Annars held jeg, að öllum hljóti að vera ljóst, að fátækur, gamall fjölskyldumaður fær ekki lifað af 6000 kr. hjer í Reykjavík. Er og hvorttveggja, að maður þessi er ekki fær um að leita sjer annarar atvinnu til uppbótar laununum, enda væri það líka hinn mesti skaði fyrir þetta verk, sem honum er falið. Vil jeg því eindregið leggja til, að stjórnartill. sje samþykt.