11.04.1923
Neðri deild: 39. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 773 í B-deild Alþingistíðinda. (701)

1. mál, fjárlög 1924

Forsætisráðherra (SE):

Jeg sýndi ljóslega fram á það í dag. hve rangt það hefði verið hjá háttv. frsm. (MP) að vera að átelja stjórnina fyrir það, þó að hún gegndi skyldum sínum í hinni deildinni, og gæti því ekki verið í háttv. Nd. Því eins og á stóð í dag, varð jeg að vera í hv. Ed., þar sem jeg var að leggja þar fram stjórnarfrumvarp, og auk þess varð jeg að greiða atkvæði um þrjú mál, því að það er skylda mín að vera þar, þegar atkvæðagreiðslur fara fram.

Hv. frsm. sagði, að úr því að jeg hefði haft þessar afsakanir, þá hefði jeg átt að sjá um, að fundur væri ekki haldinn í Ed. Ekki hefi jeg nú heyrt það fyr, að stjórnin rjeði yfir forsetum Alþingis, og er það ný regla, sem háttv. frsm. (MP) vill taka upp, og líklega verður hann einn um þá tilbreytingu. En þrátt fyrir þessa fjarveru mína, hlýddi jeg á nær því alt, sem háttv. frsm. sjálfur sagði; misti aðeins þá speki, sem draup í byrjun ræðunnar af vörum hans, en þó hún sje mikil, þá get jeg þó ekki vanrækt skyldur mínar í hv. Ed., eins og jeg hefi margtekið fram. Jeg get því ekki skilið þetta moldviðri háttv. frsm. á annan hátt en það hafi sært hjegómagirni hans, að stjórnin skyldi ekki vera til staðar að hlusta á, er hann byrjaði að tala. Jeg vísa því þessum ásökunum á bug með fullum rökum.

Þá sagði háttv. frsm. (MP), að stjórnin ætti að vita, hvað sagt væri af öðrum um hana. Út af þessum ummælum skal jeg taka það fram, að stjórnin hefir alls enga ástæðu til þess að kvarta yfir því, sem fram við hana hefir komið á þinginu, en hún veit vitanlega ekki, hvað sagt er um hana á bak. Og jeg vænti þess fyllilega, að sje óánægja með stjórnina, þá verði hún látin koma fram á þinglegan hátt, með reglulegri vantraustsyfirlýsingu. Stjórnin er hvergi hrædd.

Út af þeim ummælum háttv. frsm. (MP), að jeg hefði ekki sálarþrek til þess að vera ráðherra, úr því jeg gæti ekki hlustað á aðfinslur, vil jeg taka það fram, að jeg þykist hafa sýnt fult sálarþrek í því að halda því einu fram, sem jeg hefi talið satt og rjett. Það er einmitt það sálarþrek, sem allir þingmenn þurfa að hafa, og jafnvel sjálfur frsm. (MP) líka. En aðfinningum, jafnórökstuddum og hv. frsm. kom með, tek jeg ekki með þökkum, hvorki af honum nje öðrum.

Þá reyndi háttv. frsm. að slá sig til riddara með því að spyrja, hvers vegna stjórnin hefði ekki komið með tillögu um að auka styrkinn til barnafræðslunnar. En af hverju gerði stjórnin það ekki ? Einmitt af því, að hún þekti hug þingsins í þeim málum síðan í fyrra, og bjóst því ekki við, að það hefði haft byr. Og hið sama er um fleiri umbætur að segja. En því skal jeg lofa háttv. frsm. (MP), að verði jeg ráðherra áfram, þá mun jeg koma með tillögur um aukinn styrk til barnaskólabygginga og fleira í þá átt fyrir þing það, sem kemur saman að afstöðnum kosningum, svo barnafræðslan geti verið í nokkurn veginn lagi.

Þá hneykslaðist háttv. frsm. á því, að jeg skyldi hafa fært niður styrkinn til forstöðumanns yfirsetukvennaskólans, en ekki viljað hækka styrkinn til sjera Jóhannesar Lynge. Jeg verð að segja hv. frsm., að hjer stendur ólíkt á. Forstöðumaður yfirsetukvennaskólans er í hæsta launaflokki embættismanna, og hefir þar fyrir utan allmikið skrifstofufje o. fl., en sjera Jóhannes hefir aðeins þennan styrk, og ekkert annað.

Það gladdi mig, að háttv. 3. þm. Reykv. (JÞ) skyldi taka í sama strenginn og jeg með það, að hjeraðslækninum hjer bæri engin skylda til þess að kenna við háskólann og ekki gæti komið til mála að binda þessa háskólakenslu við embætti hans, því að engin vissa er fyrir því, að næsti hjeraðslæknir verði fær um að hafa hana á hendi, þó nú standi svo á, að hægt sje að samrýma það, þar sem núverandi hjeraðslæknir, sem er kunnur að því að vera sjerstaklega hneigður til vísindalegra iðkana, geti gegnt þessu starfi.

Þá hefi jeg mælt með styrknum til Norræna fjelagsins, og vona jeg, að hann verði samþyktur, því að þetta er gott fjelag, og í gegnum starfsemi þess ættum vjer að geta kynst ýmsum ágætismönnum hjá Norðurlandaþjóðunum, og er mikið varið í slíka viðkynning og getur hún hrundið ýmsu góðu á stað.