12.04.1923
Neðri deild: 40. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í B-deild Alþingistíðinda. (709)

1. mál, fjárlög 1924

Pjetur Ottesen:

Jeg á eina brtt. við 16. gr., um það að bæta þar við nýjum lið. 800 kr. til þess að gera Eyrarfoss í Laxá laxgengan, þó ekki yfir þriðjung kostnaðar. Í Laxá er allmikil laxgengd, þó áin sje tiltölulega stutt, eða sá hluti hennar, sem er laxgengur, því einmitt þessi umræddi foss heftir laxagönguna upp eftir ánni, og þar með upp í Svínadalsvötnin, sem áin rennur úr. En það mundi óefað auka mjög laxgengd í ána, ef laxinn gæti gengið þannig óhindrað upp í vötnin. En einmitt þar við vötnin og við ósana á milli þeirra hagar alveg óvenjulega vel til með að koma við laxa og silungaklaki, en fyrir því máli er nú að vaxa mikill áhugi í landinu. enda borið stórvægilega góðan árangur, þar sem nokkur reynsla er fengin um það, eins og t. d. við Mývatn í Þingeyjarsýslu. Annað atriði, sem mjög ætti einnig að geta ýtt undir þetta mál, er það, að þetta ætti beinlínis að geta orðið búhnykkur fyrir ríkissjóð. Prestssetrið Saurbær á Hvalfjarðarstr., sem er að sjálfsögðu eign ríkissjóðs, á á löngu svæði land að ánni ofan fossins og vötnunum; og einmitt það landsvæði er hinn svo nefndi Vatnaskógur. Vatnaskógur hefir nú verið girtur og grisjaður og með öllu tekinn undan yfirráðum prestins í Saurbæ og hefir nú skógræktarstjóri umráð yfir honum fyrir bönd ríkissjóðs. Skógur þessi er unaðsfallegur staður, skógurinn í stórri framför, enda vaxtarskilyrðin ágæt, veðursæld mikil og lega landsins hagstæð. Fólk úr nærliggjandi kauptúnum, og þó einkum um Reykjavík, sækir líka meira og meira þangað á sumrum sjer til skemtunar og hressingar, og heyri jeg sagt, að ýmsir hafi í hyggju að fá leyfi til að slá þar tjöldum og dvelja þar um tíma að sumrinum hafa þar á þennan hátt sumarbústað, eins og það er kallað hjer. Ef Eyrarfoss yrði nú gerður laxgengur, þannig að laxinn gæti gengið alla leið upp í vötnin, mundi bætast þar við einn góður kostur, sem mjög mundi auka á aðsóknina þangað, því auk náttúrufegurðarinnar, sem altaf laðar til sín, kæmi sú hressandi skemtun og það gagnlega gaman, að geta stundað laxveiði þar jafnframt eða silunga. En rjettinn til dvalar þarna og slíkrar stangaveiði mundi að sjálfsögðu mega selja og hafa af sæmilegar tekjur. Gæti þetta því orðið ríkissjóði þó nokkur tekjulind. Það mundi verða eftirsótt miklu meira en nú, og er þó staðurinn nú þegar annálaður, að fá leyfi til sumardvalar þarna, eins og eðlilegt er, ekki síst ef unt er að sameina þar svo marga kosti sumardýrðarinnar, sem íslensk náttúra getur veitt. Þar færu þá saman þau hollu og hressandi áhrif, sem það hefir á hvert íslenskt náttúrubarn að teiga í sig mitt í sumardýrðinni hið heilnæma fjallaloft, og veiðigleðin.

Þar sem það stendur nú þarna svo alveg sjerstaklega á með þennan stað, og laxveiði í ánni mundi stóraukast, ef þessum þröskuldi væri rutt úr vegi, þá vænti jeg þess, að hið háa Alþingi vilji stuðla að þessu, með því að veita þennan styrk, ekki síst þar sem mjög sanngjarnlega virðist í sakirnar farið og aðeins beðið um þriðjung kostnaðar.

Þá vildi jeg víkja nokkrum orðum að tillögu þeirri, sem fyrir liggur um að hækka styrkinn til Fiskifjelagsins.

Háttv. fjvn. leggur til, að því verði veittur 15 þús. kr. viðbótarstyrkur. Stjórn Fiskifjelagsins hafði farið fram á það við stjórnina, er hún var að undirbúa fjárlagafrv., að styrkur þessi yrði miklu meiri, að því er jeg hygg 122 þús. kr., auk 16 þús. kr. dýrtíðaruppbótar úr ríkissjóði. Auk þess voru svo aðrir liðir, sem fjelagið hefir nokkrar tekjur af, og hljóðar því áætlun fjelagsins, sem hjer liggur fyrir, upp á það, að það hefði með þessu móti 145500 kr. tekjur á árinu, og við það hefir það í þessari áætlun miðað framkvæmdir sínar og fjárframlög.

Nú verður að viðurkenna það, að enda þótt allir þessi styrkur hefði fengist, þá var samt það fje, sem Fiskifjelagið hefir til umráða. alt of lítið til að hrinda í framkvæmd og styðja að nauðsynlegum framkvæmdum og fyrirtækjum á þessu sviði, en alt fyrir það, þó margir efuðust ekki um að árangurinn af þessum styrk yrði góður, þá sá samt sjútvn. sjer ekki fært að leggja til, að styrkurinn yrði nú hækkaður meira en gert er í till. hv. fjvn., og einkum þótti sjávarútvegsnefnd mikilsvert að fá samkomulag við hv. fjvn. um þessa upphæð, en nefndinni var kunnugt um það, að til samkomulags gat ekki leitt með nefndunum, ef lengra væri gengið. Báðar nefndirnar standa saman um þessa fjárveitingu, og verði hún samþykt, hefir fjelagið sama styrk sem það hafði 1921 og 1922, en eins og kunnugt er, lækkaði þingið þennan styrk í fyrra um 15 þús. kr.

Hv. frsm. fjvn. (MP) gat þess, að sjútvn. mundi gefa skýringar um það. við hvað hún hefði sjerstaklega miðað þessa styrkhækkun. Sjútvn. hefir hjer haft í huga styrk til ýmsra framkvæmda, sem hún telur þýðingarmest, að Fiskifjelagið fáist við og styðji, því að enda þótt segja megi, að allir liðirnir í áætlun Fiskifjelagsins, sem jeg hefi hjer fyrir framan mig, sjeu þýðingarmiklir, þá finst henni þó, að nokkur munur sje á gerandi, enda leiðir það af sjálfu sjer, þar sem styrkurinn er ekki hækkaður meira en þetta, að eitthvað verður að sitja á hakanum. Vil jeg því benda á þá liði, er nefndin leggur sjerstaka áherslu á.

Fyrst er styrkur til bóta og viðgerða á leiðum og lendingum. Er þetta mjög nauðsynlegt, bæði til tryggingar mannslífum og skipum og til þess að auka framleiðsluna. Annað er styrkur til að halda uppi námsskeiðum í vjelfræði. Hefir áður verið rætt um þetta í sambandi við frv., sem hefir legið fyrir þinginu og nú er orðið að lögum, um skyldur og rjettindi þeirra manna, er hafa á hendi vjelgæslu á mótorskipum. Fyrir nokkru hafa einnig verið sett lög um það, að koma á fót vjelskóla, en það hefir ekki enn komist í framkvæmd, sökum fjárhagserfiðleika ríkissjóðsins. Er öllum auðsætt, hve nauðsynlegt það er, að námsskeið þessi sjeu haldin meðan skólinn ekki kemur, því að mjög er það áríðandi, að menn kunni að fara með olíuvjelar, þeir, er við það eiga að fást. Nú hefir fjelagið haldið uppi þessum námsskeiðum bæði á Akureyri og Ísafirði, en hjer á Suðurlandi hafa þau fallið niður 2 síðustu árin, bæði sökum þess, að það bjóst við skólanum og svo sökum þess, eftir því sem forseti Fiskifjelagsins hefir skýrt mjer frá, að húsnæði vantaði hjer. Hafði fjelagið haft undirbúning til að halda námsskeiðið, en það strandaði á þessu. Fjelagið hafði sjálft ekkert húsrúm til þessa, en vantaði hins vegar fje til að borga þá okurleigu fyrir það, sem hjer tíðkast. Hefir mjer nú komið til hugar. hvort ekki mundi hægt að nota sjómannaskólann til þessa. Veit jeg að vísu, að þar er yfirfult af stýrimannaefnum, og það mikið um þörf fram, en hins vegar er skortur á vjelfróðum mönnum. Er því athugandi, hvort ekki er ástæða til að takmarka eitthvað aðsókn stýrimannaefna að skólanum á næsta vetri, til þess að húsrúm fáist fyrir kenslu í vjelfræði. Skýt jeg þessu til stjórnarinnar til athugunar. Er ótækt, að námsskeiðin falli niður vegna skorts á húsnæði.

Þriðji liðurinn er um það, að einhver styrkur verði veittur til uppfundninga og framfara og nýjunga á sviði fiskiveiðanna. Kemur altaf eitthvað hjer nýtt fram, en hins vegar þeir menn, er upptökin eiga að því, oft svo fátækir, að engin leið er fyrir þá sjálfa að gera hugsjónir sínar og uppfyndingar raunhæfar. Er því hin mesta nauðsyn á, að fje sje veitt til að styrkja þetta.

Fjórði liðurinn er, að styrkur sje veittur til fiskverkunartilrauna. einkum til þurkunar á saltfiski.

Er nú mjög farið til þess að þurka fisk í húsum inni, en aðferðirnar til þess eru mjög misjafnar. En hin mesta nauðsyn er á því, að fiskþurkunin geti orðið óháð tíðarfarinu. Getur það mjög stutt að því, að fiskurinn komi jafnar á markaðinn en ella, en það gefur aftur tryggingu fyrir hærra verði. Er því hjer um þýðingarmikið atriði að ræða.

Er þess getið í greinargerð þessarar áætlunar, að fjelög hjer í bænum hafi komið sjer saman um að kjósa nefnd til að athuga þetta mál. Kom erindi frá henni þessu viðvíkjandi inn á þing hjer í fyrra, en svo seint, að fjvn. hafði þá nær lokið störfum sínum, og gat því ekki sint því.

Fimta er að verja nokkru fje til að gera tilraunir með, á hvern hátt best sje að hagnýta fiskiúrgang. Er þetta og mjög áríðandi, því að eins og kunnugt er, fellur mjög mikið til af þessu, því að á öllum stærri verstöðum er það einungis fiskbolurinn, hrognin og lifrin, sem hirt er. Er mikið verðmæti, sem hjer fer til ónýtis, og hin mesta þörf á að hagnýta þetta á einhvern hátt.

Þetta er það, sem sjútvn. leggur aðaláhersluna á, að styrkurinn verði notaður til. Undanfarið hefir það verið svo, að allmikið af styrknum hefir farið í stjórnarkostnað, en þó hefir nokkuð, auk þess, sem varið hefir verið til framkvæmda, verið lagt í sjóð.

En á síðasta Fiskiþingi var sú lofsverða viðleitni sýnd að reyna að draga úr þessum kostnaði. Laun forseta og litstjóra tímarits fjelagsins, „Ægis“, voru lækkuð og ákveðið að halda þing annaðhvert ár, í stað þess að það hefir verið háð á hverju ári nú um skeið. Er þetta allrar virðingar vert, því að auðvitað ætlast Alþingi til, að fje, sem veitt er til þessara fjelaga, verði svo raunhæft sem kostur er á.

Þá vil jeg þakka háttv. fjvn. góðar undirtektir undir styrk- og lánbeiðni Sláturfjelags Suðurlands til að koma hjer upp sútunarverksmiðju. Hefir hún vel skilið nauðsyn þessa máls og hve afaráríðandi það er, að meira hafist upp úr gærunum en verið hefir. Eru líkindi til, að þetta fáist best með sútun.

Háttv. þm. Dala. (BJ) var hjer nokkuð svartsýnn, enda þótt hann sje þessu fylgjandi. Hjelt hann, að svo gæti farið um þetta sem margt annað, að ráðist væri í það að lítt rannsökuðu máli, og svo ylti það um koll. En þess er að gæta, að mál þetta hefir fengið mjög góðan undirbúning og enn fremur, að gætt mun verða hinnar mestu varfærni í meðferðinni. Eru góðar vonir á, að þetta hepnist vel, því að íslensk skinn eru að sögn ágætlega til sútunar fallin og hafa verið notuð til þess erlendis og hafa góðan markað. Er því hjer til markaður, ef það tekst að gera skinnin hjer jafnvel úr garði sem erlendis hefir verið gert, og er fylsta von til þess, að það takist, einkum er gætt er að því, að gærurnar yrðu betri hjer en þær hafa verið eftir útflutninginn, því að við hann hafa þær oft skemst töluvert.

Einnig vil jeg þakka hv. fjvn. undirtektir hennar undir styrkveitingu til fjelagsins „Mjallar“. Var það og rjett, að fjelag þetta styðst við allmikla reynslu undanfarandi. Svör hæstv. atvrh. (KIJ) slógu að vísu nokkrum skugga á þetta, að því er lánin snertir, þar sem hann taldi, að ekkert fje mundi vera til lána í þessu skyni. Það mun rjett vera, að um lítið fje sje að ræða, en þó fellur altaf til nokkurt fje árlega, og er mesta nauðsyn á því, að veitt sje til þessa, ef hægt er, og þá fyrst og fremst til þeirra fyrirtækja, sem fyrst bera raunhæfan árangur, og það er vitanlega mest nauðsyn á að sinna því, sem miðar til þess að bæta framleiðsluna og gera hana að betri og útgengilegri vöru.

Viðvíkjandi lánsheimildinni til Gerðahrepps skal jeg taka það fram, að mjer er vel kunnugt um nauðsyn þessa hrepps og að ástandið er mjög slæmt. En lánveiting þessi er nokkuð sjerstök og því miður hætta á því, að hún skapi fordæmi, en því er áríðandi, að metnar sjeu vel þær ástæður, sem fyrir hendi eru.