12.04.1923
Neðri deild: 40. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 810 í B-deild Alþingistíðinda. (710)
1. mál, fjárlög 1924
Lárus Helgason:
Jeg á þrjár brtt. við fjárlögin, og vildi jeg leyfa mjer að gera stutta grein fyrir þeim. Það er þá fyrst XIV. brtt. á þskj. 292, við brtt. 254,82 11, um lendingarbætur í Bás, að fyrir 6000 kr. komi 9000 þús. kr. Það gefur að skilja, að Skaftfellingar eiga mjög örðugt uppdráttar hvað lendingar snertir, sökum brims, svo örðugt, að hvergi er afdrep til þess að lenda báti. Á einum stað í Vík hefir þó frá alda öðli verið betra að lenda en annarsstaðar þar nærlendis. Þangað er ófær leið, nema fyrir gangandi menn. Stórgrýtt urð gengur niður í sjó á milli verslunarstaðarins og þessa viks (Bássins). Vitamálastjóri hefir athugað veg þennan og áætlað, að um 15 þús. krónur mundi kosta að gera hann góðan eða nothæfan. En þar sem langt er liðið síðan sú áætlun var gerð, þá er eigi hægt að fullyrða, hvað sá vegur mundi kosta nú samkvæmt umsögn vitamálastjóra. Jeg er þakklátur háttv. fjvn. fyrir það. hversu vel hún hefir tekið till. þessari, og það því fremur sem hv. frsm. nefndarinnar (MP) hefir látið í ljós, að nefndin muni eigi ófáanleg til þess að hækka upphæðina frá því, sein hún hafði ákveðið hana, sem sje frá 6000 kr. upp í 7000 kr. Er þar miðað við það, sem venja er til að veita til sýsluvega. Háttv. nefnd getur þetta líka vel án þess að skapa með því slæmt fordæmi. Þess vegna hefi jeg hugsað mjer að taka till. mína aftur, í trausti þess, að hv. fjárveitinganefnd taki 6000 kr. tillögu sína aftur og færi upphæð þessa upp í 7000 til 7500 kr. við næstu umræðu.
Þá á jeg eina brtt. á þskj. 332. uni styrk til sjera Bjarna Einarssonar. Er hann maður kominn á efri ár og hefir mjög snúist við hagur hans nú í seinni tíð. Hann bjó áður á Mýrum í Álftaveri, og var þá sveitarhöfðingi við góð efni, en sakir heilsubilunar varð hann að láta af prestsskap og búskap og selja eignir sínar litlu verði. Síðan flutti hann til Víkur og þaðan hingað til Reykjavíkur. Nú á hann lítil efni og heilsa hans er mjög bágborin. Einnig er kona hans mjög böguð vegna áfalls, sem hún fjekk af byltu fyrir 2 árum. Þegar jeg sá hann hjer í Reykjavík nú fyrir fáum dögum svo illa á sig kominn, að hann gat með naumindum skreiðst um gólfið í herberginu, er hann var í, með því að hafa staf í hvorri hönd, þá brá mjer í brún. Eru því átakanlega illar ástæður þeirra hjóna. Eftirlaun prestsins eru 420 kr. á ári. Eins og menn munu vita, þá er eigi hægt að lifa hjer fyrir minna en 500–600 kr. á mánuði fyrir fjölskyldu, og sjá menn af því, að 420 kr. á ári hrökkva skamt, þegar útilokað er, að hlutaðeigandi geti gengið að nokkurri vinnu. Er eigi hægt að kalla það til of mikils mælst, þó að slíkum heiðurshjónum, sem svo eru stödd sem jeg hefi nú lýst, sje veittur 1000 kr. styrkur. Vona jeg, að hv. deild sjái sjer fært að samþykkja þessa till. Ef einhverjir skyldu verða til þess að lengja mig, þá ættu þeir að sjá ástæður þeirra hjóna með eigin augum, og munu þeir þá sannfærast um, að jeg fer með rjett mál.
Þá kem jeg að 3. brtt. minni, á þskj. 292. um alt að 5000 kr. lán til þess að kaupa læknisbústað í Síðuhjeraði. Hefir verið ákveðið að byggja upp sæmilegt hús handa lækninum, en til þess að það verði hægt, verður að fá lán og styrk. Hjeraðið hefir viðað saman talsverðu fje í þessu skyni. Tel jeg þessa till. eigi nema sjálfsagða, því að það er eigi vansalaust fyrir þjóðina, að læknar hennar hafi hvergi höfði sínu að að halla.