12.04.1923
Neðri deild: 40. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 815 í B-deild Alþingistíðinda. (712)
1. mál, fjárlög 1924
Eiríkur Einarsson:
Það er hjer eitt smáatriði, sem jeg vildi leyfa mjer að minnast á, og það er 86. brtt. nefndarinnar, um 500 kr. til Árna Th. Pjeturssonar. Er það eigi af því, að jeg sje ósamþykkur till., heldur af því, að aftan við till. er hnýtt þessum orðum: „þangað til stjórnin veitir honum aftur starf hans, eða annað álíka.“ Jeg vildi aðeins láta þess getið, að jeg álít, að eigi geti komið til mála að veita honum aftur sama starf og hann hafði á hendi.
Þá vildi jeg minnast á 74. brtt. nefndarinnar og mæla sjerstaklega með henni, en það er 500 kr. til Guðbjargar í Múlakoti, í viðurkenningarskyni fyrir blóm- og trjárækt. Er kona þessi góðkunn á Suðurlandi fyrir áhuga sinn í þessum efnum, og hefir hún eigi einungis unnið að slíkri blómrækt heima hjá sjer, heldur og orðið öðrum, til og frá þar eystra, einskonar blómræktarkennari og til hins fegursta fordæmis. Álít jeg því, að þessum 500 kr. sje vel varið á þennan hátt.
Þá fór hv. frsm. (MP) mjög hlýjum orðum um sútunarverksmiðjumálið, en jeg man ekki, hvort hann gat um, hvers beiðst var, bæði að því er snertir styrkinn og ábyrgðina. Það var upprunalega farið fram á 60 þús. kr. styrk og 200 þús. kr. ábyrgð, en hjer er hvorttveggja nokkuð lækkað. Jeg tel það mjög eðlilegt, að hv. fjvn. treysti sjer eigi til að fara hærra, þótt æskilegt hefði verið. Hv. þm. Borgf. (PO) mintist einnig hlýlega á þetta mál og tók það rjettilega fram, að Sláturfjelag Suðurlands, eða slík starfsemi, stendur sjerstaklega vel að vígi að því er snertir rekstur slíks fyrirtækis, af því að það getur sjálft lagt til hráefnin og rekið starfsemina í sambandi við sláturhúsið. Og af því að sútuð skinn eru líkleg til sölu erlendis, þá er gott að geta valið úr gærunum á staðnum. Vona jeg, að háttv. deild taki vel í þetta mál, er Sláturfjelag Suðurlands á þökk fyrir að vilja taka að sjer.
Þá vildi jeg minnast nokkrum orðum á 88. brtt. nefndarinnar. undirlið e. Er jeg mjög þakklátur nefndinni fyrir, hvernig hún hefir tekið í það mál. Eins og háttv. frsm. nefndarinnar (MP) tók fram, þá hefir fjelagið átt mjög örðugt með að standa straum af þeim lánum, sem það hefir orðið að taka, og meira en örðugt, — því er það alveg ómögulegt.
Eins og hv. þm. mun kunnugt, þá áætluðu verkfræðingarnir, að Skeiðaáveituverkið mundi kosta um 107 þús. kr., en allur starfskostnaðurinn reyndist um 400 þús. kr. En í trausti þess, að áætlun verkfræðinganna væri rjett, var ákveðið að leggja út í fyrirtækið. Það er rjett, að síðan verkið var hafið, hefir dýrtíðin keyrt úr hófi, og því hefir kostnaður hækkað, en það gátu Skeiðabændur ekki sjerstaklega sjeð fyrir. En það vil jeg leggja áherslu á, að höfuðþátturinn í allri hækkun við verkið er sá, að áætlunin, sem gerð var um það, reyndist röng og villandi. Verkfræðingarnir og yfirumsjónarmennirnir, sem skipaðir voru, sögðu, að það væru engar sjerstakar hömlur við skurðgröftinn; á leiðinni væri aðeins lausahraungrýti og leir, en engin föst klöpp. En er til kom, þá var á löngum kafla hörð hraungrýtisklöpp, sem reyndist mjög seinunnin, og vjelarnar, sem fengnar voru til að vinna á henni, lengi vel í megnu ólagi, og varð graftarkostnaðurinn þar 14-faldur við áætlunina. Hann reyndist á annað hundrað þúsund krónur. Áveitusvæðisbændur hljóta að vísa af höndum sjer kostnaði, sem þannig er til kominn. Á þessu svæði, sem um er að ræða, eru 27 bændaeignir. Flestir bændurnir, sem þar búa, munu mega teljast bjargálnamenn, og sumir þó varla og engir betur. Af kostnaðinum kemur því að jafnaði 10 þús. kr. á hvert býli. En jarðir þessar munu að meðaltali vera virtar á 3–4 þús. hver eftir fasteignamatinu. Sjest því glögt, hvert stefnir, er þessi baggi hleðst á bújörð hverja. Þess vegna er það ekki nema margfaldlega sanngjarnt og bráðnauðsynlegt, að bændurnir verði styrktir, — meira gert en lána þeim, — ef þeir eiga ekki að örmagnast undir slíkri byrði. En eigi myndi þingi nje þjóð ávinningur af að draga sig í hlje, þegar atorkusamir bændur beiðast hjálpar af jafnknýjandi ástæðum. Hjer er að engu handvömm þeirra um að kenna, heldur verkfræðinga, sem kvaddir voru til af því opinbera. Auk þess er þetta vel gróin sveit og á mikil framtíðarskilyrði fyrir höndum, ef hún verður ekki fyrir slíkum óverðskulduðum búsifjum, og er þess vegna því meiri ástæða til að styrkja íbúana til að geta framfleytt þar lífinu áfram, í stað þess óbeinlínis að reka þá burt.
Þá hefi jeg gerst hvatamaður þess, að upp var tekin í fjvn. lánbeiðni til stúdents í Kaupmannahöfn, sem er mjög fátækur, en á ekki langt í land að ljúka námi í lífeðlisfræði. Jeg hygg, að það sje betra að koma því þannig fyrir að hafa það heldur lán en styrk, og í sama streng tók háttv. þm. Dala. (BJ) í dag. Ástæðurnar til þess eru tvær. Aðra þeirra tók hv. þm. Dala. fram, sem sje þá, að þegar búið er að hjálpa mönnunum svona langt áleiðis, þá er óforsvaranlegt að skilja þá þar eftir, ef hægt er að hjálpa. En lán er einnig betra en styrkur að því leyti, að það leggur siðferðislega skyldu á herðar þeim, sem það fær, um að endurgjalda það. Þegar pilturinn, sem lánið fær, síðar meir verður að manni og kemst í álnir, þá minnist hann þess, er honum var gott gert, og greiðir þetta aftur, og er þetta þá fundið fje fyrir ríkissjóðinn. Jeg vona því, að þessi lánsheimild til þessa manns verði samþykt, svo og heildarlánsheimild samkvæmt brtt. hv. þm. Dala. (BJ).
Þá er það 17. brtt. á þskj. 292. Jeg hefi þar ásamt samþingismanni mínum farið fram á það, að Þórdísi Símonardóttur ljósmóður á Eyrarbakka sje sýnd svolítil viðurkenning. Það er svo ástatt um konu þessa, að hún er einstæðingur, komin að fótum fram, hátt á átti æðisaldri, og hefir gegnt ljósmóðurstörfum um 50 ár. Hún er alveg eignalaus. Nú er hún að hugsa um að láta af starfi sínu, með því að hún hefir ekki starfskrafta til að gegna því lengur. Jeg vil benda á, hversu ólík er aðstaða yfirsetukvenna í kaupstöðum eða sveitum, í sveitunum eru það oft bændakonur, sem gegna starfi þessu. Er þær láta af því sökum elli, þá verður engin breyting á lífskjörum þeirra. En öðru máli er að gegna í kaupstöðunum og kauptúnum. Þar eru það oft og einatt tómthúskonur, sem engu eiga að að hverfa, þegar þær hætta, og hafa gert ljósmóðurstarfið að aðalstarfi. Svo er um konu þessa. Jeg vænti því, að allir þeir, sem bera hlýjan hug til ljósmæðra þessa lands, minnist þeirra, er þeir greiða atkvæði um styrkinn til þessarar konu, og launi að makleikum 50 ára starfa hennar, er leystur hefir verið af höndum með skörungsskap og samviskusemi. Má Þórdís heita einstök í sinni röð og vel makleg viðurkenningar og þingstyrks.
Þá ætla jeg að síðustu að minnast á brtt. mína á þskj. 330. Það kann að vera, að háttv. þm. þyki fjárhæðin nokkuð há, því að þar er farið fram á 180 þús. kr. fjárveitingu, og skilgreiningin svo orðuð, að mönnum er nokkur vorkunn, þótt þeir sjái ekki hvert stefnir, en þó er það auðsjeð, þegar betur er athugað. Og geta skal jeg þess, að þessu er ekki stefnt austur í Árnessýslu, svo að hjer er ekki um neitt kjördæmatog að ræða. Undirstað þessarar tillögu er fólgin í gerðum og áliti ullariðnaðarnefndarinnar, sem skipuð var af stjórninni. Jeg gerði snemma á þinginu fyrirspurn til stjórnarinnar um það, hvað liði þeirri nefnd og áliti hennar, því að nauðsyn væri fyrir þingmenn að vera búnir að kynna sjer það, þegar fjárlögin kæmu til umræðu. En stjórnin er ekki farin að svara því enn. En álitsskjal nefndarinnar er nýlega komið, og jeg hefi átt kost á að kynna mjer það lítið eitt og sjeð niðurstöðu hennar. Leggur hún til, að stofnuð verði ein eða tvær dúkaverksmiðjur á landinu. Meining nefndarinnar er sú, að klæðaverksmiðjan „Gefjun“ á Akureyri haldi áfram að starfa, svo sem að undanförnu, og svo verði einni stórri verksmiðju bætt við á Suðurlandi, í Reykjavík eða grend. Hygg jeg, að nefndin miði einkum við Álafoss, en þó er það ekki einskorðað. Nefndarmennirnir eru hálfmyrkfælnir við tóvinnuvjelar til og frá og smærri dúkaverksmiðjur. Halda þeir, að það svari ekki kostnaði, að til þeirra fáist ekki nógu valdir menn og að því fylgi meira handahóf en ef málið er tekið heildartökum. Ætlunin er sú, að í sambandi við þessa stóru verksmiðju verði spuna- og lopavjelar. Er þá tilætlunin sú, að þessi verksmiðja geti að mestu fullnægt klæðaþörf landsmanna og auk þess eftirspurnum um lopa og kembing, er líka þurfi að sjá fyrir, til stuðnings heimilisiðnaðinum.
Á þinginu 1921 kom jeg með þáltill. um ullariðnað, og einn liður í henni var að rannsaka kostnað við bygging verksmiðjuhúss og kaup vjela og vinnutækja. En landbn. kýtti till. þessa saman og nam lið þennan burtu. En hann hefði þó mátt standa, því að nefnd þessi, hin stjórnskipaða, hefir af sjálfsdáðum gefið yfirlit yfir þennan kostnað. Hún gerir ráð fyrir, að verksmiðja með 20 vefstólum. 4 lopavjelum og 4 spunavjelum, muni kosta um 1800 þús. krónur. Áætlar hún, að við slíka verksmiðju þurfi að vinna 50–60 fastir menn. Gert er ráð fyrir, að stofnun svona verksmiðju verði skoðað sem alþjóðlegt stórfyrirtæki, er áhugi almennings vaki fyrir. En stjórnin ætti að hrinda því af stað. Af hinum áætlaða kostnaði telur nefndin sanngjarna hluttöku af hálfu ríkissjóðs 1/10, eða 180 þús. kr., eins og jeg geri ráð fyrir í brtt. minni. Jeg fer þar því eingöngu eftir till. nefndarinnar. Kannske aðrir finni heppilegri hlutföll; þá það. Málið þarf að komast á hreyfingu, og þar á stjórnin að vekja en ekki svæfa. Hún á að taka það á sína arma.
Till. hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) mun jeg láta hlutlausa. Jeg veit, að nefndin hefir gert þá varatillögu, að ef ekki verði stofnuð ein stærðarverksmiðja, svo sem æskilegast væri, þá verði settar á stofn aðrar smærri, og hefir hún nefnt stað á Austurlandi og í Húnavatnssýslu og við Reykjafoss í Ölfusi. Ekki mun jeg neitt sjerstaklega trana fram Reykjafossi, þótt jeg viti, að allir Árnesingar muni það helst vilja, og þar er staðurinn að flestu leyti mjög eftirsóknarverður; en það skal látið liggja milli hluta.
Jeg vil geta þess áður en jeg sest niður, að þetta var samróma álit allra nefndarmannanna, einnig Hallgríms Kristinssonar, sem nú er látinn. Um þennan djarfa og framsækna mann var það vitanlegt, að hann vildi stefna í þetta horf. Jeg hefi borið þetta fram án þess að ráðfæra mig við nokkurn mann úr fjvn., og veit jeg ekki, nema þeir taki það því illa upp fyrir mjer. En jeg er fús til samvinnu um þetta mál við hvern sem er, og ef hv. þm. líkar ekki till. mín eins og hún er, þá er jeg fús til að smíða aðra upp úr henni og breyta á hvern þann veg, sem betur mætti fara. Málefnið er mjer þar alt, en hvernig það er flutt inn í þingið, skiftir engu.
Menn munu varla telja eftir þessar 180 þús. kr. til þess að koma svona nytsömu fyrirtæki af stað. Enda má sjá það hjer í háttv. deild, að þegar um nytsöm fyrirtæki er að ræða, þá minnast jafnvel hinir mestu sparnaðarmenn ekki á þá hlið málsins. T. d. mintist hv. þm. Borgf. (PO), sem er einn hinn mesti sparnaðarmaður, ekki á þá hlið málsins, þegar um byggingu strandvarnarskipsins var að ræða; nytsöm framkvæmd er stundum svo mikils verð, að fjárhagsatriðið eins og gleymist og verður aukaatriði. Eins er því varið með þetta mál. Tugir þúsunda eru veittir í allskonar smáfyrirtæki, sem flest fara í mola, vegna ónógs undirbúnings og eftirlits. en þetta ætti að verða svo „faglega“ meðfarið og undir svo góðu eftirliti, að öllu væri óhætt. Auðvitað ætti nefnd að undirbúa mál þetta, og kæmi þá fyrst til framkvæmda að þeim undirbúningi loknum, í framkvæmdinni má ekkert flaustur eiga sjer stað.
Lýk jeg svo máli mínu og vænti, að þetta mál fái góðar undirtektir í hv. deild.