12.04.1923
Neðri deild: 40. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 838 í B-deild Alþingistíðinda. (716)
1. mál, fjárlög 1924
Þorsteinn Jónsson:
Jeg hefi ekki komið fram með neinar brtt. til nýrra fjárveitinga við fjárlagafrv. Jeg bjóst við, að háttv. þm. mundu láta sjer hægt með að koma fram með slíkar tillögur, en önnur hefir þó reyndin á orðið, og eru nú þegar margar af slíkum fjárveitingatillögum samþyktar til 3. umr. Jeg sje mjer því ekki annað fært en að koma með brtt. við 3. umr., þar sem jeg fer fram á fjárveitingar, sem eru fult eins rjettmætar og margt af því, sem nú þegar hefir verið samþykt.
Jeg þarf ekki að bæta miklu við þær umræður, sem orðnar eru um fjárlögin og brtt. þær, sem fram hafa komið við þau. Þó ætla jeg mjer að minnast á nokkur atriði.
Það er þá fyrst tillaga um styrk til fyrverandi barnakennara Árna Theódórs Pjeturssonar, 500 kr. á ári. uns bann fær einhvern starfa aftur hjá stjórninni. Eins og háttv. þingdm. er kunnugt, sendi þessi maður til síðasta þings kvörtun yfir því, að hann hefði orðið hart úti af völdum stjórnarinnar, þar sem honum hefði ekki verið veitt kennarastaða, er hann hafði gegnt um 25 ára skeið. Hæstv. stjórn rannsakaði málið, og kom það nú fyrir fjvn., sem sendi það svo mentamálanefnd til umsagnar. Athugaði mentmn. málið og lagði til, að Árna yrðu veittar þessar 500 krónur. Ástæðurnar til þess voru þær, að hann var búinn að vera kennari við lítil laun í hálfan þriðja áratug og hafði slitið kröftum sínum við það starf. Er því ljóst, að hann hefir haft talsverðan áhuga fyrir því starfi. Annað mál er það, að deilt hefir verið um, hversu heppilegur kennari hann hefir verið, og hafa margir sett út á hann. Hefir hann verið óreglumaður, sjerstaklega á síðari árum, og er það af þeim orsökum, að hæstv. fyrverandi stjórn veitti honum ekki þennan starfa aftur, enda góður maður, sem sótti á móti honum. Er það ljóst af skjölum þeim, er fyrir liggja, að hæstv. fyrverandi stjórn hefir ekki beitt hann neinum órjetti, þar sem satt mun vera um óreglu hans. Stjórnin verður að fara varlega í það að veita óreglumönnum störf. Segja má nú ef vil vill, að þessi maður sje ekki verri en margir aðrir, sem í embættum sitja, en því er engin bót mælandi fyrir því. Orsakirnar til þess, að nefndin mælir með styrkveitingunni, eru eingöngu vegna þess, hve lengi maður þessi hefir gegnt starfinu, eins og jeg hefi áður tekið fram.
Háttv. fjvn., orðar þannig tillögu sína, að hann haldi styrknum, uns stjórnin veitir honum starfann aftur, eða annan svipaðan. Lítur því svo út, sem hv. fjvn. hafi álitið, að stjórnin hafi ekki gert rjett, er hún veitti Árna ekki stöðuna. Sje svo, að hv. nefnd álíti þetta, er það alls ekki rjett hjá henni. Fyrir því ætla jeg mjer að bera fram tillögu um, að hann fái að njóta þessa 500 kr. styrks alla æfi. Jeg vil ekki, að nokkur stjórn fái ámæli af því, að hún vill ekki setja óreglumann í embætti. Jeg get líka tekið það fram, að Árni Th. Pjetursson mun tæplega geta tekið að sjer kenslu framvegis, sökum sjóndepru. Er mjer kunnugt um, að hann varð nýlega að láta af oddvitastörfum af þeim orsökum, og mun því alls ekki rjett, af þeirri ástæðu, að veita honum kennarastöðuna aftur. Vona jeg því, af þeim ástæðum, sem jeg hefi talið, að brtt. mín verði samþykt.
Þá vil jeg minnast á brtt. hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) við 21. gr. fjárlaganna. Er þá fyrst lán til stofnunar klæðaverksmiðju á Reyðarfirði. Er mjer persónulega kunnugt um, að mjög mikill áhugi er fyrir þessu þar eystra. Er líka Fljótsdalshjerað eitt besta fjárræktarhjerað landsins, og ætti öllum að vera ljóst, hve mikill gróði það væri landinu, að öll ull þaðan væri unnin hjer, en væri ekki send út óunnin, sem verið hefir. Finst mjer líka, að ef þeir þar eystra geta safnað saman 400000 krónum til þessa fyrirtækis, þá lýsi það svo miklum áhuga, að Alþingi standi sig ekki við að neita um lánið. Það hefir verið deilt um staðinn, þar sem verksmiðjan ætti að vera. Fyrir mjer er það ekki neitt aðalatriði, en jeg álít heppilegra, að Alþingi fari ekki að staðbinda það, hvar verksmiðjan eigi að vera. Best að Austfirðingar ráði því sjálfir. Jeg ætla, að ef sundurlyndi mikið yrði út af því, væri ekki úr því bætt með því að ákveða staðinn í lögunum. Það yrði fremur til að blása í eldinn. Við þingmenn N.-M. munum því koma með brtt. við 3. umr., um að í stað „á Reyðarfirði“ komi „á Austurlandi“, en samþykkjum liðinn eins og hann er til 3. umr.
Þá er næsti liður, um lán til Búnaðarsambands Austurlands, til þess að kaupa jarðvöðul. Er þetta alveg í samræmi við það, sem, áður hefir gert verið. Þingið hefir veitt lán til tveggja slíkra vjela áður, og hlaut Norðlendingafjórðungur aðra. Hefir þingið með þessu gengið inn á þá braut að veita lán til kaupa á slíku verkfæri í hvern fjórðung. Er brýn þörf á því, að bændur fái lán til verkfærakaupa.
Þá er seinasta brtt., um 25000 króna lán til byggingar barnaskólahúss á Norðfirði. Mig undrar, að háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) skuli koma með till. í þessu formi, því hún fer vissulega alt of hógværlega í sakirnar. Áður, meðan barnakensla var talin nauðsynleg, var það venja þingsins að veita styrk til skólahúsbygginga minst 1/3 hluta. Þar sem gert er ráð fyrir, að þetta hús muni kosta 50–60 þús. kr., þá hefði ríkissjóður átt að veita 17–20 þús. kr. styrk til byggingarinnar. Enda þótt minni upphæðir hafi þurft áður til að byggja hús, þá hafa þau hækkað í verði sem annað, svo að nú verður að veita hærri styrk en áður, ef í samræmi á að vera.
Hv. þingmaður Dala. (BJ) taldi, að ef þetta lán yrði veitt og eins styrkurinn til sama skóla, þá yrði ríkið að gefa 300000 kr. og veita 11/4 miljón kr. lán til annara landshluta til samskonar bygginga. Vildi hann á þennan hátt gera lánið ægilegt í augum háttv. þdm. Ætla jeg, að margar þær fjárveitingar, sem háttv. þm. Dala. (BJ) hefir barist fyrir fyr eða síðar, sjeu óþarfari. Hann gerði ráð fyrir 50 þorpum, er samskonar skóla þyrftu að byggja. En Norðfjörður er stærsta þorp hjer á landi nú, er ekki hefir bæjarrjettindi. Hefir það vaxið meira nú á síðari árum en flest kauptún önnur, og er því mikil þörf á þessu láni. Við þennan útreikning þingmannsins er það og að athuga, að mörg þorp landsins hafa þegar nægilega stór barnaskólahús. Get jeg ekki ímyndað mjer, að þingið fari að fella svo hógværa tillögu.