12.04.1923
Neðri deild: 40. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 872 í B-deild Alþingistíðinda. (725)
1. mál, fjárlög 1924
Björn Hallsson:
Jeg ætla ekki að fara að vaða elginn um hinar og þessar till., heldur lýsa afstöðu minni til brtt. á þskj. 292, 22. tölul., um lánsheimild til klæðaverksmiðju á Austurlandi. Því ver kom jeg ekki inn í deildina fyr en hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) var að enda ræðu sína; var teptur á búnaðarþingi, og heyrði því ekki röksemdir hans. Háttv. þingdm. muna það, að jeg og háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) yptumst út af þessu í fyrra, ekki af því að við værum ósammála um nauðsynina á stofnun verksmiðju, heldur kom okkur ekki saman um hvar hún ætti að standa. En jeg áleit ónauðsynlegt að ákveða stað þá, og söm er skoðun mín enn. Jeg tók það þá fram, að jeg vildi ekki láta staðbinda verksmiðjuna fyr en verkfræðingur væri búinn að rannsaka þetta og gera tillögur um það. Eins og menn vita, hefir ullarnefndin setið á rökstólum til þess að rannsaka ullariðnaðarmálið, og þá einnig þetta atriði. Skýrsla nefndarinnar er komin til stjórnarinnar, en ekki birt ennþá, og jeg veit ekki, hvað þar er lagt til en eftir samtali, sem jeg átti við verkfræðinginn, mun þessi verksmiðja austur frá kosta yfir 600 þús. kr. Samþykt var áskorun á fjölmennum þingmálafundi á Egilsstöðum að útvega lánsheimild til þessarar verksmiðju. Vil jeg því mæla með þessari tillögu, þótt óvíst sje, að heimildin verði notuð. Jeg er hræddur um, að stór verksmiðja verði erfið fyrir þennan landsfjórðung. Hefi jeg fyrir mitt leyti þá skoðun, að álitlegra sje að stofna til og frá um landið lopa- og kembivjelar, en hafa þær stærri ekki margar. En eftir því sem Guðmundur Hlíðdal sagði mjer, þá telur hann óráðlegt að stofna þessar smávjelar, vegna þess að vinna þar verði altaf dýrari en ef kembi- og lopavjelar sjeu hafðar með stórri verksmiðju. En áreiðanlega gætu smávjelarnar fyr komist á fót, vegna þess að þær kosta þó minna, en gera mikið gagn, t. d. í Þingeyjarsýslu. Jeg er hræddur um, að fjárskortur hamli framkvæmdum, en hins vegar sje jeg ekkert á móti því að samþykkja heimildina, til þess að halda mönnum við efnið. Jeg mun því greiða till. atkv., og það án tillits til, hvar verksmiðjan á að standa. Jeg býst við, að þar verði farið eftir till. verkfræðings síðar. Er líka vís til að koma með brtt. um staðinn síðar.
Þá kem jeg að þúfnabananum. Á sama fundi á Egilsstöðum var einnig skorað á okkur þm. að sjá um, að lánsheimild fengist til þess að kaupa hann, þegar búið væri að búa það mál nægilega undir eystra. Það hefir verið deilt um starfsemi hans, en þótt svo sje, þá sje jeg ekkert á móti því að samþykkja heimildina, því að ekki þarf að óttast að farið verði í nein gönuhlaup austur frá í kaupum vjelar þessarar. En ef það skyldi koma í ljós, að þúfnabaninn reyndist nú vel í sumar, þá er gott að hafa heimildina, ef tiltækilegt þætti þá að ráðast í þetta. En jeg endurtek það, að hv. þm. þurfa ekki að óttast það, að farið verði ógætilega í þessu efni af hálfu Búnaðarfjelags Austurlands.
Háttv. þm. Dala. (BJ) og 1. þm. S.-M. (SvO) eru búnir að blanda síra Magnúsi í Vallanesi í þessar umræður, og af því að mjer fanst þm. Dala. myndi ekki fara þar með rjett mál, vil jeg bæta við það fáum orðum. Jeg vil segja hv. þm. Dala. það, að síra Magnús hefir breytt um skoðun, ef hann vill nú ekki kaupa fleiri þúfnabana. Á aðalfundi Búnaðarsambands Austurlands í vor vildi hann láta sambandið kaupa tafarlaust þúfnabana, en sambandsstjórnin og flestir fundarmenn stóðu í móti og feldu þá tillögu hans. Töldu það ofmikla fjárhættu að lítt rannsökuðu máli. Sömu skoðunar var síra Magnús á þingmálafundi á Egilsstöðum í vetur. Jeg segi honum þetta alls ekki til lasts; þetta var eflaust sannfæring hans. En af því að jeg þekki þetta betur en hv. þm. Dala., vildi jeg leiðrjetta þetta, og hugsa að mjer verði trúað alveg eins vel og honum.
Mjer þykir leiðinlegt að þurfa að fara að kenna kennara við háskólann landafræði nú áður en jeg sest niður. Hann virtist ekki vita, að til væri önnur Múlasýsla á Austurlandi en Suður-Múlasýsla, því hann kallaði mig þm. S.-M. Mjer þætti engin minkun að vera þm.
S.-M., en það er leiðinlegt fyrir háskólann, að kennari þar skuli vera svo fáfróður, og það sá þeirra, sem telur sig jafnan flest vita best. Næst þegar hann talar, hugsa jeg hann þekki engan þingm. austur frá nema vin sinn 1. þm. S.-M. (SvÓ), enda metur hann þann háttv. þm. jafnan mikils og hefir eflaust haft hann í huga, þegar hann nefndi mig.