12.04.1923
Neðri deild: 40. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 881 í B-deild Alþingistíðinda. (729)
1. mál, fjárlög 1924
Magnús Kristjánsson:
Jeg vænti þess, að menn óttist ekki, að það hafi í för með sjer mikla tímaeyðslu, þó að jeg standi upp. Jeg þarf ekki að halda langa ræðu, aðeins lítilfjörleg athugasemd viðvíkjandi fyrirspurn hv. frsm. fjvn. (MP) til hæstv. atvrh. (KIJ), út af lánum til þurrabúðarmanna. Mjer er ekki kunnugt um, að hæstv. atvrh. hafi svarað henni enn. Jeg vænti þess, að hann geri það sem fyrst, svo að það fæli menn ekki frá að greiða brtt. atkvæði.