18.04.1923
Neðri deild: 45. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í B-deild Alþingistíðinda. (745)

1. mál, fjárlög 1924

Sveinn Ólafsson:

Jeg skal takmarka mig með það að halda langa ræðu, fyrst og fremst sökum þess, að tíminn er orðinn naumur, og í öðru lagi vegna þess, að jeg er hálflasinn og illa fær til að sitja hjer lengi, þótt jeg geri það.

Jeg á enga breytingartill. til útgjalda við fjárlögin að þessu sinni. Er það ekki af þeirri ástæðu, að jeg telji mitt hjerað borga svo lítið til ríkissjóðsins, heldur af sparnaðarástæðum, og hefði jeg óskað, að háttv. þingmenn alment gættu þess að sníða kröfurnar dálítið eftir framlagi hjeraða þeirra til sameignarsjóðsins. — Suður-Múlasýsla borgar einna mest af öllum sýslum til almennings þarfa, og gerir það kröfurnar minstar. (SSt: Norður- Ísafjarðarsýsla). Norður-Ísafjarðarsýsla, segir háttv. þm. (SSt); það má vera, að hún borgi eins mikið, en um það get jeg ekki sagt í svip, því að jeg hefi ekki landsreikninginn fyrir mjer.

Sú eina brtt., sem jeg á við fjárlögin nú, er á þskj. 369. XXXIII. liður. Fer hún fram á, að veitt verði klæðaverksmiðju á Reyðarfirði alt að 160000 kr. lán, þó ekki yfir 1/3 stofnkostnaðar.

Samskonar tillögu og þessa tók jeg aftur við 2. umr., sumpart vegna þess, að mjer þótti hún of há, og einnig af því, að þá var nýkomið álit ullariðnaðarnefndarinnar. En nú geri jeg ráð fyrir, að háttv. þingmenn sjeu búnir að kynna sjer það og sjái, að jeg hefi farið rjett með álit nefndarinnar, er jeg gat þess við síðustu umræðu fjárlaganna hjer í þessari háttv. deild, en jeg var þá vændur um af einum háttv. þingdeildarmanni að hafa rangfært það.

Eins og háttv. deildarmönnum mun nú eflaust kunnugt, gerir ullariðnaðarnefndin ráð fyrir, að heppilegast muni verða fyrir ullariðnaðinn í landinu, að stofnuð verði ein allsherjar klæðaverksmiðja fyrir alt landið, í Reykjavík eða nágrenni hennar. En nefndin lætur jafnframt í ljósi, þótt ekki sje það með ákveðnum orðum, að þess muni verða langt að bíða, að slík verksmiðjuhugmynd komist í framkvæmd, og er það vitanlega alveg hárrjett, því að nærri er óhugsandi, að bændur um land alt verði svo hrifnir af þessari allsherjarhugmynd, að þeir fari að leggja árlega til hliðar töluvert af ullarframleiðslu sinni, til þess að aura saman í þessa allsherjarverksmiðju á mörgum árum, svo sem nefndin virðist ætla, og koma upp verksmiðjunni með margra ára söfnun. Hugmynd þessi er að vísu á bjartsýni bygð og góð, það sem hún nær, en óhugsandi er annað en hún þurfi langan tíma til þess að komast í framkvæmd, og eftir því seinlæti má ekki bíða, þegar þörfin rekur svo hart á eftir um innlenda dúka og takmörkun á innflutningi útlendrar dúkavöru.

Þá getur og nefndin þess, að ef ekki sjeu tiltök að koma þessari allsherjarverksmiðju upp, þá telji hún þó ýmsa aðra staði álitlega fyrir minni ullarverk smiðju, og nefnir meðal þeirra staði á Austurlandi. Og jeg skal geta þess aftur, sem jeg gat um við 2. umr. fjárlaganna hjer í deildinni, að þarna austurfrá er þegar vaknaður mikill áhugi fyrir þessu máli, því að búið er að safna í loforðum allmiklu fje í þessu skyni. Einnig vakir það mjög alment fyrir hugsandi mönnum eystra, að hefta verði, ef unt er, viðskiftin við Noreg um dúkavinslu, en þau hafa þangað dregist mjög hin síðari ár, og fara á þann hátt árlega allmiklar fjárhæðir út úr landinu. Það má vel vera, að fyrirtæki þetta komist ekki í framkvæmd á næsta ári, þótt lán þetta verði veitt í fjárlögunum, en jeg lít svo á, að það mundi nú þegar verða til þess að ýta undir, að fje yrði lagt fram á móti annarsstaðar frá, og í þeirri von ber jeg tillöguna fram. Gæti því svo farið, að upphvatningin, sem lánsfyrirheitið gæfi, hrinti fyrirtækinu af stað áður langt liði, af því að áhugi er mikill og almennur fyrir.

En ef háttv. þingmenn eru sannfærðir um, að allsherjarklæðaverksmiðju-hugmyndin sje svo góð, að þessari tillögu sje þar af leiðandi ekki sinnandi, þá er alveg rjett, að það komi hjer fram ótvírætt, og menn fái þá tækifæri til að greiða atkvæði um tillögu mína. Og verði hún ekki samþykt, þá hopar þingið frá því, sem það gerði í fyrra, er það hjet láni til ullarverksmiðju eystra, þótt lítið væri. Jeg á svo ekki fleiri brtt. við fjárlagafrv. við þessa umr.

En þó jeg vilji takmarka mig sem allra mest, þá get jeg samt ekki með öllu gengið fram hjá einstökum liðum á þskj. 369, því mjer þykja óvenjumargar fjárbeiðnir hafa slæðst þar inn, sem vitanlega skiftir ekki svo miklu máli peningalega hver um sig, en þær gefa sumar það fordæmi, sem sjeð kann að verða eftir síðar.

Vil jeg þá fyrst minnast á XXI. brtt. á áðurnefndu þskj. Þar ræðir um 500 kr. styrk til hannyrðakenslu vestur í Dölum. Hygg jeg þar endurreista þá dönsku „kunstflid“, sem fjell hjer útbyrðis við 2. umr. Að vísu fjekk kona þessi styrk fyrir tveimur árum, en þó með mjög litlu fylgi, og hefði því ekki átt að koma aftur.

Á sama þskj. er einnig beðið um styrk fyrir einar þrjár konur aðrar, sem eflaust væri gustuk að hjálpa. En hvað margar ætli sjeu ekki annarsstaðar á landinu, sem líkt stendur á fyrir og tekið gætu móti slíkri hjálp? Ef nú er farið að veita nokkrum konum styrk á þennan veg, þá má búast við nokkrum tugum þurfandi ekkna á næstu fjárlög.

Þá vil jeg snúa mjer að IX. brtt. á þskj. 369, frá háttv. 1. þm. Reykv. (JakM), sem fer fram á 100 þús. kr. styrk frá ríkissjóði, til þess að byggja alþýðu- og barnaskóla í Reykjavík, og tengir þessa till. við þá 6000 kr. upphæð, sem heitin var til byggingar barna- og alþýðuskólanum á Nesi í Norðfirði við 2. umr. fjárlagafrv. En svo leggur háttv. þm. það til, ef styrkurinn til Reykjavíkurskólans verði feldur, þá falli niður liðurinn um styrkinn til skólans á Nesi í Norðfirði. Háttv. þm. bjóst við, að jeg mundi líta á þessa till. eins og illgirnislega árás á Nesskólann og mig, en svo er ekki. Jeg lít ekki svo á, að þetta sje gert í neinum illum tilgangi, heldur sje þetta kompánlegt tilboð um hrossakaup, sem vitanlega geta oft verið afsakanleg og rjettmæt, þótt talin sjeu þau miður heiðarleg. En það, sem við þessi hrossakaup er að athuga, er það, að hjer er farið fram á mjög ólík skifti, farið fram á að fá stríðaldan gæðing fyrir útlifaðan jálk, ef svo mætti segja. Annars vegar er hjer að ræða um stóra fjárfúlgu til viðbótarbyggingar þeim barnaskóla, sem stærstur er, vandaðastur og best útbúinn á landinu, en hins vegar litla upphæð til að gera nothæfan lítinn barna- og unglingaskóla í tiltölulega fjölmennu þorpi, sem beðið hefir og setið hjá, meðan fullnægt var þörfum annara kauptúna um skólabyggingar, og á nú að gjalda þess, að kröfur þess hafa verið hógværari en annara.

Það á eigi við að bera skólaþörf Rvíkur saman við þörf afskektra kauptúna úti á landshornum, sem ekkert hefir verið gert fyrir. Í Reykjavík eru allar helstu mentastofnanirnar. Sakar því minna þar en annarsstaðar, þótt barnaskólinn hafi takmarkað rúm, því að ýmsir aðrir skólar bæta það upp, og má þar nefna Landakotsskóla, skólann í Bergstaðastræti, skóla einstakra o. fl., ekki síst það, að sjálfur mentaskólinn er notaður fyrir unglingaskóla af Reykvíkingum.

Till. háttv. þm. Ísaf. (JAJ) um 15000 kr. styrk til byggingar barnaskóla á Ísafirði skoða jeg hliðstæða við tillögu háttv. 1. þm. Reykv. — Hún er af sömu rót runnin og jafnónærgætnisleg og hin.

En styrkur til barnaskólabygginga úr ríkissjóði hefir að þessu ætíð verið miðaður við barnaskóla utan kaupstaða, þar sem erfiðleikarnir á að fullnægja fyrirmælum fræðslulaganna um skólahald hafa verið mestir, en í kaupstöðum hafa þeir aldrei verið styrktir beint, heldur aðeins með lánum. Utan kaupstaða hafa þeir hins vegar verið styrktir að 1/3 byggingarkostnaðar, en hjer er aðeins farið fram á 1/10, svo að ekki getur kallast, að djúpt hafi verið tekið í árinni um þessa fjárveitingu. Aftur á móti er hjer að ræða um tvær hliðstæðar tillögur minni tillögu. Á jeg þar við till. frá háttv. 1. þm. N.-M. (ÞorstJ), um 2000 kr. styrk til að koma upp barnaskólahúsi á Eyrum í Seyðisfirði, og till. háttv. þm. V.-Sk. (LH), um styrk til viðbótar barna- og unglingaskólabyggingar í Vík. Báðar þessar till. eru í beinu framhaldi af stefnu undanfarinna ára. Því að Alþingi hefir nú um mörg ár, þangað til í fyrra, veitt nokkra upphæð, um 20000 kr., til styrktar slíkum skólabyggingum.

Það er rjett, að háttv. 1. þm. Reykv. studdi mína brtt. hjer við 2. umr. fjárlagafrv. um þennan styrk, og var því eigi nema mannlegt, að hann byggist við því, að jeg mundi verða til þess að styðja till. hans, „því æ sjer gjöf til gjalda“.

En jeg sje mjer það ekki fært, sökum þess, að hjer er bæði um brot á reglu undanfarinna ára að ræða, og fjárhagurinn leyfir það heldur ekki; auk þess verð jeg að neita því, að till. hans og hv. þm. Ísaf. hafi við þá sanngirni að styðjast sem óskir vor hinna um styrk til skólabygginga.

Jeg hefði viljað drepa á margt fleira, en verð að sleppa því sökum þess, að jeg er ekki vel heill á þessari stundu, þótt jeg reyni til að sitja hjer í þeirri von, að 3. umr. um fjárlagafrv. verði lokið í kvöld.

Þó vil jeg geta þess, að háttv. frsm. fjvn. hefir gleymt að geta um brtt. mína við 12. gr. 12, sem jeg tók aftur við 2. umr., því jeg sje, að háttv. nefnd hefir ekki tekið hana upp. Jeg held, að þetta hafi verið óheppilegt, sökum þess, að það getur vilt niðurstöðu fjárlaganna. — Veit jeg, að þurfa muni miklu hærri upphæð til berklavarna en þær 75000 kr., er stjfrv. áætlar, og þætti mjer ekki ólíklegt, að þurfa mundi alt að 200000 kr. Vil jeg taka þetta fram til þess að minna á, að hjer er óvarlega áætlað og að afleiðingin verður röng niðurstaða fjárlaganna, meiri tekjuhalli á fjárlögunum en tölurnar sýna.