18.04.1923
Neðri deild: 45. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 986 í B-deild Alþingistíðinda. (765)

1. mál, fjárlög 1924

Hákon Kristófersson:

Það verður ekki nema lítið, sem jeg segi að þessu sinni. Það hafa í deildinni komið fram ásakanir í garð samgöngumálanefndar, og ekki að ástæðulausu. Það kom mjer á óvart, að þm. höfðu ekki haft ástæðu til að kynna sjer nokkrar till., sem nefndin hafði sent frá sjer, og var það á móti vonum mínum um hv. frsm. nefndarinnar (ÞorstJ). Jeg lít svo á, að þm. eigi að fá kost á að kynna sjer álit og till. frá nefndum. Að vísu hefir hv. fjvn. sent frá sjer till., sem ekki hafa komið til þingmanna fyr en seint og síðar meir, en það er engin afsökun fyrir hv. samgmn. Jeg skildi svo orð hv. frsm. fjvn. (MP) viðvíkjandi símalínum, að þeir þm., sem fram hefðu komið með till. í þá átt, hefðu gert sitt til, að þessi sími ætti að vera í símalögunum. Jeg hefi máske misskilið hann. Jeg skal taka það fram, að bæði jeg og fleiri hv. þm. vita, að það hefir verið komið símalínum inn í símalögin, sem ekki hafa komið hjer til umræðu.

Hv. frsm. (MP) mintist á þessa fátæku ekkju, sem jeg fór fram á, að veittar yrðu 200 kr., og taldi það vera varhugavert fordæmi. Jeg skal ekki um það segja, en jeg skil ekki, að þingið gæti ekki sett stíflu fyrir þann straum af styrkbeiðnum, er kannske mundi af þessu leiða. Mjer virtist, ef jeg hefi skilið rjett orð hans, að hann vildi fúslega ganga inn á styrkveitingar til annara kvenna hjer, og er í rauninni ekkert við því að segja, en bágt á jeg með að skilja samræmið. Og það sýnir sig sjálft, að það er erfitt að skilja, hvar hv. fjvn. vill draga markalínuna á milli. Þótt svo verði að líta á, að hreppstjóri, sem hefir þjónað í 40 ár, sje minniháttar maður en dyravörður við opinbera stofnun, þá er varla sá stigmunur á þeim.