03.05.1923
Efri deild: 54. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1061 í B-deild Alþingistíðinda. (815)
1. mál, fjárlög 1924
Frsm. Einar Árnason):
Jeg þarf ekki fyrir hönd nefndarinnar að tala lengi um þetta mál að svo komnu. Brtt. þær, sem nefndin flytur, eru hvorki margar nje stórvægilegar. Fyrsta brtt. nefndarinnar er um aðstoðarlækninn á Ísafirði, sem, eins og hv. deild rekur sjálfsagt minni til, hefir verið hjer áður til umræðu. Þá var borin fram brtt. um að afnema þetta embætti, en aðrir andmæltu því og sögðu, að þetta væri lögfest starf, sem ekki yrði lagt niður án þess að maðurinn, er því gegndi, fengi eftir sem áður sína þóknun. Nefndin gat þó ekki fallist á þessar skoðanir og ber því fram þessa brtt., sem fer fram á, að þessum aðstoðarlækni sjeu greidd laun eftir hinum upphaflegu lögum, eða 800 kr., er með dýrtíðaruppbót verður 1280 kr. á ári. Nefndin byggir þessa till. sína aðallega á því, að embætti þetta sje óþarft, og eftir þeirri reglu, að láta ríkissjóð aldrei greiða fje til ónauðsynlegra starfa.
2. brtt. er aðeins örlítil athugasemd, sem skýrir sig sjálf, enda er hún í samræmi við þá athugasemd, er stendur við liðinn um símalagningar.
Þá er brtt. um lendingarbót í Bás, sem byggist á því, að við nánari upplýsingar hefir nefndin fengið vitneskju um, að hjer sje aðallega um vegabót að ræða; það þarf sem sje að ryðja veg yfir stórgrýtisurð til þess að komast að og frá lendingunni. Af þessum ástæðum vill nefndin færa þennan lið undir þá grein fjárlaganna, sem fjallar um vegalagningar, og telur það nánast heyra til sýsluvegum. Hún leggur því til, að helmingur kostnaðar sje greiddur úr ríkissjóði.
Nefndin hefir ekki getað fallist á að greiða Árna Th. Pjeturssyni 500 kr. á ári hverju, þangað til stjórnin getur útvegað honum hið gamla starf hans eða annað álíka; hún kýs heldur að hafa upphæðina í eitt skifti fyrir öll 1200 kr. Þá leyfir nefndin sjer að bera fram brtt. um styrk til hljóðfæraskólans, sem stofnaður var hjer í Reykjavík á síðastliðnu hausti. Hann sótti um 5000 kr. styrk, en nefndin treysti sjer ekki til að fara svo langt. Hún hefir sett 1200 kr. Það er að vísu alllítið, en mun þó nægja upp í húsaleigu að minsta kosti. Í þessu sambandi finst mjer rjett að geta gjafasjóðs Guðjóns heitins Sigurðssonar, sem ætlaður var til styrktar hljóðfærasveitinni í bænum. Nú hefir það komið í ljós, að það er ómögulegt fyrir skólann að fá styrk úr þessum sjóði, vegna þess, að skipulagsskrá hans leyfir það ekki. Mjer finst því ekki úr vegi, að skipulagsskráin sje athuguð og breytt í það horf, að skólinn geti notið styrks úr sjóðnum.
Nefndin hefir borið fram litla brtt. við liðinn um fjárveitinguna, sem ætluð er Þórarni fiðluleikara Guðmundssyni til að veita utanbæjarpiltum ókeypis tilsögn í fiðluspili. Sú brtt. fer fram á, að kennaraefni gangi fyrir öðrum umsækjendum um tilsögn í fiðluleik. Það er nú svo, að söngur er kendur við ýmsa barnaskóla úti um land, og væri því kennaraefnum hagkvæmt að geta fengið þarna ofurlitla undirstöðumentun. Í sambandi við þetta vil jeg minnast á brtt. frá hv. 2. þm. G K. (BK), þar sem hann vill orða brtt. nefndarinnar lítið eitt öðruvísi, sem sje, að kennaraefni skuli sitja fyrir, er hann tekur nýja nemendur. Þetta liggur í raun og veru í brtt. nefndarinnar, enda ætlast hún ekki til þess, að þeir, sem þegar eru byrjaðir á náminu og ætla að halda áfram, væru látnir víkja. Annars getur vel verið, að þessi brtt. sje skýrari en brtt. nefndarinnar. Báðar segja í raun og veru það sama, og nefndin amast ekkert við þessari brtt. hv. þm.
Þá er brtt. um launaupphæð ullarmatsmanna og kjötmatsmanna. Það er aðeins leiðrjetting: hafði verið reiknað skakt út, og þarf jeg ekkert um það frekara að segja.
Viðvíkjandi byggingu Siglufjarðarbryggju vill nefndin, að landsstjórnin hafi verkfræðilegt eftirlit með því, að verkið sje vel af hendi leyst. Það er gert til varúðar, þar sem svo mörg hafnarvirki hjer hafa reynst ótraust.
Þá er ein brtt. eftir, á þskj. 535,IV, um sjúkrastyrk til Elínar Sigurðardóttur, 1000 kr. Þessi kona er í fjáraukalögunum með styrk í þessu skyni, og lítur nefndin svo á, að ef Alþingi vill hjálpa þessari konu í veikindum hennar, þá megi það ekki kippa að sjer hendinni of fljótt. Það er engin von á því, að hún geti náð verulega góðum bata úr þessu, en þó er von um nokkurn bata, ef hún getur átt þolanlega daga. Um 20 ár hefir hún verið berklaveik, en starfað þó af og til að póstafgreiðslu og barnakenslu af mesta dugnaði. Nú er hún sem stendur á Franska spítalanum, og þar er árskostnaðurinn alveg geysilegur. Er það nú ósk hennar að geta komist af spítalanum, enda segja læknar, að hún megi það, ef hún getur fengið samastað, þar sem hún geti átt þolanlega daga og þurfi lítið á sig að reyna fyrst um sinn. Nefndin mælir eindregið með, að styrkurinn verði veittur henni, svo að hún geti fengið sæmilegt húsnæði úti í bænum.
Nú held jeg, að jeg hafi minst á þær brtt., sem mestu máli skifta, en jeg sje ekki ástæðu til að fara út í brtt. einstakra þingmanna, fyr en þeir hafa fært rök fyrir þeim og gefið mjer ástæðu til að minnast á þær.