03.05.1923
Efri deild: 54. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1071 í B-deild Alþingistíðinda. (820)
1. mál, fjárlög 1924
Jón Magnússon:
Á þessari öld hefir verið rætt og ritað mikið hjer á landi um fræðslumál og unnið að því að koma þeim í það lag, er menn hugðu best. Hafa framkvæmdir í þessu efni verið miklar. Rjett eftir aldamótin, eða árið 1901, sótti Guðmundur Finnbogason, er þá hafði nýlega lokið embættisprófi í heimspeki, um styrk úr landssjóði til þess að kynna sjer uppeldis- og mentamál erlendis, í því skyni að afla sjer svo víðtækrar þekkingar og svo margra upplýsinga, að á þeim mætti byggja skynsamlegar tillögur um nauðsynlegar endurbætur á uppeldi og mentun hinnar uppvaxandi kynslóðar“. Alþingi tók þessu erindi fegins hendi og veitti Guðmundi Finnbogasyni í þessu skyni 2000 kr. hvort árið 1902 og 1903, eftir tillögu fjárlaganefndar neðri deildar, „að því tilskildu, að hann á eftir leggi fram árangurinn af rannsóknum sínum og komi fram með ákveðnar tillögur um það fyrirkomulag á uppeldis- og mentamálum vorum, sem hann telur heppilegast“. Í fjárlögunum fyrir árin 1904–1905 voru hinum sama manni svo veittar 2200 kr. hvort árið. „til að kynna sjer alþýðufræðslu og mentunarástand hjer á landi“.
Árangurinn af þessum rannsóknum utanlands og innan — að því er barnafræðsluna snertir — kom svo fram með ástæðum og athugasemdum, sem Guðmundur Finnbogason sendi þáverandi ráðherra. Hannesi Hafstein, veturinn 1904 —1905. Frumvarp þetta. breytt að vísu, en þó ekki verulega í aðalatriðum, lagði ráðherra fyrir þingið 1905, eftir að hafa borið það undir ýmsa menn í nánd við Reykjavík, sem fengist höfðu við alþýðufræðslu, þar á meðal kennarana við Flensborgarskólann í Hafnarfirði.
Á því þingi sætti frumvarpið mikilli rannsókn og athugun í efri deild, og samdi nefndin þar mjög ítarlegt nefndarálit.
Eins og tekið er fram í áliti hennar, voru helstu nýmæli frumvarpsins þessi:
Að heimta að börn 10 ára að aldri sjeu læs og skrifandi, og um leið að hækka nokkuð kröfur þær, er gerðar voru til fræðslu barna á fermingaraldri í þágildandi lögum,
að veita fræðslunni aðhald og eftirlit með því að lögbjóða árleg próf fyrir börn á 10–14 ára aldri,
að setja skilyrði fyrir styrkveitingu úr landssjóði til barnafræðslu, þar sem meðal annars væri ákveðið lágmark launa barnakennara,
að fela sjerstökum skólanefndum að sjá um og hafa eftirlit með barnafræðslu í hverjum hreppi og kaupstað um alt land,
að leggja yfirumsjónina með barnafræðslunni í hendur stjórnarráðsins, er hefði sjer til aðstoðar umsjónarmann, og
að koma á almennri skólaskyldu um alt land, bæði til sveita og í kaupstöðum, fyrir börn á 10–14 ára aldri.
Nefndin í Ed. og deildin sjálf fjelst á öll þessi nýmæli, nema hið síðasta. Var það talið skilyrði fyrir því að lögbjóða skólaskyldu, að unt sje um leið alstaðar að vísa á góða skóla, sæmilega úr garði gerða að kenslukröftum, húsrými og öllum útbúnaði, er geti tekið á móti öllum börnum á skólaaldri og veitt þeim fræðslu nógu langan tíma á hverju ári. — Þetta var þá talið eiga langt í land. Nefnd Ed. kvað því ekki kominn tíma til að lögbjóða almenna skólaskyldu, síst til sveita, þar sem heimafræðslan væri þá enn, og yrði óefað um langan aldur, helsti grundvöllur alþýðumentunarinnar. Því var ákvæðið um skólaskylduna felt burtu, en í þess stað sett ákvæði um fræðslusamþyktir í hjeruðum.
Neðri deild fjelst á þessa breytingu á frumvarpinu, ekki af því, að því er virðist, að skólaskylduákvæðið í frumvarpinu væri ekki í sjálfu sjer talið rjett, heldur af hinu, að ekki væri sem stæði hægt að fá nóg af góðum kennurum, með því að ekki væri til neinn almennilegur kennaraskóli. Frumvarpið var svo felt í Nd. með rökstuddri dagskrá, og þess jafnframt óskað, að stjórnin legði málið fyrir næsta þing. En þingið veitti þá 2500 kr. á ári til umsjónar með fræðslumálum landsins. Var núverandi fræðslumálastjóri, þá skólastjóri við Flensborgarskólann, Jón Þórarinsson, fenginn til aðstoðar stjórninni við umsjónarstarf þetta.
Ráðherra, sem þá var enn Hannes Hafstein, lagði málið aftur fyrir Alþingi 1907, svo að segja óbreytt frá því, er það hafði verið lagt fyrir þingið 1905. Hafði milli þinga verið leitað álits hjeraðsfunda og sýslunefnda um málið. Þetta álit reyndist mjög á reiki og lítið á því að byggja, eins og ljóslega var sýnt fram á á þinginu. En nefndin í Nd. og deildin sjálf felst nú í einu hljóði á frumvarp stjórnarinnar, felst alveg á grundvöll þann, er frumvarpið er bygt á. Um það farast nefndinni þannig orð:
„Frumv. stjórnarinnar er bygt á þeirri grundvallarsetningu, að þjóðfjelaginu sje skylt að sjá um, að hvert einasta barn þjóðarinnar eigi kost á að njóta þeirrar mentunar, sem nauðsynleg er talin hverjum manni.
Í frumv. eru ákveðnar kröfur um kunnáttu barna, sem eru fullra 14 ára. En jafnframt því að gera þessar kröfur til einstaklinganna skyldar frv. þjóðfjelagið — sveitarsjóðina og landssjóð með vissum skilyrðum — til þess að styðja að því með fjárframlögum, að foreldrar og framfærendur barnanna geti fullnægt fræðslukröfunum“.
„Ekkert getur, að voru áliti“. segir nefndin enn fremur, „verið sjálfsagðara nje sanngjarnara“.
Ed. segist að vísu, eða nefndin þar, ekki hafa breytt áliti sínu frá 1905, en gengur þó í rauninni mjög langt til þess að mæta stjórninni og Nd. í aðaldeilumálinu, skólaskylda eða fræðslusamþyktir. Hún viðurkennir, að heimafræðslunni hafi hnignað, hefir ótrú auðsjáanlega á farkenslu og telur „hið mesta óráð að lögbjóða skólaskyldu annarsstaðar en þar, sem vísa má börnunum á sæmilegan fastan skóla, er veiti þeim að minsta kosti 6 mánaða frðslu á ári,“
Nefndin þessi lagði það til, til samkomulags, að lögleiða skólaskyldu í kaupstöðum og þeim kauptúnum, er væru sjerstök hreppsfjelög, og enn fremur, með ákveðnum skilyrðum, í þorpum og hverfum, sem ekki sjeu sjerstök hreppsfjelög. Á þessum grundvelli, sem í rauninni var viðurkenning og að miklu framkvæmd á grundvelli stjórnarfrv., urðu svo sættir og frv. samþykt.
Á hinu sama þingi (1907) var stofnaður sjerstakur kennaraskóli í Reykjavík. Stjórnin bar fram málið um stofnun sjerstaks kennaraskóla, jafnframt barnafræðslufrumvarpinu 1905 og 1907, með því, að Hannes Hafstein var þeirrar skoðunar, og reyndar flestir, er um þessi mál fjölluðu, að ekki væri von um verulegar bætur á barnafræðslunni, nema aldir væru upp sæmilega mentaðir barnakennarar, sem flestir og sem fyrst, og að þessi tvö frumvörp yrðu því að fylgjast að og verða að lögum jafnhliða.
Fyrir Alþingi 1911 var af þáverandi ráðherra lagt fram frv. um breyting á barnafræðslunni, í þá átt að draga úr henni, en leggja meiri áherslu á ungmennafræðslu, með ungmennaskóla að minsta kosti í hverri sýslu. Frumvarp, er kom fram í Ed. um þetta, var felt þar með rökstuddri dagskrá. Síðan var í nokkur ár kyrt um barnafræðslulögin á þingi, eða þangað til 1917.
Neðri deild Alþingis 1917 skoraði á stjórnina að rannsaka uppeldismál og fræðslumál landsins, og fal stjórnin fræðslumálastjóra að rannsaka og athuga þetta mál í samráði við kennendur kennaraskólans. Það, sem Nd. meðal annars óskar spurt um, er það, „hvort eigi muni rjettara að láta skólaskyldu koma á menn 16–20 ára, en láta svo forelda og hjeruð sjá fyrir því, að börn hafi tilskilda þekkingu undir staðfestinguna, en landið kosti ekki annað við þá kenslu en eftirlit með prófum.“
Fræðslumálastjóri sendi fyrirspurnir um málið til allra skólanefnda, fræðslunefnda, presta, prófasta, kennara, margra prófdómenda og einstakra manna. Yfirgnæfandi meiri hluti þeirra manna er svöruðu (ca. 350), þeirra manna er helst höfðu fengist við fræðslumálin, fóru í þá átt, að ekki beri að breyta þeirri skipun, sem nú er um skólaskyldu á barnsaldri.
En það kom í ljós við þessa eftirgrenslan, að mjög mikið skorti á, að barnafræðslan væri í því lagi, sem vera þurfti; sjerstaklega er þetta víða kent bágbornum hag barnakennara, og þá jafnframt eða þar af leiðandi óhæfum kennurum.
Jeg var þá kenslumálaráðherra, og var mjer ljóst, að hjer var bent á galla, er bráðnauðsynlegt var úr að bæta. Launakjör kennara voru svo bágborin, víðast hvar, að engi von var til þess, að hæfir menn veldust í barnakennarastöðu, og þótt einhver nýtur maður kynni að leggja þetta fyrir sig um stund, þá mundi hann hverfa frá, ef hann ætti annars kost. Jeg tók því upp frumvarp um laun kennara, er kennarafjelag landsins hafði samið og sent Alþingi 1917, og lagði fyrir Alþingi 1918. Voru kröfur kennarafjelagsins fyrir kennaranna hönd mjög hóflegar. Frumvarp þetta náði þó ekki fram að ganga á því þingi, en jeg lagði það aftur fyrir þingið 1919, og var það þá samþykt án verulegra breytinga. Alþingi viðurkendi þá, að hæfir barnakennarar væri aðalskilyrðið fyrir sæmilegri barnakenslu hjer sem annarsstaðar og að óhugsandi væri að fá hæfa menn til þess að gera barnakenslu að lífsstarfi sínu, nema þeir hefðu viðunanleg launakjör.
Alþingi hið sama ár, eða sjerstaklega Nd., krafðist enn frekari rannsóknar og athugunar á fræðslumálum landsins, og kvaddi ríkisstjórnin sjer til aðstoðar í þessum efnum þá prófessorana Guðmund Finnbogason og Sigurð Sivertsen. Þeir luku þessari rannsókn og komu fram með tillögur sínar, hinar síðustu um áramót 1921–1922, og hafa þær verið lagðar fyrir þingið flestar. Af skýrslu þessara manna sjest það, að það er svo langt frá því, að þeir, sem mest ætti að mega treysta á í þessu efni, vilji láta opinbera skyldukenslu á barnsaldri falla niður, þá sem nú er, að mikill hluti þeirra telur rjett, að hún byrjaði á enn yngra aldri. Þegar fræðslulögin, sem nú eru í gildi, voru á ferðinni í þinginu, þá var það, eins og áður er sagt, heimafræðslan, sem einstökum mönnum var svo hughaldið um. Þegar um aldamótin var það játað af þeim mönnum sjálfum, sem mest vildu á henni byggja, að heimafræðslunni væri víða orðið mjög ábótavant. Síðan hefir orðið sú breyting á högum þjóðarinnar, að það er hið mesta óvit að byggja barnafræðsluna á heimakenslu aðallega. Og þegar það er sagt, að barnakenslan sje svo ljeleg í skólunum, börnin læri ekkert, þá (er það yfirleitt rangt. Hin íslenska þjóð stendur eflaust ekki að baki annara mentaðra þjóða í bóklegum fræðum. Öðru máli gegnir máske um verklega kunnáttu.
Á þinginu í fyrra var til meðferðar frumvarp um barnafræðsluna, bygt á rannsóknum þeirra prófessoranna Guðmundar Finnbogasonar og Sigurðar Sivertsens, og hafði jeg lagt það frv. fram. Það gerði mjög litlar breytingar á barnafræðslunni, gerði hana aðeins lítið eitt fyllri. Þessu frv. var ekki sint, en í stað þess samþykt frv., er dró heldur úr barnafræðslunni. Jeg var þá farinn af þinginu. Breytingin var að vísu ekki mikil í sjálfri sjer, en hún var að minni skoðun skaðleg. Hún markaði afturför, í stað þess að þangað til hafði barnafræðslunni þokað fram á veg. Þrátt fyrir það, þótt þetta óhapp vildi til í fyrra, þá hygg jeg nú, að óhætt sje að byggja á því, að skólafræðsla barna til fermingaraldurs sje komin á svo fastan fót, að henni verði ekki haggað, þrátt fyrir mjög vanhugsaðar árásir á hana. Og þetta verður enn fremur að hafa fyrir augum, er vjer erum að íhuga það, hvað ríkissjóður getur lagt af mörkum til mentamála, að ríkið getur ekki varpað af sjer þeirri byrði, er það hefir tekið á sig vegna barnafræðslunnar, heldur mun sú byrði fremur þyngjast. Það þýðir eflaust ekki hjeðan af að fara fram á það, að sveitarfjelögin skuli bera þessa byrði aðallega, eins og tíðkast Í öðrum löndum.
Þá koma sjerskólarnir, sem eru og hafa verið ríkisskólar. Þeir verða það eflaust áfram allir eða sama sem allir: Háskólinn, hinn almenni mentaskóli, gagnfræðaskólinn á Akureyri, kennaraskólinn, stýrimannaskólinn, vjelstjóraskólinn, búnaðarskólarnir, daufdumbraskólinn og Eiðaskólinn. Enn má nefna yfirsetukvennaskólann. Þessum skólum verður ríkið eflaust að halda uppi, bæta og gera fullkomnari, eftir því sem efni leyfa. Þó held jeg, að vel mætti komast af með einn búnaðarskóla, en gera hann því betur úr garði. Búnaðarhættir eru ekki svo ólíkir hjer á landi, að ekki megi þess vegna hafa einn skóla, og samgöngur eru svo, að Norðlendingar og Austfirðingar gætu vel sótt skólann á Hvanneyri. Aftur á móti býst jeg við, að ekki verði komist hjá því að gera kvennaskólann í Reykjavík að ríkisskóla. Hann er hvort sem er kostaður svo að segja eingöngu af ríkinu. Hvernig fara ætti með Blönduósskólann, það skal jeg ekki um tala. Jeg ætla heldur ekki að tala verulega um húsmæðrafræðsluna. Jeg hefi ekki vel vit á því máli. Yfirleitt hygg jeg, að mentun karla og kvenna eigi að vera sú sama og fengin að mestu í samskólum; auðvitað þarf að vera einhver skóli eða einhverjir skólar fyrir konur sjerstaklega, en ekki nema fáir, mjög fáir. Meðan konur búa aðallega til mat og vinna fleira sjerstaklega að heimastörfum, þurfa þær að hafa tækifæri til að kynna sjer það, en það er mjög mikið efamál, hvort ríkið á að sjá fyrir því, nema að litlu leyti. Þá hygg jeg rjettast væri, að ríkið sæi um fræðslu í verslun, í einu bæði fyrir kaupmenn og samvinnumenn eða kaupfjelög, líklega helst í sambandi við háskólann. Þá geri jeg ráð fyrir því, að ríkið þurfi að sinna meir en gert hefir verið verklegri kenslu, annari en hinni sjerstöku kvennafræðslu.
Eins og á er vikið, hygg jeg, að ríkissjóður komist ekki undan því að sjá um þá fræðslu, er að framan er um getið, og þá kem jeg loks að efninu, því að þetta, er jeg hefi sagt, er í rauninni ekki annað en formáli, og skal jeg þá reyna að hafa því færri orð um aðalefni máls míns sem formálinn var lengri. En af því, er á eftir fer, mun það sjást, hvers vegna mjer varð svo skrafdrjúgt um barnafræðsluna. Það kom nefnilega til af því, að unglingafræðslan, eða hin almenna framhaldsfræðsla eftir barnafræðsluna, hefir svo sem kept við barnafræðsluna. Fyrir mínum augum er þá þetta aðalatriðið, eins og nú víkur við: Að hve miklu leyti getur ríkið tekið að sjer unglingafræðsluna?
Það var minst á það, að 1911 bar þáverandi ráðherra, Björn Jónsson, fram frumvarp um það að skifta á unglingafræðslu og barnafræðslu, þannig, að ríkið sæi sjerstaklega um unglingafræðsluna, en heimilin um barnafræðsluna. Þessi sama stefna hefir hvað eftir annað gægst upp með höfuðið á síðari árum, en jeg ætla samt ekki að orðlengja um þessa baráttu, ef svo mætti kalla, milli barnafræðslu og unglingafræðslu, því að jeg tel barnafræðsluna, þrátt fyrir víxlsporið í fyrra, komna á fastan fót.
Það, sem þá er um að ræða, er það, hvort og hvernig eigi að hafa unglingafræðslu eða ungmenna í viðbót við barnafræðsluna, með öðrum orðum framhaldsfræðslu. Að gera unglingafræðsluna að skyldunámi fyrir þá, sem ekki fara í sjerskóla, t. a. m. í 2–4 ár eftir 14 ára aldur, sem virðist hafa vakað fyrir sumum, það held jeg að varla sje fært, að minsta kosti ekki fyrst um sinn. Eflaust á að vera kostur á almennri framhaldsmentun fyrir þá, sem ekki ganga í sjerskóla. En það er eins og um svo margt annað hjá oss, það verður ekki gert alt í einu.
Mentamálanefndin, þeir prófessorarnir Guðmundur Finnbogason og Sigurður Sívertsen gerðu ráð fyrir framhaldsfræðslu, að lokinni barnafræðslu, í kvöldskólum, framhaldsbekkjum barnaskóla, í tveggja ára unglingaskóla og í gagnfræðaskólunum tveim, í Reykjavík og á Akureyri. Nefndin ætlast til, að ríkið borgi að miklu leyti framhaldskensluna í kvöldskólum og framhaldsbekkjum barnaskóla. þ. e. í sama hlutfalli og barnafræðsluna. Gagnfræðaskólarnir eru algerlega ríkisskólar, en hina eiginlegu ungmennaskóla vill nefndin hafa 4 fyrir utan Eiðaskóla, einn fyrir Norðurland, annan fyrir Vestfirði og Strandasýslu, hinn þriðja fyrir Dalasýslu, Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og Gullbringu- og Kjósarsýslu, og hinn fjórða fyrir hinn hluta Suðurlands. Gert var ráð fyrir, að skólinn væri stofnaður þegar helmingur stofnkostnaðar væri fenginn með samskotum í hverju ungmennaskólahjeraði. Síðan greiddi ríkið 3/4 rekstrarkostnaðar. — Jeg lagði ekki fram á þinginu í fyrra frv. það, er nefndin hafði samið um ungmennaskólana, af því mjer virtist gerðar hjer of miklar kröfur til ríkissjóðs. En nú virðist mjer sem hyggilegra hefði verið að gera einhverja svipaða áætlun um þetta, sem nefndin lagði til. Hjer eru á ferðinni kröfur, sem ekki er auðvelt yfir að sjá, hverjar afleiðingar hafa.
Þegar jeg var að koma af stað Eiðaskólanum, hugsaði jeg mjer eitthvað svipaða skipun á unglingafræðslunni, þannig að komið væri upp álíka skóla og Eiðaskóla í hverjum fjórðungi, eða þá máske 5, eins og nefndin, og að ríkið greiddi allan kostnaðinn við þessa skóla, en aðra framhaldsfræðslu önnuðust kaupstaðir og sveitir á eigin kostnað eða einstakir menn. Eins og áður er sagt, hjelt jeg, að búnaðarskóli á Hólum mætti falla niður, og í staðinn mætti þá koma ungmennaskóli. Ef skóli yrði settur á Suðurlandsundirlendinu, þá finst mjer, að Flensborgarskólanum þyrfti að breyta að minsta kosti.
Hvernig sem annars kann að verða litið á ungmennafræðsluna, þá finst mjer, að þingið verði að gera sjer einhverja grein fyrir, hvað það ræðst í, ef það tekur hana sjer á herðar.
Hjer virðist mjer vera að opnast vegur til þess, að ríkið taki að sjer unglingaskóla í hverri sýslu, því að það þarf enginn að segja mjer, að ekki komi síðar kröfur um fje úr ríkissjóði til starfrækslu. Þetta ríður alveg í bága við fyrirætlanir um hjeraðsskóla. þ. e. skóla fyrir stærri hjeruð en eina sýslu. Jeg væri ekki að amast við þessum styrk út af fyrir sig, ef jeg ekki teldi, að hjer fylgdu á eftir kröfur í sömu átt, sem ómögulegt verður að neita. Auk þess virðist það dálítið undarlegt að veita mikið fje til þessa sýsluskóla, en verða að neita sjer um nauðsynleg hús handa Eiðaskóla, skóla sjálfs ríkisins, að jeg ekki tali um ýms önnur bráðnauðsynleg ríkisfyrirtæki. Dixi et liberavi animam meam.
En af því jeg veit, að það þýðir ekkert að halda brtt. áfram, þá tek jeg hana aftur.