03.05.1923
Efri deild: 54. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1099 í B-deild Alþingistíðinda. (826)

1. mál, fjárlög 1924

Ingibjörg H. Bjarnason:

Mjer þykir leitt, hafi jeg komist svo óljóst að orði í ummælum mínum um styrkbeiðni Skúla V. Guðjónssonar læknis, að draga hefði mátt af þeim þá ályktun, að jeg ætlaði mjer jafnvel að tilnefna hann í landlæknisembættið, annaðhvort nú þegar eða þegar það losnaði.

Jeg tilfærði aðeins ummæli landlæknis sjálfs, 14. mars þ. á., þar sem hann segist fallast á tillögur læknadeildar háskólans og meðmæli hennar með þessari styrkbeiðni. Þau ummæli landlæknis eru á þessa leið:

„Jeg get í alla staði fallist á tillögur og meðmæli læknadeildar háskólans. Og í því sambandi vil jeg vekja athygli á því, að þeir læknar, sem vilja verða hjeraðslæknar (eða landlæknar), þurfa í raun og veru allir meiri mentun í heilsufræðum en heimtuð er undir alment læknapróf.“

Það er í tilefni af ummælum hv. 2. þm. S.-M. (SHK), að jeg geri þessa aths., þar eð jeg hefi ekki með einu orði, hvorki nú nje fyr, vegið að núverandi landlækni.