07.05.1923
Neðri deild: 59. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1117 í B-deild Alþingistíðinda. (835)

1. mál, fjárlög 1924

Jakob Möller:

Jeg á tvær brtt. við þetta frv. eins og það nú liggur fyrir.

Sú fyrri er á þskj. 578, um hækkun á uppbót símameyjanna. Háttv. Ed. hefir breytt þessari fjárveitingu þannig, að af þeim 17700 kr., sem hjer voru samþyktar, skuli 1600 kr. veittar ákveðnum manni. Þetta raskar grundvelli þeim, sem upphæðin, 17700 kr., var bygð á, eftir till. landssímastjóra, og verður því ekki hægt að skifta upphæðinni á þeim grundvelli. Jeg geri ráð fyrir, að þessi háttv. deild sje samþykk þessari 1600 kr. fjárveitingu, en vilji hins vegar ekki lækka upphæð þá, sem hún hefir einu sinni sett inn í fjárlögin til almennrar uppbótar á launum símamanna.

Viðvíkjandi till. háttv. fjvn. skal jeg taka það fram, að það er vitanlegt, að nefndin var altaf á móti þeirri upphæð, sem samþykt var, og því ekki nema eðlilegt, að hún beri fram þessa brtt. um lækkun. Háttv. frsm. (MP) gerir grein fyrir þessari brtt. nefndarinnar á þann hátt, að hún ætlist til, að hver stúlknanna fái 200 kr., og þar að auki dýrtíðaruppbót. En till. landssímastjóra, sem þessi háttv. deild hefir áður samþykt, miðaðist við það, að kjör stúlknanna á miðstöð Reykjavíkur yrðu eftir henni ekki lakari en hinna, sem starfa við landssímann. Jeg þarf því vonandi ekki að mæla frekar með þessari brtt., þar sem þessi háttv. deild hefir í raun og veru tekið afstöðu til hennar áður, sem jeg býst við, að hún kviki ekki frá.

Hin brtt. mín er á þskj. 582, um 800 kr. til útgáfu Skólablaðsins. Slík styrkveiting hefir um mörg ár verið í fjárlögunum, en fjell niður úr stjórnarfrv. fyrir árið 1922, væntanlega af því, að stjórninni var kunnugt, að útgefendur blaðsins voru þá orðnir þrír, og þá talið ljettara fyrir þá að standast kostnaðinn. Reynsla þessara útgefenda er sú, að þeir hafa ekki staðist kostnaðinn, og uppgáfust tveir þeirra, en sá þriðji, sem nú er orðinn einn, telur sig neyddan til að hætta við útgáfu blaðsins, ef hann fær ekki styrk. Hygg jeg, að Alþingi teldi það illa farið og muni fúst til að veita þennan styrk, enda hefir það aldrei felt hann.

Það mun enn fremur hafa vakað fyrir stjórninni, að margar beiðnir um styrk til útgáfu sjerfræðiblaða og tímarita hafa borist henni. Nú er það kunnugt, að þau hafa flest eða öll leitað annarsstaðar styrks og fengið úrlausn, og því lítil hætta á, að margar styrkbeiðnir sigli í kjölfar þessarar, þó að hún yrði samþykt.

Þá má og benda á það, að 2 tímarit, „Freyr“ og „Ægir“, eru í raun og veru gefin út fyrir fje ríkissjóðs, þar sem þau eru kostuð af því fje, sem hann leggur til Búnaðarfjelaginu og Fiskifjelaginu.

Vonast jeg eftir að þurfa ekki að mæla með þessu lítilræði frekar, enda gott verk og þarft að styðja kennara til útgáfu blaðs þessa.