07.05.1923
Neðri deild: 59. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1131 í B-deild Alþingistíðinda. (843)
1. mál, fjárlög 1924
Atvinnumálaráðherra (KJ):
Jeg á hjer eina brtt., en þar sem jeg hefi rætt um þá fjárveitingu áður, finn jeg ekki ástæðu til að endurtaka það nú. En það var háttv. 2. þm. Árn. (ÞorlG), sem knúði mig til þess að standa upp. Hann gat þess, að jeg hefði gleymt fjárveitingunni til símans frá Þorlákshöfn að Nesi í Selvogi, þegar fjárlögin voru til umr. í hv. Ed., og hefði jeg með því vakið þann glundroða, að þess vegna hafi hann verið feldur burt. En jeg hefi ekki talað um þann síma þar eitt orð, hvorki með nje móti, og hafði alls enga ástæðu til að minnast á hann, svo jeg skil ekki orð og ummæli háttv. þm. um mig í þessu sambandi. Jeg hefi álitið 4 símalínur, sem margnefndar eru í þinginu, forgangslínur, sem ættu að sitja fyrir öllum öðrum. Jeg hefi haldið því fram, að þótt aðrar línur yrðu settar inn, mundi verða ómögulegt að leggja þær vegna fjárskorts, að svo stöddu, svo að þær mundu aðeins vera til á pappírnum. Kanske það eitt hafi vakað fyrir hv. þm. að fá hana bara á pappírnum. En sje svo, þá hefi jeg ekki verið meinsmaður þess, því sem sagt, jeg talaði ekki eitt orð um hana, hvorki með nje móti.
Með þessu athæfi mínu sagði háttv. þm., að jeg hefði lagst á lítilmagnann, það er að segja sjálfan hann. Jeg hygg þó, að háttv. þm. finnist hann vera alt annað en lítilmagni, þegar hann er að mæla fyrir tillögum sínum. Í þessu sambandi skal jeg leyfa mjer að skýra frá því, að í dag var til umræðu í háttv. Ed. brtt. um fjárveitingu til tveggja nýrra símalína, er fluttar voru af þingmanni, sem háttv. 2. þm. Árn. (ÞorlG) mundi alls ekki nefna lítilmagna. Jeg mælti þá í gegn báðum þessum símum, og það má háttv. 2. þm. Árn. (ÞorlG) vita, að jeg hefi fulla einurð til að mæla með eða móti, þegar jeg sje ástæðu til þess. Þennan síma, sem háttv. þm. ber svo mjög fyrir brjósti, hefi jeg látið afskiftalausan til þessa, og mun gera það framvegis, hvorki mæla með honum nje verða meinsmaður þess, að hann komist aftur inn í fjárlögin. Jeg tók það fram í dag í háttv. Ed., að mjer væri óljúft að vera á móti nokkurri símalínu, alveg eins og jeg gat ekki fengið af mjer að vera andvígur fjárveitingum til brúa og vegagerða, þegar jeg átti atkvæðisrjett hjer á þingi áður fyr.
Úr því að jeg er staðinn upp, skal jeg leyfa mjer að fara nokkrum orðum um brtt. mína á þskj. 578,XVI, um 3000. kr. styrk til Þorvalds stúdents Árnasonar, til fullnaðarnáms við ullarverksmiðju í Englandi. Jeg heyrði mjer til mikillar mæðu, að jeg hafði hrapallega misskilið háttv. frsm. (MP). Hann tók það fram, að hann áliti, að þessi maður ætti að fara að eins og aðrir námsmenn, sem væru komnir að því að ljúka námi, sem sje brjótast í gegn með lántöku. Jeg skildi háttv. fjvn. svo, sem hún kysi heldur, að styrk til þessa manns væri skift niður á 2 ár, 1923 og 1924. Jeg flutti því brtt. við fjáraukalagafrv. fyrir 1923 um 3000 kr. styrk handa honum, og flaug sú tillaga í gegn með um 20 atkv. Jeg hugði því, að þessi brtt. þyrfti engra meðmæla. En þar sem jeg hefi misskilið hv. fjvn. í þessu efni, vil jeg leyfa mjer að mæla fastlega með því, að brtt. verði samþykt, og vænti jeg þess, að þeir háttv. þm., sem áður greiddu atkvæði með styrk til þessa manns, geri það einnig nú. Það er að vísu auðvelt að vísa mönnum á lántöku, en ekki altaf jafnauðvelt fyrir fátæka menn að fá lán. Jeg efast um, að þessi námsmaður eigi þá menn að, sem geti veitt honum meiri styrk. Hann hefir þegar verið styrktur af nokkrum mönnum til náms í 3 ár, og væri því sorglegt, ef hann yrði nú að hætta námi án þess að taka fullnaðarpróf. Jeg vona því, að þessi brtt. fái góðan byr, ekki síst með tilliti til ullariðnaðarmálsins, sem rætt var hjer á laugardaginn, eins og öllum mun minnugt.
Háttv. 4. þm. Reykv. (MJ) ber fram brtt. að færa fjárveitinguna til útgáfu manntalsins 1703 yfir á rjettan stað. Það mun að líkindum óþarft, því að þetta stafar af misgáningi í prentun. Jeg flutti þessa fjárbón í háttv. Ed., og var greinilega tekið fram, að liðurinn ætti að vera undir 10. gr. B., og var hann samþyktur þannig. En þyki nauðsynlegt að leiðrjetta þetta með formlegri brtt., er auðvitað sjálfsagt að gera það.