07.05.1923
Neðri deild: 59. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1133 í B-deild Alþingistíðinda. (844)
1. mál, fjárlög 1924
Stefán Stefánsson:
Jeg á eina brtt. á þskj. 578,IV, um að veittar verði alt að 20000 kr. til sjúkrahússbyggingar á Siglufirði, gegn að minsta kosti 2/3 hlutum annarsstaðar að. Snemma á þinginu sendi jeg umsókn um styrk þennan til háttv. fjvn., ásamt glöggri greinargerð frá hjeraðslækni og eindregnum meðmælum landlæknis. Jeg skal ekki tala langt mál um þetta, en vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp nokkur orð úr erindi hjeraðslæknis. Hann segir meðal annars í þessari löngu og nákvæmu frásögn um málið, sem hefir verið í undirbúningi frá því 1911, þegar fyrst var tekið að safna fje til sjúkrahússins, sem nú er orðið fullar 20000 kr.:
„Eins og áður var drepið á, eru nú búsettir hjer á Siglufirði rúm 1200 manns, en á sumrum þyrpast hingað fleiri þúsundir manna, innlendir og útlendir. Það lætur nærri, að þetta fólk dvelji hjer að jafnaði 3 eða 4 mánuði, lifir oftast í ljelegu húsnæði, verður að vinna hvort sem er um daga eða nætur og oft bæði dag og nótt. Sýkist þetta fólk, en að því stuðlar bæði hart erfiði og ill aðbúð, er þeim búinn bæði fjárhagslegur og heilbrigðislegur voði. Sje um næma sjúkdóma að ræða, er voðinn auðvitað einnig búinn öllum hjeraðsbúum, því í ekkert hús er að venda til sóttvarna. Slys munu vera hjer tíðari um þennan tíma en annarsstaðar á Íslandi, og valda þar um þær atvinnugreinir, er hjer eru reknar, svo sem verksmiðjuiðnaður og mótorbátaútgerð“.
Annars væri öll frásaga hjeraðslæknis mjög fróðleg fyrir háttv. þm., en hún er of löng til þess, að jeg geti lesið hana upp alla. En í stað þess vil jeg leyfa mjer að lesa upp kafla úr meðmælabrjefi landlæknis. Hann segir í svari við brjefi, er jeg sendi honum:
„Mjer er vel kunnugt um staðhætti og almenningsþarfir í Siglufjarðarhjeraði, eins og í öðrum hjeruðum landsins.
Það er efalaust mál, að þar, eins og víðar, er brýn þörf á litlu sjúkrahúsi. Verð jeg yfirleitt að fallast á alt það, sem hjeraðslæknir segir, leggur til og fer fram á í fyrnefndu brjefi.
Jeg verð hjer, sem um sjúkrahúsmál Ísfirðinga, að taka fram, að jeg tel nauðsynlegt, að væntanlegar styrkveitingar til sjúkrahúsa komi ekki framvegis til útborgunar fyr en viðkomandi hjeruð hafa fært heilbrigðisstjórninni ljósar sönnur á því, að þau sjeu fær um fyrirtækin, ef styrksins nýtur við“.
Af þessu er auðsætt, hvernig þessir menn líta á, sem best bera skyn á málið.
Nú þegar eru komnar inn á fjárlögin styrkveitingar til nokkurra hjeraða í sama skyni. Jeg vil leyfa mjer að halda því fram, að ekkert af þessum hjeruðum hefir meiri þörf fyrir sjúkrahús en Siglufjörður. T. d. hefir verið samþykt 25000 kr. fjárveiting til sjúkrahúss á Ísafirði. fyrsta veitingin af 3. Ríkið hefir með öðrum orðum skuldbundið sig til að leggja fram 75000 kr. til þessa sjúkrahúss. Nú munu vera um 2100 manns á Ísafirði, en 1200 á Siglufirði, og þar sem hjer er einungis farið fram á 20000 kr. í eitt skifti fyrir öll, en Ísafirði eru veittar 25000 kr. sem fyrsta greiðsla af 75000 kr. alls, en ekki meiri munur á fólksfjölda, sje jeg ekki, að nokkur sanngirni geti verið í því að neita Siglfirðingum um þessa upphæð. Segi jeg þetta ekki af þeirri ástæðu, að jeg sjái ofsjónum yfir styrknum til Ísafjarðar, enda greiddi jeg atkvæði með honum og tel hann sjálfsagðan. En þegar eitt hjerað fær svo háan styrk og loforð um þrefalt meira, tel jeg að Siglfirðingar eigi fulla sanngirniskröfu til þess, að beiðni þeirra verði sint. Enn fremur hafa verið veittar 17000 kr. til sjúkrahússbyggingar og læknisbústaðar á Blönduósi, 10000 kr. í sama skyni til Síðuhjeraðs og 4200 kr. til sjúkrahúss á Sauðárkróki. Jeg hefi greitt atkvæði með öllum þessum fjárveitingum, tel þær allar jafnsjálfsagðar, en jeg get búist við, að menn muni alment álíta, að fult svo mikil þörf sje fyrir sjúkrahús á Siglufirði sem á hverjum hinna nefndu staða.
Jeg sje svo ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta. Vona, að háttv. þm. hafi sannfærst af umsögn hjeraðslæknis og meðmælum landlæknis um það, hve mikið nauðsynjamál er hjer á ferðinni, og greiði till. minni atkvæði.