11.04.1923
Efri deild: 37. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í B-deild Alþingistíðinda. (906)

8. mál, einkaleyfi

Atvinnumálaráðherra (KIJ):

Jeg býst ekki við, að jeg þurfi að fara mörgum orðum um frv. þetta. Það er gamall gestur; hefir verið hjer oft áður og síðast á þinginu 1922. Þá var það afgreitt frá þessari háttv. deild, en sofnaði í Nd. Nú hefir þetta frv. verið lagt enn á ný fyrir Alþingi. meðfram eftir ítrekaðri beiðni þeirra manna, sem mest umsvif hafa vegna einkaleyfanna, en það eru embættismenn vorir í Kaupmannahöfn. Það var lagt óbreytt fyrir Nd. eins og það var afgreitt hjeðan í fyrra, og hefir hún nú afgreitt það með tveim breytingum. Nefndin í Nd. lagði áherslu á það, að engan aukinn kostnað leiddi af frv. þessu og engin ný embætti yrðu stofnuð vegna þess, og eru ákvæði hjer að lútandi sett inn í frv. Þá hefir og það ákvæði verið sett inn, að ef einhver hefir beiðst einkaleyfis í öðru ríki, þá þurfi rannsókn ekki að fara fram hjer, heldur megi þá veita honum leyfið án frekari rannsóknar, ef hann sýni skilríki fyrir því. Slík rannsókn er oft mjög ítarleg og kostnaðarsöm og þarf til sjerþekkingu. Hingað til hefir ,,Patent-Kommissionen“ í Kaupmannahöfn annast það fyrir ekkert gjald, en eftir að landið varð fullvalda, taldi hún sjer ekki skylt að gera það fyrir ekki neitt, en stjórnin hefir nú samið um það, að hún haldi áfram rannsóknuni fyrir litla borgun. Nd. hefir fallist á, að beiðandi greiði sjálfur kostnað þann, er ríkissjóður ber af þessu, en í reglugerð, sem ráðuneytið setur, má ákveða, að veita megi efnalitlum beiðendum uppgjöf á kostnaði þeim, sem af rannsókninni leiðir, og er það til bóta. Yfirleitt er frv. aðgengilegt frá Nd., og vænti jeg þess, að þessi deild lofi því fram að ganga. Legg jeg til, að frv. verði vísað til allshn.