28.04.1923
Neðri deild: 52. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1184 í B-deild Alþingistíðinda. (914)

8. mál, einkaleyfi

Frsm. (Jón Þorláksson):

Hv. Ed. hefir einungis gert smávægilegar orðabreytingar til skýringar á þessu frv. Hefir það ekki verið borið formlega undir allshn. hjer í deildinni nú, en jeg hefi athugað frv. og þori að segja fyrir hönd nefndarinnar, að hún muni vera samþykk því, að það verði samþykt óbreytt eins og það liggur nú fyrir.