24.03.1923
Neðri deild: 28. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1188 í B-deild Alþingistíðinda. (934)

91. mál, herpinótaveiði

Flm. (Magnús Guðmundsson):

Þetta litla frv., sem hjer liggur fyrir. er borið fram samkvæmt ósk almenns hjeraðsfundar í Skagafirði. Vona jeg, að eigi þyki þörf að hafa um það langar umræður og að það fái hljóðalaust að ganga til 2 umr. og verði síðan vísað til sjávarútvegsnefndar.