14.03.1923
Neðri deild: 20. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1197 í B-deild Alþingistíðinda. (955)

44. mál, vélgæsla á íslenskum mótorskipum

Frms. (Pjetur Ottesen):

Það var rjett. hjá flm. þessara brtt., hv. 2. þm. Reykv. (JB), að hann gat þess í nefndinni, að hann mundi koma fram með brtt. við frv. um þau atriði, er hann nú hefir minst á. En áður en jeg sný mjer að þeim eða ræðu háttv. þm., vil jeg minnast á litla brtt. við 1. gr. Það er. eins og menn sjá, ekki um efnisbreytingu að ræða, heldur aðeins orðabreytingu, og þannig orðuð samþýðist greinin betur þeirri hugsun, sem í frv. felst um skyldur og rjettindi í þessu efni.

Háttv. 2. þm. Reykv. (JB) gat þess rjettilega, að það bæri að tryggja það með lögum, að vjelgæslumenn hefðu sem mesta þekkingu til brunns að bera í starfi sínu. Vjelbátaútgerðin er orðin svo stór og hraðvaxandi síðari árin, að þetta er nauðsynlegt, því að alt of mörg mannslíf eru í hættu, ef út af ber. Höfuðskilyrðið fyrir, að útgerðin beri sig, er það, að vjelarnar sjeu gangvissar, og verður því að gera þær kröfur til manna, að þeir sjeu færir um að stjórna þeim. Það má svo segja með miklum rjetti, að hjer hafi mjög skort á nauðsynlega fræðslu um þessi efni, og þannig verði það enn um nokkurt skeið, uns mótorskólanum verður komið á fót. Þó hafa námsskeið Fiskifjelagsins bætt mikið úr þessari vöntun, enda framför sýnileg á þessu sviði. Það verður því auðvitað að hafa fulla hliðsjón af þessu ástandi, þegar kveðið er á um rjettindi manna til vjelgæslu. — enda fullkomið tillit tekið til þessa í frv. — en hins vegar jafnframt að gæta þess, að gengið sje eins langt í kröfunum og unt er, og taka þar meira tillit til sameiginlegra hagsmuna þjóðarinnar en þó einhverjum manni, sem eitthvað hefir fengist við vjelgæslu, kunni að þykja sjálfsáliti sínu gert fulllágt undir höfði.

Nú er það svo, að allar þessar brtt. hv. 2. þm. Reykv. (JB) standa í nánu sambandi hver við aðra, og er því hægt að tala um þær allar í heild. Það er sameiginlegt með þeim öllum, að þær miða að því að draga úr þeim þekkingarskilyrðum, sem í frv. er krafist, og þar með minka þá tryggingu, sem frv. er ætlað að veita, ef það verður að lögum, óbrjálað frá því, sem nú er.

Það er með öðrum orðum nokkurskonar frestun á framkvæmd laganna, frestun á framkvæmd bráðnauðsynlegra tryggingarákvæða. Hvað sá frestur er langur, fer auðvitað nokkuð eftir því, hvað lengi dregst, að mótorskólinn taki til starfa. Samkvæmt 7. gr. falla þessi bráðabirgðaskilyrði niður. Eins og frv. er nú, eru þekkingarskilyrðin bundin við stærð vjelanna og smáhert á kröfunum, eftir því sem skipin og vjelarnar stækka og meira er í húfi. Þessari reglu vill háttv. 2. þm. Reykv. (JB) gerbreyta með því, að þeir, sem gætt hafi vjela í minni bátum, geti öðlast rjett til að stjórna vjelum í stærri skipum, með því að hafa verið við vjelgæslu á smærri skipum þann tíma, sem brtt. gerir ráð fyrir. Hann vill með öðrum orðum, að sú tímalengd verði nægilegt þekkingarskilyrði eða veiti þeim rjettinn án þess að þess verði krafist, að þeir uppfylli önnur nauðsynleg þekkingarskilyrði.

Það er ekki úr vegi, þegar hjer er komið, að bera brtt. saman við frv. — 4. gr. frv. hljóðar svo:

„Sá hefir rjett til að stunda vjelgæslu á mótorskipum með 50–150 hestafla vjel, er staðist hefir fullnaðarpróf við mótorskólann í Reykjavík, og auk þess verið að minsta kosti 6 mánuði vjelgæslumaður samkvæmt 3. grein. Sbr. þó 7. gr. þessara laga.“ Aftan við þessa grein vill bann bæta:

„eða stundað vjelgæslu að minsta kosti 24 mánuði á skipi með 10–50 hestafla vjel.“

Eru þeir samkvæmt þessu ekki bundnir skilyrðinu í 3. gr. frv., heldur öðlast rjettinn þegar eftir að þeir hafa stundað vjelgæslu þennan tíma, hvernig svo sem þeir hafa reynst. Þetta gat nefndin ekki fallist á; leit hún svo á, að þar með væri fótum kipt undan þeirri tryggingu, sem hún vildi veita með frv.

Þá er það breytingin á 5. gr. frv. Er hjer miðað við skip, sem hafi 150 hestafla vjel eða stærri, og er hjer því eiginlega um að ræða skip, sem fara á milli landa. Eins og gert er ráð fyrir í frv., þarf til vjelgæslu á þeim skipum próf frá vjelstjóraskóla Íslands og smíðakunnáttu, sem flm. brtt. mintist á. Vjer skulum gera oss grein fyrir, hverju bilun í vjel, þegar um millilandaferðir er að ræða. getur komið til leiðar, sje vjelgæslumaðurinn ekki fær um að bæta úr henni. En sje bilunin þannig, að eitthvað brotni í vjelinni, þá getur sá, sem smíðakunnáttu hefir, auðvitað í mörgum tilfellum sjeð við því og komið öllu í lag aftur, sem sá, er ekkert kann til þeirra hluta, er ráðþrota við. Stundum mætti búast við, að þetta gæti valdið því, að farmur og skip týndist algerlega. Eða hugsum okkur, að betur tækist til, en farmur og skip yrði fyrir þessar sakir fyrir skemdum, og við rannsókn erlendis kæmi það í ljós, að vjelamaðurinn hefði alveg ónóga þekkingu til að bera til að hafa svo ábyrgðarmikið starf á hendi. Mundi þá ekki geta farið svo, að vátryggingarfjelagið neitaði algerlega að bæta skaðann? Og það er því eðlilegra að álykta, að þetta færi svo, þar sem strangar kröfur eru gerðar til vjelgæslumanna hvað þekkingu snertir hvarvetna erlendis. Yfirleitt tel jeg þetta stórvarhugavert atriði, og það var að yfirlögðu ráði, að nefndin sá sjer ekki annað fært en að hafa skilyrðin í þessu falli svona ströng.

Við 7. gr. 2. málsgr. gerir háttv. 2. þm. Reykv. enn þá brtt. Vill hann að rjettindin, sem þar er talað um, sjeu ekki bundin því ákvæði, sem rjetturinn er bundinn við í frv. Þetta ákvæði frv. er samhljóða ákvæðinu í lögunum frá 1915. um atvinnu við vjelgæslu á gufuskipum, og hafa þau gefist vel.

Háttv 2. þm. Reykv. sagði, að mótornámskeið Fiskifjelagsins væru nú lögð niður. Þetta er ekki rjett. Bæði í fyrra og í ár hafa þau verið haldin á Akureyri. Að þau hafa ekki verið haldin hjer í Reykjavík nú undanfarin 2 ár, stafar af því, að þess hefir verið vænst, að mótorskólinn tæki þá og þá til starfa. En verði dráttur á því, mun mótornámskeið hafið hjer á ný. Annars virðist mjer ekki farið fram á meira í frv. en svo, að alt sje sæmilega trygt og engra rjettur sje þar fyrir borð borinn.

Jeg hefi nú gert nokkra grein fyrir ástæðum nefndarinnar á móti brtt. Vil aðeins að lokum benda á þá sorglegu reynslu undanfarinna tíma, hvað þekkingarleysi og vankunnátta í þessum efnum hefir valdið miklu tjóni. Og ætti sú reynsla, sú dýrkeypta reynsla, að vera næg ábending um að reisa nú öflugar skorður við því, að vanþekking, tómlæti og eftirlitsleysi leiði ekki yfir þjóðina í framtíðinni aðra eins óhamingju og tjón eins og það hefir gert á undanförnu tímabili í aflatjóni, eignatjóni og manntjóni.