14.03.1923
Neðri deild: 20. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1203 í B-deild Alþingistíðinda. (958)
44. mál, vélgæsla á íslenskum mótorskipum
Frsm. (Pjetur Ottesen):
Jeg skal ekki deila lengi um málið við háttv. 2. þm. Reykv. (JB), en legg það á vald deildarinnar að meta rökin með og móti. Jeg skal aðeins drepa á 3 atriði, sem háttv. 2. þm. Reykv. (JB) leggur svo mikið upp úr. Hann sagði, að útgerðarmenn mundu ekki taka aðra vjelamenn en þá, sem sköruðu fram úr. En það getur verið erfitt og oft ókleift fyrir útgerðarmenn að þekkja þetta, því þeir verða í mjög mörgum tilfellum að taka menn, sem þeir þekkja ekkert, og eru því alls ófróðir um þekkingu þeirra og leikni, og þar af leiðandi geta ekki valið neitt úr.
Háttv. þm. talaði einnig um raunhæfa þekkingu, sem bygðist á æfingunni. Já, — jeg ber ekkert á móti því, að æfingin sje mikils virði, enda er gert ráð fyrir praktiskri þekkingu í frv., og mikið lagt upp úr henni, en hún er ekki ávalt nægileg: og yfirleitt verður að krefjast þess, að vjelamenn hafi þá undirstöðumentun eða þekkingu í þessu efni. er veiti nokkurnveginn þá tryggingu, er gera verður kröfu til, að samsvari mikilvægi og ábyrgð þess starfa — vjelgæslustarfans — er þeim er falið að hafa á hendi.
Þar sem hann mintist að lokum á meðferð hliðstæðra mála á síðasta þingi, um aukin rjettindi bátaformanna, vil jeg benda háttv. þingmanni á, að þar var einungis um að ræða að rýmka nokkuð um rjettindi þeirra manna, er gengið höfðu undir próf. stýrimannspróf, og höfðu rjettindi samkvæmt því, en alls ekki gengið í þá átt, að þeir, sem engin prófskírteini höfðu, fengju nein rjettindi.
Það er því enginn stuðningur fyrir hv. þm. að vera að vitna í þessa breytingu. heklur hið gagnstæða.