15.02.1924
Sameinað þing: 1. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í B-deild Alþingistíðinda. (10)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. 3. kjörbrjefadeildar (JAJ):

Þriðju kjörbrjefadeild bárust eftirtalin kjörbrjef, ásamt útskrift úr viðkomandi kjörbókum yfirkjörstjórna:

Ágústs Flygenrings, 1. þm. G.-K.

Benedikts Sveinssonar, þm. N.-Þ.

Eggerts Pálssonar, 1. þm. Rang.

Halldórs Stefánssonar, 1. þm. N.-M.

Ingvars Pálmasonar, 2. þm. S.-M.

Jóns Sigurðssonar, 2. þm. Skagf.

Jörundar Brynjólfssonar, 2. þm. Árn.

Magnúsar Guðmundssonar, 1. þm. Skagf.

Magnúsar Jónssonar, 4. þm. Reykv.

Pjeturs Ottesens, þm. Borgf.

Sigurjóns Jónssonar, þm. Ísaf.

Við 10 fyrstu kjörbrjefin hefir kjörbrjefadeildin ekkert sjerstakt að athuga, enda engar kærur komið fram viðvíkjandi þeim. En þó vill deildin benda á, að í einum hreppi í Suður-Múlasýslu hefir ritblý verið notað við kosningarathöfnina, í stað stimpils, og fyrir það voru öll atkvæðin úr hreppnum gerð ógild af yfirkjörstjórn. Vill kjörbrjefadeildin því leggja til, að Alþingi skori á ríkisstjórnina að gefa hlutaðeigandi undirkjörstjórn stranga áminningu um að gæta kosningalaganna betur eftirleiðis.

Um kosninguna í Árnessýslu er það upplýst, að þar hafi hreppstjóri einn falið öðrum manni eða mönnum umboð til að annast heimakosningu. En þar sem þetta hefir komið fyrir í allmörgum kjördæmum landsins, og hinn reglulegi oddviti yfirkjörstjórnar hefir jafnframt upplýst, að sjer hafi verið falið af yfirkjörstjórn að víta þetta við hlutaðeigandi hreppstjóra, sem hann þegar hefir gert, sjer kjörbrjefadeildin ekki ástæðu til að minnast þessa atriðis frekar.

Þá er kosningin í Ísafjarðarkaupstað. Yfir henni hefir verið kært. Kæran er bygð á þeim atriðum, sem jeg nú skal greina, og jafnframt skýra frá áliti og tillögum kjörbrjefadeildarinnar við hvern lið um sig.

Er þá fyrst kært yfir því, að Jónína Jónsdóttir og Stefán Hermannsson, er kusu í bæjarfógetaskrifstofunni hjer, hafi eigi skrifað undir fylgibrjefið, en fulltrúi bæjarfógetans vottar, að þau hafi undirskrifað það. En svo er samt ekki. Undirkjörstjórn neitar fyrst með 2:1 atkv. að taka atkvæði þessi gild, en samþykkir síðar, þá er staðfest símskeyti sannar, að þau hafi kosið í bæjarfógetaskrifstofunni hjer í einrúmi og að öllu leyti löglega, að taka umrædd atkv. gild með 2:1 atkv. Kjörbrjefadeildin lítur svo á, að fullsannað sje, að kosning þessi hafi farið fram lögum samkvæmt, og leggur því til, að þessu kæruatriði sje vísað á bug.

Þá er í öðru lagi kært yfir því, að yfirkjörstjórn hafi ekki úrskurðað alla vafaseðla jafnóðum og þeir komu fram við upptalninguna. Kjörbrjefadeildin er þeirrar skoðunar, að rjett sje, að úrskurður sje feldur um vafasama seðla jafnótt og þeir komi fram. Þó að ekki sje með beinum orðum skipað svo fyrir í kosningalögunum, þá virðist kjörbrjefadeildinni samt, að orðalag 48. gr. kosningalaganna bendi í þá átt.

Þar sem nú eigi er upplýst, að frambjóðendur eða umboðsmenn þeirra hafi hreyft mótmælum gegn þessu við upptalninguna, vísar kjörbrjefadeildin þessu kæruatriði einnig á bug. En meiri hluti hennar vill hinsvegar, að stjórnarráðið brýni fyrir yfirkjörstjórnum eftirleiðis, að rjettast sje að úrskurða kjörseðil jafnskjótt og fram kemur við talningu atkvæða, og vill jafnvel láta víta yfirkjörstjórn Ísafjarðarkaupstaðar fyrir þetta.

Þá er í þriðja lagi kært yfir því, að yfirkjörstjórn hafi sýnt hlutdrægni við úrskurðun vafaseðla.

Kjörbrjefadeildin hefir nú yfirfarið hina gölluðu seðla, sem sendir voru, alls 21. Af þeim eru 15, sem yfirkjörstjórn hefir úrskurðað ógilda án mótmæla. Er á þeim sjáanlegt, að 8 hafa viljað kjósa Sigurjón, en 4 Harald. Á 3 er aftur á móti ekki hægt að sjá vilja kjósendanna. Þó að nú meiri hluti kjörbrjefadeildarinnar telji jafnvel rjettast að taka tvo af þessum seðlum gilda, sem sje þá seðla, sem á stendur: „Sigur Sigurjón Jónsson“ og „Herra Haraldur Guðmundsson“, leggur hún samt til, að við svo búið sje látið standa, því að slíkt breytti ekkert atkvæðahlutfallinu. 13 af seðlum þessum telur kjörbrjefadeildin svo mjög gallaða, að ekki geti komið til mála að taka þá gilda. Eru þá eftir 6 seðlar gallaðir, og ennfremur 1 heimakosningarseðill, sem undirkjörstjórn vildi ekki taka gildan, af því að umboðsmaður hreppstjóra hafði vottað kosninguna. Þennan síðast nefnda seðil ákvað kjörbrjefadeildin að taka gildan, með skírskotun til þess, sem áður er sagt um kosninguna í Árnessýslu og víðar. Var atkvæðaseðill þessi því opnaður og á honum stóð: Sigurjón Jónsson. Bætist því eitt atkvœði við atkvæðatölu hans.

Þá voru nákvæmlega athugaðir hinir 6 gölluðu seðlar, sem jeg gat um áðan. Á tveimur þeirra stóð: Sigurður Jónsson.

Þessir tveir seðlar hafði Sigurjón Jónsson óskað, að yrðu teknir gildir, en yfirkjörstjórn úrskurðaði þá ógilda, og er meiri hluti kjörbrjefadeildarinnar samdóma þeim úrskurði.

Tveir seðlar, sem yfirkjörstjórnin tók gilda, eru þannig, að á öðrum þeirra stendur: Sigurjónsson Jónsson, en á hinum nær svertan ekki yfir allan hvíta depilinn. Kjörbrjefadeildin er samdóma yfirkjörstjórn um, að taka beri þessa seðla gilda, og það því fremur, sem yfirkjörstjórn hafði, án mótmæla, tekið aðra gallaða seðla gilda, svo sem er á stóð: Horoldur Guðmusson, Herddur Guðmundson,. Horaldur Guðmunson, Haraldur Guðmudson, Haraldur Guðmunsson.

Þá eru enn tveir seðlar, sem tilheyra Haraldi Guðmundssyni. Á öðrum þeirra er kross eða merki á hvíta deplinum fyrir framan nafn hans, og á honum eru engir aðrir gallar. Þennan seðil vill meiri hluti kjörbrjefadeildar telja að taka hefði átt gildan.

Á hinum seðlinum er svertur hluti depilsins fyrir framan nafn Haralds Guðmundssonar, en auk þess er hann merktur eða stimplaður við hvíta depilinn fyrir framan nafn Sigurjóns, blekklessa fyrir aftan nafn hans, sem sýnilega er smitun frá merkinu framan við nafnið. Þennan seðil er kjörbrjefadeildin samdóma yfirkjörstjórn um, að dæma beri ógildan. Það skal svo tekið fram, að einn kjörbrjefadeildarmanna er ósamdóma þessari niðurstöðu deildarinnar. Hann vill dæma alla hina gölluðu seðla ógilda. Hefði þeirri reglu verið fylgt um öll skriflegu atkvæðin, eins þau, sem yfirkjörstjórn tók gild, þá hefði kosning Sigurjóns verið vafalaus.

Þá er í fjórða lagi kært yfir því, að Jóhanna Jónsdóttir og Sigurður Ebenesersson hafi ekki greitt atkvæði lögum samkvæmt. Þetta er sprottið sumpart af ókunnugleik kæranda og líka af misskilningi á lögum nr. 47, 30. nóv. 1914, og breyting á og viðauka við sömu lög, 1. maí 1923.

Það er rjett, að fulltrúi bæjarfógetans, Kristinn Ólafsson, var ekki viðstaddur þá er nefnd hjón kusu, heldur var það skrifari bæjarfógeta, Páll Jónsson, sem þá fyrir nokkru hafði verið löggiltur til að annast heima- og utankjördæmakosningar í fjarveru bæjarfógetans eða fulltrúans.

Fulltrúinn hafði 11. október farið heim til áðurnefndra kjósenda, eftir ósk þeirra, til þess að þau gætu kosið heima. En þá vildu þau ekki kjósa, af því að sonur þeirra, sem þau óskuðu að aðstoðaði þau, var fjarverandi. Fulltrúinn hafði fylt út eyðublaðið, þó ekkert yrði af kosningunni.

Nokkru síðar kemur sonur hjóna þessara heim, og óska þau þá aftur eftir að fá að kjósa heima. Fór því skrifarinn til þeirra í forföllum fulltrúans og ljet þau kjósa á heimili þeirra, en notaði sömu eyðublöðin og umslögin, sem fulltrúinn hafði ætlað að nota áður.

Þar sem nú kosning þessi hefir farið fram fyllilega lögum samkvæmt og þar sem löggiltur umboðsmaður framkvæmir athöfnina, er kjörbrjefadeildin á einu máli um, að atkvæðin sjeu gild og þetta eigi á engan hátt að hafa áhrif á gildi kosningarinnar.

Það er misskilningur kæranda á nefndum lögum, að læknisvottorð þurfi við heimakosningu, þá er kjósandi kýs utan kjördœmis, eins og hitt, að slíkar kosningar megi ekki fara fram fyr en 2 dögum fyrir kjördag. Getur kjörbrjefadeildin því ekki fallist á þessi atriði kærunnar.

Ennfremur er kært yfir því, að 3 kjósendur, sem standa á kjörskrá á Ísafirði og kusu þar, hafi einnig staðið á aukakjörskrá í Reykjavík og einnig neytt kosningarrjettar síns hjer í bæ. Að vísu hafa fullar sannanir ekki verið færðar á það, að þessir kjósendur hafi greitt atkvæði í Reykjavík, en hinsvegar mjög sennilegt, að svo hafi verið. Kjörbrjefadeildin er á einu máli um það, að kjörstjórnirnar á Ísafirði hafi orðið að veita móttöku atkvæðum þessara kjósenda, og geti þetta á engan hátt rýrt lögmæti kosningarinnar. Sama máli gegnir um eina stúlku, er stóð á kjörskrá bæði á Ísafirði og í Árneshreppi í Strandasýslu. Hún átti heima á Ísafirði, en kom í Árneshrepp og kaus þar, á kjördaginn, að jeg ætla. Þetta atkvæði getur ekki heldur, að áliti kjörbrjefadeildarinnar, gert kosninguna ógilda.

Þá er kjörbrjefadeildinni kunnugt um, að oddviti yfirkjörstjórnarinnar á Ísafirði neitaði frambjóðandanum Sigurjóni Jónssyni um, að kona nokkur, er tjáðist hafa af vangá ónýtt atkvæðaseðil sinn, fengi að kjósa á ný. Hinsvegar var öðrum kjósanda, sem frambjóðandinn Haraldur Guðmundsson óskaði að fengi að kjósa aftur og bar fram sömu ástæðu, að atkvæði hans hefði ónýst af vangá við atkvæðagreiðslu í Reykjavík, leyft að greiða atkvæði á ný. Kjörbrjefadeildin vill sem slík ekkert úr þessu gera, en jeg sem kunnugur maður á Ísafirði verð að átelja þessa framkomu oddvita, og það því fremur, sem kjörbrjefadeildin hefir fengið fullar sannanir fyrir því, að kjósandinn Jón Magnússon, sem eftir ósk Haralds Guðmundssonar fjekk að kjósa aftur, hefir fært rangar ástæður fyrir þessari kröfu sinni.

Í kærunni eru ekki fleiri bein kæruatriði en þessi, en ýmsu öðru er þar slegið fram, órökstutt með öllu, um fjárboð og fleira, svo sem lesa má í kæruskjalinu. En þar sem einungis er drepið á þetta í lok kærunnar, án þess að færa því nokkurn stað, sjer kjörbrjefadeildin enga ástæðu til þess að taka það til nánari óhugunar.

Jeg skal að lokum taka það fram, að þegar einhverjar misfellur eru á kosningu, er það vitanlega auðveldara fyrir þann, sem ónýta vill kosninguna og hefir hag af því, að svo sje gert, að færa sannanir á sitt mál, heldur en fyrir hinn, sem vill láta kosninguna standa. Því að þótt hann gæti fundið að ýmsu í framkomu andstæðinganna, þá myndi hann skirrast við að bera það fram, ef það gæti haft áhrif á lögmæti kosningarinnar og orðið til þess, að hún yrði dæmd ógild.

Samkvæmt því, sem jeg hefi nú sagt, hefir sú niðurstaða orðið í 3. kjörbrjefadeild, að hún hefir samþykt, með 10 atkv. gegn 2, að leggja til, að kosning þessi skuli tekin gild.