15.04.1924
Efri deild: 50. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1634 í B-deild Alþingistíðinda. (1015)

126. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka

Frsm. (Sigurður Eggerz):

Frv. þetta er bein afleiðing af þeirri niðurstöðu, sem varð með frv. um Landsbanka Íslands og seðlaútgáfu ríkisins af þeirri rökstuddu dagskrá, sem samþykt var í þeim málum. En samkvæmt lögum nr. 6, 31. maí 1921, átti að vera búið að gera endanlega skipun á seðlaútgáfunni fyrir 1. maí 1922. En þessu hefir jafnan verið frestað, og svo verður nú að gera enn um eitt ár, en lengri dráttur má ekki verða á málinu. Er nauðsynlegt, að þetta frv. komist í gegnum þingið. Jeg sje ekki ástæðu til fleiri ummæla um frv.