24.03.1924
Neðri deild: 31. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1640 í B-deild Alþingistíðinda. (1029)
60. mál, ríkisskuldabréf
Jakob Möller:
Jeg ritaði undir nál. með fyrirvara, vegna þess, að mjer fanst ekki vera þörf á því að breyta lögunum að svo stöddu í þessa átt, enda þótt jeg telji ekki það miklu máli skifta, ef mönnum er það svo mikið áhugamál að fá þessu framgengt. Eins og sjá má á þskj. 187, er aðalbreytingin í því fólgin að gera ríkisskuldabrjefin að útdráttarbrjefum og stytta um leið umferðartímann, og er þetta fram komið í sambandi við fyrirtæki, sem menn hafa hugsað sjer að koma í framkvæmd með því að selja ríkisskuldabrjefin í þeim hjeruðum, sem framkvæmdirnar eiga að fara fram í. En þótt yfirlýsingar hafi komið frá einhverjum hjeruðum um, að íbúar þeirra væru fúsir til þess að lána ríkinu fje til þess að gera brýr, leggja síma o. s. frv., þá er þar það við að athuga, að þeir vilja ekki lána ríkinu fje til eins langs tíma og lögin frá 1923 ákveða, sem sje til 25 ára, heldur er hjer samkv. nál. ætlast til, að lánin sjeu aðeins til 15–25 ára, og sjeu þau greidd með jöfnum afborgunum árlega. Þannig ætti þegar á fyrsta ári að greiða 1/15–1/25 hluta þessara lána. Þetta sýnist mjer vera allmikil rýmkun á lánskjörunum í vil þeirra hjeraða, sem veita lánin. En þar sem nefndin er sammála um að beina því til stjórnarinnar að fara ekki freklega í það að ráðast í slík fyrirtæki, sje jeg því minni ástæðu til þess að vera að breyta lögunum. Hitt atriðið, hvort ríkisskuldabrjefin eigi að vera inndregin eða innleysist ekki fyr en eftir ákveðinn tíma, er mjer ekkert kappsmál hvort heldur er, en sje þó ekki neitt varhugavert við það, þótt þau verði ekki útdráttarbrjef. Skuldir ríkissjóðs eru það miklar orðnar, að hann hefir nóg með fyrst um sinn að afborga þær, sem fyrir eru. En hinsvegar sje jeg ekki, að óttast þurfi, að svo mikið seljist af þessum ríkisskuldabrjefum, að ríkissjóði verði ofvaxið á sínum tíma að greiða þær árlegu afborganir, sem á þann hátt fjellu í gjalddaga. En ef svo færi, að hann þættist ekki geta undir þessu risið, má altaf gefa út ný ríkisskuldabrjef og selja. Það, sem milli bar mín og annara nefndarmanna, var það, að jeg áleit ekki eins mikla þörf á því að draga út brjefin, og eins það, að vafasamt væri, hvort rjett væri að stytta svo lánstímann á þeim skuldabrjefum, er hjeruðin kaupa í því skyni, að ríkið láti gera ýmisleg mannvirki fyrir þau; t. d. hefir verið rætt um, að ríkissjóður tæki á þennan hátt lán til 15 ára til brúagerða í Skagafirði, en jeg tel það fráleitt, að slíkt lán verði tekið. Eigi að ráðast í að láta gera mannvirki, sem standa eiga til frambúðar, er sjálfsagt að haga lántökunni þannig, að sem minst þyngsli verði að fyrir ríkissjóð.