24.03.1924
Neðri deild: 31. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1645 í B-deild Alþingistíðinda. (1034)
60. mál, ríkisskuldabréf
Jakob Möller:
Mjer finst sem þeir herrar hæstv. atvrh. (MG), hv. 2. þm. Skagf. (JS) og hv. þm. V.-Sk. (JK) hafi misskilið tillögur hv. nefndar. Það, sem nefndin vill fá fram, er ekki annað en að hún vill, að gert sje ráð fyrir öllum slíkum framkvæmdum í fjárlögunum í hvert sinn. Það er ekki undir því komið, að fje sje til, heldur hitt, að þessi atriði standi í fjárlögum, enda mætti þingið, ef vildi, taka lán til þeirra, því það er jafnframt tilgangur nefndarinnar, að farið sje eins varlega í þessháttar framkvæmdir og unt er. Hitt þarf að taka fyrir, að stórar greiðslur fari fram utan fjárlaga. Það, að það sje meining nefndarinnar að þvertaka fyrir allar framkvæmdir, hversu nauðsynlegar, sem eru, nær engri átt. Enda geri jeg ekki ráð fyrir, að það yrði erfitt að koma þessháttar fjárveitingu inn í fjárlög samkvæmt þar til fengnum upplýsingum vegamálastjóra.
Viðvíkjandi því, sem hv. 2. þm. Skagf. (JS) sagði, að undanfarið hefði verið tekið lán til skemri tíma, þá má það vera, að svo sje. En þótt óvarlega hafi verið farið í þessum efnum undanfarið, þá lít jeg svo á, að ekki sje rjett að taka upp þá reglu.