24.03.1924
Neðri deild: 31. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1646 í B-deild Alþingistíðinda. (1036)

60. mál, ríkisskuldabréf

Björn Líndal:

Það togast hjer á tvær andstæður, og ætla jeg, að nú verði eins og oftar heppilegt að fara millileiðina. Mun jeg við 3. umr. reyna þetta og koma fram með brtt. þess efnis, að ekkert verði dregið inn af brjefunum fyrstu 5 árin, í þeirri von, að fjárhagur ríkisins að þeim tíma liðnum verði eitthvað skárri en hann er nú.