26.03.1924
Neðri deild: 33. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1647 í B-deild Alþingistíðinda. (1040)
60. mál, ríkisskuldabréf
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg stend ekki upp til þess að andmæla þessari brtt., heldur til þess að minnast á áskorun hv. fjhn. um að eyða ekki fje til framkvæmda utan fjárlaga. Jeg vil þá lýsa því yfir, að jeg býst ekki við, að unt verði að komast hjá því að verja einhverju fje til framkvæmda. Eyjafjarðarárbrúin er t. d. ekki fullbúin, og fleiri mannvirki þarf að fullgera, til þess að þau geti komið að notum. Að öðru leyti þori jeg að lofa því, að stjórnin skuli ekki eyða fje til annara framkvæmda en þeirra, sem er blátt áfram óhjákvæmilegt að koma í verk.