27.03.1924
Neðri deild: 34. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1648 í B-deild Alþingistíðinda. (1043)

60. mál, ríkisskuldabréf

Björn Líndal:

Þetta mál var tekið út af dagskrá í gær af því að hæstv. fjrh. (JÞ) vildi kynna sjer brtt. þá, sem fram hafði komið við það. Við höfum svo í samráði við hann samið nýja brtt., og er mismunurinn í því fólginn, að hjer er aðeins um heimild að ræða, í stað lagaákvæðis. Vona jeg, að þessi brtt. verði samþykt, og verður hin brtt. þá tekin aftur.