27.03.1924
Neðri deild: 34. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1654 í B-deild Alþingistíðinda. (1067)
73. mál, yfirsetukvennaskóli
Forsætisráðherra (JM):
Jeg er alls ekki fjarri nefndinni í þessu máli og vil, að farið sje að leiða það til lykta, enda hefir það verið talsvert rætt. Prófessorar, sem jeg hefi átt tal við, hafa talið líklegt, að einhver prófessoranna yrði altaf fær um þetta. En það mun landlæknir vafalaust oftast vera líka. Kenslan verður ókeypis hvort sem er, og því engin ástæða að gera þetta að kappsmáli.