24.03.1924
Neðri deild: 31. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í B-deild Alþingistíðinda. (108)
1. mál, fjárlög 1925
Fjármálaráðherra (JÞ):
Jeg skal ekki lengja umræðurnar mikið, en vil aðeins taka það fram, að flest það, er háttv. 2. þm. Árn. (JörB) sagði um Geysishúsið, var rangt. Þá kunni jeg heldur ekki við það, að hann skyldi nota þetta síðasta tækifæri sitt til þess að sveigja að vegamálastjóranum fyrir það, að verkstæði landssjóðs hefir verið lokað í vetur. Því að það er beinlínis sparnaðarráðstöfun, sem gerð er beinlínis eftir fyrirlagi fráfarandi stjórnar. Því að hún leit svo á, að þar sem lítil eða engin vinna á að verða á árinu 1924, myndi verða þar svo lítið að gera, að ekki myndi borga sig að halda föstum mönnum við verkstæðið, heldur yrði ódýrara að fá það litla, sem þyrfti að vinna, gert annarsstaðar. Fyrir þessu beygði vegamálastjóri sig, þrátt fyrir það, þó að honum væri á móti skapi að láta sína vönu og góðu verkamenn fara. Er því ekki rjett af háttv. þm. að vera að beina ásökunum til hans fyrir þetta.