16.04.1924
Efri deild: 51. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1669 í B-deild Alþingistíðinda. (1099)
134. mál, sveitarstjórnarlög
Jóhann Jósefsson:
Háttv. 2. þm. G.-K. (BK) tók það fram, að mál þetta væri athugavert. Má vel vera, að svo sje. Jeg held, að frá vissu sjónarmiði hafi það töluvert mikla þýðingu, og sje því þörf, að það næði fram að ganga, og þá helst á þessu þingi.
Eins og tekið er fram í greinargerð fyrir frv. þessu, hefir því verið slegið föstu með hæstarjettardómi, að hin land fræðilegu takmörk Faxaflóa að sunnanverðu sjeu við Garðskaga, þó að undarlega hljómi í eyrum manns, að ekki sje komið inn í Faxaflóa, þegar komið er inn fyrir Reykjanes. Jeg gat þess um daginn, að á leiðinni væru samningaumleitanir af hálfu Skota um friðun Moray fjarðar um leið og suðurhluti Norður sjávarins væntanlega fæst friðaður. En þetta eru samningar, sem snerta fleiri þjóðir, þar á meðal Dani og Íslendinga
Jeg lít svo á, að mjög áríðandi sje fyrir þessa þjóð að láta ekkert tækifæri ónotað til þess að fá friðaða vissa kafla fyrir utan landhelgislínuna. Þó aldrei nema Íslendingar hafi orðið að sætta sig við hina þröngu landhelgislínu, þá er slík friðun alveg nauðsynleg, því að allir þekkja frá ófriðartímunum, hver árangurinn varð þá af hinni 3–4 ára friðun, sem kalla má, þar sem svo mjög fáir botnvörpungar stunduðu hjer fiskveiðar, að þá aflaðist meira en sögur höfðu farið af áður, þó að nú sje farið að draga úr þeirri veiði, sökum innlendra og útlendra botnvörpuveiða.
Frá þessu sjónarmiði er það, að nauðsyn ber til, að Faxaflói sje talinn sem stærstur, ef til þess kæmi, að hann yrði allur friðaður. Vildi jeg því leggja til, að frv. yrði ekki vísað til nefndar og það gengi fljótt í gegnum þingið.