25.03.1924
Neðri deild: 32. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í B-deild Alþingistíðinda. (115)

1. mál, fjárlög 1925

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg get lýst því yfir, að mjer líkar vel meðferð hv. fjvn. á fjárlögunum, einkum þó á þessum kafla þeirra. Vil jeg sjerstaklega taka það fram, að hin víðtæka sparnaðarviðleitni nefndarinnar er að mínu áliti ekki aðeins rjettmæt, heldur blátt áfram óhjákvæmileg eins og nú standa sakir. Þessi viðleitni kemur fyrst og fremst fram á tvennan hátt, annarsvegar í því að fella með öllu niður þá liði, sem vel er hægt að vera án, og hinsvegar í því að minka sem mest hverja upphæð, sem þó eigi verður álitið, að unt sje að sleppa alveg. Sjerstaklega álít jeg síðari aðferðina heppilega, því að menn sætta sig betur við hana en algerðan niðurskurð. Og þó að sumir segi, að sparnaður á smáupphæðum sje aðeins smásálarskapur og hjegómi, þá er það einmitt drýgsti sparnaðurinn, því að safnast þegar saman kemur. Aftur á móti tel jeg þriðju leiðina varasama. En hún er sú, að velta gjöldunum af ríkissjóði yfir á aðra. Álít jeg tæplega heimilt, þegar um er að ræða stofnanir, sem notið hafa styrks úr ríkissjóði, að raska þeim greiðsluhlutföllum, sem venjan hefir helgað, og heimta að annar aðilinn taki á sig byrðina. Er það því aðeins forsvaranlegt, að sá aðili sje miklum mun betur fær um að bera auknar byrðar. Á jeg hjer við tillögur nefndarinnar um að velta ýmsum gjöldum yfir á sýslur og bæi, til þess að ljetta á ríkinu. Það vita allir, að sýslur, bæir og sveitarfjelög eiga erfiðara með að ná inn háum gjöldum en ríkissjóður. Eina leið þeirra í því efni er sú, að leggja á útsvör eftir efnum og ástæðum. Finst mjer einkum nú eiga illa við að auka kröfurnar, þegar ríkissjóður hefir seilst með tekju- og eignarskattslögunum lengra en nokkru sinni áður inn á hið sama gjaldsvið, sem sveitarfjelögin verða að nota. Og á það finst mjer, að hv. þm. þurfi að líta, að þegar þröngt er fyrir dyrum hjá ríkissjóði, er það ekki síður hjá sveitar- og bæjarfjelögum. Finst mjer ekki nægur gaumur gefinn að því, að ekki er síður áríðandi, að sýslur og bæir komist ekki í fjárhagslegt öngþveiti en ríkið sjálft. Og þegar ríkinu er nauðsyn að spara, þá er sama máli að gegna um sýslur og bæi. Jeg held því að þessi sparnaðaraðferð sje aðeins svik við sjálfan sig. Annars ætla jeg ekki að gera tillögur nefndarinnar yfirleitt að umtalsefni, heldur minnast nokkrum orðum á brtt. nefndarinnar nr. 66–68, um iðnskóla í Reykjavík og kvöldskóla á Akureyri og Ísafirði.

Það hefir verið venja, að ríkið legði fram sem svaraði 4/5 af rekstrarkostnaði þessara stofnana. En undanfarin ár hefir iðnskólinn í Reykjavík verið styrktur úr ríkissjóði um 6 þús. kr., og fer fjarri því, að það sjeu 4/5 kostnaðar. Það er ekki einu sinni helmingur þess fjár, sem skólinn hefir þurft á að halda. Og til þess að sýna það, að þessi skóli á engan þátt í þeim fjárhagsvandræðum, sem nú þrengja að ríkissjóði, skal jeg geta þess, að strax árið 1907 var styrkurinn 5 þús. kr. og hefir ekki á öllum dýrtíðarárunum hækkað nema um eitt þúsund. Hugsa jeg, að lengi megi leita til þess að finna stofnun, sem ekki hefir þyngst meira á ríkissjóði á stríðsárunum og eftir stríðið. Háttv. fjvn. fer nú fram á, að tillagið til skólans lækki niður í 3 þús. kr., eða verði lægra en fyrsta árið, sem skólinn starfaði. Þá var það 4 þús. Mjer finst ekki rjett að grípa til þessara úrræða, velta útgjöldunum af ríkinu yfir á bæjarsjóði.

Nokkuð sama er um kvennaskólann. Þar leggur nefndin til að lækka framlag ríkissjóðs um 3 þúsund, sem bæjarsjóðnum er ætlað að taka á sínar herðar. Get jeg ekki heldur sjeð, að þetta sje rjettmætt. Árið 1923 var framlag ríkissjóðs 26 þús. kr. og í fjárlagafrv. stjórnarinnar fyrir 1925 er gert ráð fyrir 24 þúsundum. Aðsókn að skólanum er mjög mikil, og býst jeg við, að verði till. hv. fjvn. samþyktar, sje ekki annað fyrir hendi en að draga úr kenslu og færa saman kvíarnar. En jeg ætla nú ekki lengra út í einstök atriði þessa máls. Hv. 4. þm. Reykv. (MJ) mun athuga það nánar. En það skal ennþá tekið fram, að mjer finst órjettlátt að auka kröfurnar til bæjar- og sýslusjóða, þegar sem óðast er verið að draga úr gjöldum ríkissjóðs.

Af till. nefndarinnar er ennþá ein, sem jeg vildi minnast á. Er það till. um að fella niður styrk til útgáfu kenslubóka. Árið 1922 var þessi styrkur 800 krónur, 1923 var hann 2400 kr. og í fjárlagafrv. stjórnarinnar er ákveðin sama upphæð. En svo stendur á, að komist till. nefndarinnar í framkvæmd, þá kemur það í veg fyrir, að orðið geti af áformaðri útgáfu nýrrar mannkynssögu, sem verið er að semja. Þörf slíkrar bókar ætti að vera öllum augljós, og þó að hún sje fyrst og fremst ætluð til kenslu í skólum, þá veit jeg að hún mun verða til gagns og skemtunar öllum almenningi. Eins og stendur eigum við enga slíka bók, sem uppfylli kröfur tímans. Mannkynssaga Páls heitins Melsteds var auðvitað ágæt bók á sínum tíma, en bæði er hún nú orðinn ófáanleg og svo er hún eðlilega orðin úrelt nú. Jeg sje því ekki annað en útgáfa slíkrar bókar sje einmitt tímabær og ekki óþarflegri en margt annað, sem fje er veitt til. Hv. fjvn. hefir með till. sinni um að hækka styrk til bókaútgáfu Þjóðvinafjelagsins sýnt, að hún vill þó styrkja útgáfu góðra bóka. En með allri virðingu fyrir bókaútgáfu Þjóðvinafjelagsins, vil jeg segja það, að jeg kýs þessa fyrirhuguðu mannkynssögu frekar en flest þeirra bóka, sem það hefir gefið út. Vildi jeg biðja þessu máli líknar hv. deildar og óska þess, að till. hv. fjvn. verði annaðhvort feld eða tekin aftur. Annars mundi jeg, ef betra væri ekki kostur, sætta mig við niðurfærslu á styrknum við 3. umr., í samræmi við annað.

En eitt verð jeg ennþá að fara um nokkrum orðum. Mjer finst ekki fult samræmi í sparnaði háttv. nefndar. En ef til vill á hún eftir að koma með nýjar till. til 3. umr. Jeg hefi sjerstaklega farið yfir reikninga Fiskifjelags Íslands, einkum reikninginn fyrir árið 1923. Og jeg verð að segja það, að mjer finst mikið af þeim útgjöldum, sem þar eru, eiga minni rjett á sjer en ýmislegt það, sem felt er niður. Útgjöldin eru 1923 51500 kr. Þar af fara 26 þúsundir í beinan stjórnarkostnað, það er að segja: til starfsmannalauna og til skrifstofuhalds. En þó nokkuð mikið minni upphæð fer til þeirra framkvæmda, sem fjelagið hefir með höndum. Mjer finst því ekki samræmi í að halda áfram að veita þessu fjelagi jafnan styrk og áður, nú þegar af öllu er klipið og alt reynt að spara. Hvort sama máli er að gegna um Búnaðarfjelag Íslands, þori jeg ekki að segja. Mjer hefir ennþá ekki gefist kostur á að sjá reikning þess fyrir árið 1923.

Jeg vil að lokum taka það ennþá einu sinni fram, að þegar óhjákvæmilegt er að spara, verður Alþingi að gæta fulls samræmis í niðurfærslum. Sje það ekki gert, er hætt við að hafin verði andstaða gegn sparnaðarviðleitni þingsins yfirleitt. Vil jeg nú beina því til háttv. fjvn., að hún hafi við 3. umr. komið fullu samræmi á till. sínar um niðurfærslur útgjalda ríkisins.