05.03.1924
Neðri deild: 15. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1720 í B-deild Alþingistíðinda. (1169)

33. mál, friðun á laxi

Frsm meiri hl. (Jörundur Brynjólfsson):

Jeg þykist ekki þurfa að bæta miklu við það, sem jeg sagði við 1. umr. og nál. meiri hl., en þó vil jeg víkja að nokkrum atriðum, sem valda því, að hjer er farið fram á afnám þeirrar breytingar á laxafriðunarlögunum, sem samþykt var í fyrra.

Svo sem kunnugt er, gerði síðasta þing þá breytingu á laxafriðunarlögunum frá 1886, að veiðieigendur í Ölfusá voru leystir undan þeirri skyldu að taka net sín upp 36 tíma um hverja helgi. Með þessu er algerlega brotið í bág við stefnu laganna frá 1886 og lög þau og venjur, sem gilda með öllum þeim þjóðum, sem kunna að meta og vernda hlunnindi sín. Lögin frá 1886 voru ágæt á sínum tíma og hafa komið að ágætu haldi, en síðan þau voru sett hafa aðrar þjóðir gert margar breytingar á samskonar lögum sínum, sem allar fara í þá átt að tryggja þessi hlunnindi enn betur en áður. En þá verður það undarlega fyrirbrigði, að síðasta þing gerir lagabreytingu, sem stórspillir veiðinni í Ölfusá. Jeg skal ekki fara út í það, hvað ráðið hefir um þetta, en geri ráð fyrir, að ókunnugleiki hafi valdið um atkvæði flestra háttv. þm. En þó að svo hafi verið, þarf nú ekki lengur að bera það fyrir, því að síðan hafa komið umkvartanir frá öllum þeim, sem veiði eiga fyrir ofan Ölfusá, og áskoranir, ekki einungis um að fella þessi nýju lög úr gildi, heldur einnig um að herða á gömlu lögunum. Um þetta var haldinn fundur og kosin nefnd, sem gerði tillögur um málið, er lagðar voru fyrir sýslunefndarfund. En sá fundur samþykti áskorun til þingsins um að nema lögin frá 1923 úr gildi og gera breytingar á lögunum frá 1886, í þá átt, að laxinn yrði sem allra minst hindraður í göngu.

Þetta er ástæðan til þess, að frv. er fram komið. Jeg hefi ekki farið í því eins langt og menn óskuðu þar eystra. Jeg tel sem sje rjettara, að frekari umbætur verði látnar bíða þangað til stjórnin hefir leitað álits sýslunefnda um málið. Svo sem menn muna, voru lögin í fyrra afgreidd frá hv. Ed. með þeim ummælum, að stjórnin undirbyggi frekari breytingar á lögunum frá 1886. En að jeg flyt þetta frv. nú þegar, er fyrir eindregna ósk manna þar eystra, til þess að koma strax í veg fyrir þau veiðispjöll, sem þessi undanþága hlýtur að gera.

Jeg skal þá víkja nokkrum orðum að nál. minni hl. Því miður gat allshn. ekki orðið sammála um að leggja til við hv. deild, að frv. yrði samþykt. Ber minni hl. það fyrir sig, að engar upplýsingar hafi komið fram, er breytt geti ástæðum þingsins í fyrra til að samþykkja lögin. Þetta þykir mjer kynlegt, þar sem háttv. meðnefndarmenn mínir höfðu fyrir sjer óskir sýslunefndar og voru kunn tildrög þess, að sýslunefndin tók málið upp. Jeg veit ekki, hve nákvæmar upplýsingar þeir þykjast þurfa, en það kemur vonandi fram síðar. Jeg verð að segja, í tilefni af ummælum minni hl., að jeg get ekki sjeð, á hverju Alþingi hefir í fyrra bygt þessa lagasmíð. Hún gengur í berhögg við venjur og lög allra þjóða, sem láta sig nokkru varða þessi hlunnindi. Til þess hefðu átt að liggja ríkar ástæður.

Jeg vil leyfa mjer að benda hv. minni hl. á að kynna sjer, hvernig farið hefir verið með laxveiði hjer frá fyrstu tíð og hversu mikil hún var og er nú. Sumstaðar er veiði horfin með öllu og víða hefir hún minkað stórkostlega, og með lagasmíðinni frá því í fyrra er þessari stefnu gefinn byr undir báða vængi, til stórspillis fyrir veiðiafnot í bráð og lengd. Það virðist rjettara að reyna heldur að auka þessi hlunnindi með laxaklaki og meiri friðun, og mun þá sannast, að meira mun veiðast á 2 dögum í viku en nú á 6. En jeg álít, að þesskonar fyrirmæli eigi ekki að koma öðruvísi en vel undirbúin, og hefi því ekki viljað hrófla við gömlu lögunum að sinni. En það er augljóst, að löggjafarvaldið verður að varðveita þessi hlunnindi og takmarka afnot manna af þeim, svo þau verði ekki til spillis.

Brtt. hv. 1. þm. Árn. (MT) kom ekki fram fyr en allshn. hafði tekið afstöðu til frv., en jeg hefi átt tal um hana við háttv. meðnefndarmenn mína. Minni hl. leggur á móti brtt., svo sem búast mátti við, þar sem hún fer í svipaða átt sem frv. Meiri hl. getur ekki heldur fallist á að leggja til við hv. deild, að brtt. verði samþykt. Jeg tel litlu skifta, hvort brtt. verður samþykt, en verð þó að mæla á móti henni af þeirri ástæðu, að svo getur farið, að frv. falli, ef brtt. nær fram að ganga. Hinsvegar tel jeg ekki vafamál, að það atriði, sem brtt. fer fram á, sje heimilt samkvæmt lögunum frá 1886. í 1 gr. er svo mælt fyrir, að sýslunefnd skuli ákveða, hvenær veiðitíminn byrji og endi, en hann skuli ekki vera lengri en 3 mánuðir. Byrjun veiðitímans er sett sýslunefndum í sjálfsvald, og er hún mismunandi í ýmsum ám, eftir því, sem sýslunefnd ákveður. Á þennan hátt eru lögin framkvæmd, og virðist mjer sem það geti átt við í Árnessýslu, ekki síður en annarsstaðar. En þetta er aðalatriðið í brtt. Jeg hygg, að þótt margar ár falli til sjávar um einn ós, sje ekkert til fyrirstöðu því, að veiðitíminn sje mismunandi í þeim, eftir því, sem best þykir henta. 1. gr. bannar það ekki og önnur fyrirmæli laganna styðja það. Jeg skal í því sambandi benda á 6. gr., sem jeg vil leyfa mjer að lesa upp, með leyfi hæstv. forseta (BSv):

„Nú vill meiri hluti veiðieiganda í á, sem lax gengur í, veiða í fjelagi, til að koma á meiri friðun, en lög þessi ákveða, og skulu þá þeir, sem friðunina vilja fram hafa, leggja málið fyrir hlutaðeigandi sýslunefnd. Álíti sýslunefndin rjetti einskis hallað, skal hún semja reglur fyrir veiðiaðferðinni og skiftingu á veiðinni, og eru allir hlutaðeigendur skyldir því að hlíta. Þegar svona stendur á, skal höfuðáin og allar laxgengar ár, sem í hana renna, álítast sem ein á.“

7. gr. bendir enn ótvíræðara á þetta, með leyfi hæstv. forseta (BSv):

„Nú er svo háttað á einhverjum stað, að nauðsyn þykir til bera, að kveða skýrara á um eitthvað það, sem fyrir er mælt í lögum þessum, og er sýslunefnd einni eða fleirum heimilt að setja um það reglugerð, en þó svo, að grundvallareglum laga þessara um friðun laxins og frjálsa göngu sje í engu haggað. Reglugerðir sýslunefnda, sem getið er í þessari grein og 6. gr., skal amtmaður staðfesta, og fá þær þá fult lagagildi um næstu 10 ár.“

Þetta sýnir, að sýslunefndum er gefið það mikið vald, að þær geta ráðið, hvernig veiðinni er hagað. Einungis um Ölfusá getur sýslunefndin engu ráðið, þar sem lögin frá 1923 gefa þeirri á sjerstöðu, sem fer í bág við lögin frá 1886. Þau leggja áherslu á, að ramminn, sem þau tiltaka, sje ekki þrengdur. Það er augljóst, að þingið 1886 hefir verið fult svo glögt á þessa lagasmíð sem síðasta Alþingi.