05.03.1924
Neðri deild: 15. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1740 í B-deild Alþingistíðinda. (1178)

33. mál, friðun á laxi

Frsm. minni hl. (Magnús Jónsson):

Það er auðsjeð, að nú þykir mikils við þurfa, er allur meiri hluti allshn. stendur upp til þess að tala í þessu máli. Og þó vill hjer svo vel til, að háttv. frsm. (JörB) var sjálfur flm. frv. og er manna kunnugast um öll atriði, sem hjer að lúta. En samt eru háttv. meirihlutamenn hræddir, svo hræddir, að þeim dugir ekki minna en tvær rökstuddar dagskrár í viðbót. Önnur skorar á stjórnina að vaka yfir því, að ekki sje gengið á rjett manna þar eystra; hin skorar á stjórnina að undirbúa það, að þessi löggjöf verði öll endurskoðuð bráðlega og komið í lag. — Menn ættu því að geta verið rólegir.

Það hafa aðallega verið færðar tvær ástæður móti lögunum. Önnur er sú, að það væri vilji almennings, sem hlut á að máli; hin er sú, að lögin sköpuðu fordæmi, hættulegt fordæmi. Nú vil jeg í tilefni af þessu, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp stuttan kafla úr ræðu, sem hv. fyrv. 2. þm. Rang. flutti hjer í fyrra, en hann var þá frsm. í þessu máli í Ed.:

„Jeg skal aftur geta þess, að frumvarp þetta á ekki að vera fordæmi í þessum efnum.“

Jeg veit ekki, hvernig þetta verður betur trygt af Alþingi, að hjer skuli ekki skapast fordæmi, en með því, að sjálfur frsm. lýsir því yfir, að svo skuli ekki vera. Það liggur í hlutarins eðli, að Alþingi getur veitt undanþágu, þó ekki sje fordæmi fyrir. En ef það dugir ekki, að fhn. málsins lýsi því yfir, að hjer sje ekki skapað fordæmi, þá sje jeg ekki, hvernig hjá því á að komast. Því finst mjer það illa viðeigandi, ef menn vilja nú fella lögin vegna þess, að nokkrir menn eru hræddir við, að þau skapi fordæmi. En annars skal jeg taka það skýrt fram, að jeg er eins ákveðinn með 36 klst. friðuninni yfirleitt eins og hver annar, þó að mjer í þessu tilfelli virðist undanþága mega vera.

Þá heldur háttv. 2. þm. Rang. áfram í ræðu sinni:

„.... engin óánægja ríkir þar austur frá yfir frv. þessu; miklu fremur hefir þess verið óskað af þeim, sem búa við Ölfusá og þverár hennar.“

Hverju á nú að trúa, þegar háttv. þm. lýsa yfir svona sitt á hvað? Mjer finst það ekkert óeðlilegt, þótt hv. þdm. færu eftir þessum upplýsingum á síðasta þingi. En hitt er annað mál, þegar þveröfugar upplýsingar koma á næsta þingi, hvort hv. þm. láta þær hafa þau áhrif á sig, að þeir þá greiði atkvæði þvert á móti.

Aðalröksemdin finst mjer vera sú, að menn eru að sjá einhverjar vígvjelar á ferðinni, sem þó eru hvergi til. Enda hygg jeg, að þá væri auðvelt að taka í taumana, ef þær kæmu fram, því þær yrðu jafnt öllum til skaða, sem veiði eiga í ánni. Trúi jeg því þess vegna ekki, að veiðieigendur við neðanverða Ölfusá væru svona ákafir, ef þeir vissu af þessum veiðivjelum við ósana. Þess vegna held jeg, að þetta sje orðum aukið. Háttv. 2. þm. Reykv. (JBald) taldi líkur til, að hætta gæti stafað af netalögnunum í ánni fyrir göngu laxins upp eftir henni, og ef þetta kæmist á í fleiri ám, mundi það verða til ills veiðunum. Já, ef — en á því er engin hætta, að þessi undanþága verði veitt fyrir aðrar ár en þessa. En væri hægt að sanna mjer, að hægt væri að þverleggja þarna með 30 faðma millibili út í miðstraumlínu árinnar, skal jeg játa, að þá mundu fara að renna á mig tvær grímur.

Háttv. 2. þm. Árn. ætlaði að gera mig að ódreng fyrir það að draga inn í þessar umræður „prívat“-samtal, sem jeg hafði átt við hann; þar var hann alt of viðkvæmur, og er það allundarlegt að mega ekki segja, að eitthvert mál sje hitamál. Það var engu líkara en að jeg hefði kastað að honum einhverjum eitruðum hnútum, enda hefði þá verið ástæða fyrir þennan hv. þm. að segja, að það væri ekki hættulaust að eiga einkasamtal við mig. Hann mintist og á atkvæðagreiðslu nefndar um 48 stunda friðunartímann og vefengdi það, er jeg sagði um, að þar hefði lítill atkvæðamunur verið. En það var rjett, að því er þann tíma snerti, en þá verður fyrst alt á reiki, ef á að fara að tala um, hvað ofan á hefði orðið, ef 36 stunda friðunartíminn hefði komið þar til atkvæða.

Háttv. samþm. minn (JBald) drap á það atriði, sem jeg met mest í þessu máli, er hann reyndi að sanna, að undanþágan hefði þegar haft ill áhrif á veiðina í hinum efri ánum. En eitt einasta ár sannar alls ekki neitt og veiðin er oft afarmismunandi ár frá ári, svo það verður lítið á þessu að byggja enn sem komið er. Það geta oft komið þau illæri til veiði skapar, að jafnvel með 48 stunda friðunartíma á viku gæti orðið ómögulegt að veiða nægilegan lax til klaks. Enn er að líta á það, að neðan til í Ölfusá eru meiri hindranir fyrir göngu laxins en allar þær vígvjelar, sem látnar hafa verið í ána af mannavöldum; — það er selurinn, sem jeg á við. Á meðan Árnesingar geta ekki komið sjer saman um að útrýma selnum úr ánni, ættu þeir ekki að vera svo viðkvæmir fyrir því, að verið sje að eyðileggja laxaveiðilögin fyrir þeim með þessari undanþágu. Það mun satt vera, að þeir hafa óskað eftir styrk úr ríkissjóði til þess að losa þá við selinn. Ætla þeir því að ófriða hann, ef þeir fá þóknun fyrir. Jeg hygg, að það mundi vera ofurauðvelt að fá nóga veiðimenn úr Reykjavík til þess að skjóta selinn í ánni. Reykvíkingar mundu verða þessu fegnir, því þetta þykir hið besta „sport“, og selurinn yrði þegar rekinn á brott úr ánni. Nei, að þetta hefir ekki þegar verið gert, stafar af því, að einstökum mönnum er hagræði að því að hafa selinn þarna, og þess vegna er haldið í hann.

Það, að laxgangan stöðvist vegna netalagnanna, tel jeg mjög ólíklegt. Það getur hugsast, að eitthvað af laxinum tefjist þess vegna, en varla sem nokkru nemur. Og svo vil jeg spyrja hv. þingdeildarmenn, hvort þeir álíti, að aldrei þurfi að taka netin upp úr ánni. Ætli aldrei muni þurfa að þurka þau, hreinsa eða bæta! Hitt er aftur allskarpleg tilgáta og með talsvert vísindalegu sniði, að betur veiðist fyrri hluta vikunnar hið efra í ánum, ef net eru þarna tekin upp um helgar. En um þetta þurfa nákvæmar skýrslur að vera til, til þess að á því verði bygt. Það mun vera með þetta mál eins og með veðrið; um það þarf að safna veðurskýrslum, því menn muna sjaldnast annað eins veður um langan aldur eins og það, sem er þá stundina.

Jeg hygg, að þarna eystra sje þetta mál talsvert æsingamál, eins og hv. 1. þm. Árn. (MT) sagði; það mun hafa verið þyrlað talsverðu moldviðri kringum þetta mál, og flestum mun kunnugt um það, hversu sandarnir þar eystra geta rokið ef hann hvessir. Jeg hygg því, að þetta mál hefði ekki skaða af því að fá að bíða eitthvað ennþá.