05.03.1924
Neðri deild: 15. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1744 í B-deild Alþingistíðinda. (1179)
33. mál, friðun á laxi
Pjetur Þórðarson:
Á síðasta þingi, þegar þetta mál var til meðferðar hjer, var jeg því fylgjandi vegna þess, að það mætti þá engri mótspyrnu frá þeim, sem þar áttu hlut að máli, að fengnum upplýsingum eftir að það var komið til nefndar, og þá einnig af þeirri sjerstöku ástæðu, að svo stendur á, að í mínu kjördæmi eru einhverjar mestu laxveiðiár í einni sýslu á landinu. Áleit jeg þá þessa undanþágu fyrir Ölfusá einskonar próftilraun, og til þess að fá fram þá breytingu á laxveiðilögunum, sem einnig þar í Borgarfirði mundi þykja æskileg, ef vel reyndist, þótt lítt hafi verið ymprað á því opinberlega. Jeg var ánægður yfir því, að þessi tilraun var gerð og að frv. fjekk góðar móttökur á þinginu þá og gekk fram. Jeg verð því að vera á þeirra máli, sem ekki vilja fella strax niður aftur þessa undanþágu; því jeg álít bráðnauðsynlegt, þar sem um breytingu frá svo gömlum lögum er að ræða, að hún fái að standa óáreitt svo sem 3–5 ár, svo menn geti sjeð, hverju fram vindur um afleiðingarnar. Ef hún reynist illa, mun það verða til þess, að slíku máli væri þar með lokið. Reynist hún vel, mundi það hafa örvandi áhrif á laxaklakið. Þar með yrði og lokið þrætum um fordæmi það, er þessi undanþága ætti að vera öðrum hjeruðum. Það góða, sem af þessu getur leitt, er það, að málið verður á meðan rætt frá fleiri hliðum, og vænti jeg því, að hv. þingdeildarmenn verði mjer sammála um, að betra sje að láta reynsluna skera úr því, hvort þessi undanþága hefir verið heppileg eða ekki. Halla jeg mjer því fremur að þeirri dagskránni, sem síðar kom fram, frá hv. þm. Barð. (HK), og jeg vænti, að þetta verði notað þannig, að nægur reynslutími fáist um það, hvað sje heppilegast í þessu máli.