05.03.1924
Neðri deild: 15. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1748 í B-deild Alþingistíðinda. (1183)
33. mál, friðun á laxi
Jón Baldvinsson:
Það skal aðeins verða örstutt í þetta sinn. Þar sem þeir háttv. samþm. mínir, 3. og 4. þm. Reykv. (JakM og MJ), sögðu, að jeg hefði ekki viðhaft miklar fullyrðingar í þessu máli áðan, þá hygg jeg, að þó að jeg tæki svo til orða, megi finna líkur til þess, að undanþágan hafi haft ill áhrif að ýmsu leyti. Jeg hefi nokkrum sinnum á undanförnum árum komið þar austur og sjeð lagnirnar í ánni. Á síðastliðnu sumri voru netin stærri, lengri og lágu víðar í ánni, og var sýnilegt, að kapp var lagt á það að veiða sem mest, er netin máttu altaf vera í ánni. Samt getur vel verið, að lögunum um að taka upp netin hafi ekki alstaðar verið vel hlýtt. En við Selfoss, þar sem áin er þrengst og hættulegast er vegna laxgöngunnar að láta net liggja, þar hygg jeg, að lögunum hafi ávalt verið hlýtt, enda óhægt þar um vik í því efni. Þar er svo mikil umferð með og yfir um ána, að slíkt mundi ekki hafa haldist þar uppi. En hvernig því hefir verið varið annarsstaðar, veit jeg miður. Jeg hygg því, að það, að veiðin í efri ánum hefir verið óvenjulítil í sumar, í sambandi við það, að netum hefir verið fjölgað og þau stækkuð, þá hafi það stafað frá þessari undanþágu.
Háttv. 4. þm. Reykv. sagði, að mikið þætti nú við þurfa, er allir meirihluta nefndarmenn hefðu þurft að tala í þessu máli, en mjer sýnist nú og, að minni hl. þurfi nokkurs við, er tvær rökstuddar dagskrár eru fram komnar honum til stuðnings. Það mátti varla minna kosta. Út af orðum hv. þm. V.-Sk. (JK) vil jeg taka það fram, að jeg er ekki með því að fella þessi lög úr gildi aftur af því, að það eigi ekki að draga einstök atriði úr eldri lögum og breyta. Jeg get vel fallist á að breyta einstökum atriðum, ef það væri sýnilega til bóta. Það hefir rjettilega verið tekið fram, að ekki megi miða við eitt einasta veiðiár; en það er og verður þó dálítið undarlegt, ef afarmikil veiði eða fremur venju er hið neðra í ánni, en alls engin efra. Þetta hlýtur að styrkja þá skoðun, að netin stöðvi gönguna. Annars er laxinn skrítin skepna; það er talið sannað, að hann renni upp í þær kvíslar, þaðan sem hann er upprunninn, og sjerstaklega er því haldið fram, að hann gangi upp eftir grynningum. Net ættu því vel að geta stöðvað göngu hans. Laxinn er sjerstaklega viðkvæmur í göngu; það hefi jeg sjeð hjer í Elliðaánum, hversu kenjóttur hann er, ef hann mætir einhverri óvæntri truflun, og hið sama gæti jeg trúað, að gæti átt sjer stað í Ölfusá, enda þótt vatnsmegnið á þessum tveim stöðum sje alls ekki saman berandi. Jeg hygg það megi vel vera rjett, að laxinn stöðvist við netin og liggi þar tímunum saman. Venjan mun vera sú, að ef net eru tekin upp til hreinsunar, sjeu önnur net lögð jafnharðan í staðinn, og má því rjettilega skoða netalagnirnar sem stöðugan vegg, er laxinn fær ekki komist yfir.