25.04.1924
Efri deild: 54. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1765 í B-deild Alþingistíðinda. (1200)

33. mál, friðun á laxi

Frsm. meiri hl. (Eggert Pálsson):

Jeg geri ekki ráð fyrir því, að langar umr. um mál þetta hafi mikið að þýða, því að varla skil jeg í öðru en að hv. þm. hafi fyllilega getað áttað sig á því þann langa tíma, sem dregist hefir, að það kæmi til umr. aftur. Ástæðan til þess, að jeg stend upp aftur, er sú, að hv. minni hl. (JJ) las nál. okkar ekki sem vingjarnlegast. Þar er það tekið fram, sem vitanlega er ágiskun að því er mig snertir, — þar sem jeg átti ekki sæti á síðasta þingi, — að orsökin til undanþágunnar í fyrra hafi verið sú, að þingið hafi álitið vatnsmagn árinnar svo mikið, að undanþágan sakaði ekki. Út úr þessu virtist hv. minni hl. reyna að snúa, með því að halda því fram, að við álitum vatnsmagnið ekki hið sama nú og í fyrra. Þessu höfum við vitanlega aldrei haldið fram, heldur hinu, að álit manna í þessu efni hafi breyst. Í fyrra hjeldu menn, að vatnsmagn árinnar væri svo mikið, að undanþágan sakaði ekki. Nú virðast menn komnir að raun um, að svo sje ekki.

Hv. minni hl. segir svo í nál. sínu: „Oft koma svo miklir vatnavextir og hlaup í ána, að taka verður upp netin dögum og jafnvel vikum saman. Laxinn gengur í torfum, og hittist þá stundum vitanlega svo á, að laxagöngurnar geta komist alla leið upp í smáárnar, meðan engin tök eru til að veiða neðan til við ána.“

Væri þetta óbrigðult, þá kæmi til greina, að laxinn kæmist árlega upp úr; en því er ekki að heilsa. Þetta bregst iðulega, og þá reynist vatnsmagnið of lítið til þess að laxinn komist upp í þverárnar. Hv. frsm. meiri hl. allshn. í Nd. (JörB) hefir t. d. upplýst, að síðastl. sumar hafi enginn slíkur vöxtur hlaupið í ána, og laxinn því ekki komist upp. (JJ: Hann komst samt upp úr). Um það eru ærið skiftar skoðanir. Veiðin var áreiðanlega lítil ofan til, og jafnvel hv. minni hl. vill ekki rengja það, að lítið hafi veiðst síðastl. sumar á efstu bæjunum við árnar, en heldur því hinsvegar fram, að mikið hafi veiðst á Kiðjabergi. Jeg er þessu persónulega ókunnugur, því að jeg hefi ekki ferðast þar um síðan. En því er nú skotið að mjer af hv. 2. þm. Árn. (JörB), að þar hafi veiðst allmikið fyrstu vikuna, en sama og ekkert úr því. Læt jeg háttv. 5 landsk. um það, hvort hann vill rengja þessi ummæli.

Að því er snertir Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu, sem hv. 5. landsk. sagði, að væri þvergirt, þá get jeg lýst því yfir, að jeg er ókunnugur norður þar, og get því tekið hann trúanlegan í þessu atriði. En ef þetta er sambærilegt við Ölfusá eða Hvítá, þá er þessi aðferð þarna fyrir norðan alveg óforsvaranleg. En mjer hefir reyndar verið sagt, að sami maðurinn eigi Laxá upp úr, svo langt sem lax gengur. (JJ: Nei, en hann á land báðum megin árinnar, þar sem þvergirt er). Þó að þessu sje svona varið þarna, þá er ekki þar með sagt, að slíkt hið sama eigi sjer stað annarsstaðar. Jeg skal kannast við það, að ekki er hægt beinlínis að stokkleggja Ölfusá fyrir neðan brúna, enda veit jeg, að þó að menn noti það orð, þá meina þeir það ekki bókstaflega, heldur eiga þeir við, að hægt sje að hindra laxgönguna til muna. Og jeg þekki lagnir í Ölfusá, t. d. hjá Selfossi, þar sem sýnist mjög auðvelt að ná i megnið af þeim laxi, sem gengur í ána.

Hvað snertir selinn, sem háttv. 5. landsk. sagði að væri ræktaður í ósum Ölfusár, þá er ekki hægt að tala um slíkt, að minsta kosti er hann ekki fremur ræktaður nú en áður en landið bygðist. Jeg skal ekki neita því, að selurinn geti að einhverju leyti orðið laxinum að tjóni, en jeg sagði, og segi enn, að ef við litum á reynsluna, sem liðnir tímar hafa leitt í ljós, þá getur selurinn ekki verið nein aðalorsök þess að hindra laxgöngu í ána, því að ef svo væri, hefði hann fyrir löngu, eða áður en land var numið, þegar hann var alfriðaður, átt að vera búinn að eyðileggja allar laxgöngur í þessa á og reyndar fleiri.

Þá er það ekki rjett, að sýslunefnd Árnesinga hafi misbeitt valdi sínu, þegar hún hefir ákveðið veiðitímann í Ölfusá. Mjer hefir verið sagt, að hún hafi breytt til veiðitímanum eftir samkomulagi við bændur, búsetta fyrir neðan brú, og jafnvel samkvæmt tillögum þeirra. Ef þeir, sem búa ofarlega við ána, eyðileggja veiðina með því að veiða ólöglega á klakstöðvunum, þá ætti það ekki að vera ofverk þeirra, sem neðar búa, að líta eftir því. Því að þegar þeir geta fengið unglinga ofan úr Hreppum til þess að votta, hversu mikið hver bóndi þar efra veiðir af laxi árlega, þá ættu þeir að geta fengið vitneskju um þau lagaforot, sem framin eru þar af sömu bændum að þeirra dómi.

Þá sagði háttv. 5. landsk., að ekki væri ástæða til að nema undanþáguna úr gildi, vegna þess, að lögin hefðu altaf verið brotin. (JJ: Þau eru brotin, bæði af þeim, sem búa neðarlega og ofarlega við ána). Jeg skal ekki dæma um það, hvort laxafriðunarlögin eru yfirleitt brotin þarna austur frá. En ef svo er, þá er síst ástæða fyrir þingið að verðlauna sökudólgana með því að afnema friðunina, svo að þeir þurfi ekki lengur að óttast nein lög. Jeg hygg satt að segja, að hvorki hv. 5. landsk. nje aðrir vilji yfirleitt ganga inn á þessa braut, að verðlauna fyrir lögbrot, enda gæti það dregið alvarlegan dilk á eftir sjer.

Það, sem hjer um ræðir, er það, hvort þeir fáeinu bændur, sem búa við Ölfusá, eigi að búa við sömu lög og aðrir landsmenn, eða hvort rjett sje að gera undantekningar með þá í þessu efni, svo sem þingið í fyrra gerði. Nú veit þingið, að það, sem það gerði í fyrra, var ekki rjett. Vatnsmagnið í ánni er ekki nægilegt til þess, að undanþágan megi standa. Sýslunefnd Árnesinga, með langmestan hluta sýslubúa að baki sjer, hefir svo að segja í einu hljóði óskað eftir því, að undanþágan verði úr gildi numin, og trúi jeg því vart öðru en að þingið verði við þeim óskum.