28.04.1924
Efri deild: 56. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1774 í B-deild Alþingistíðinda. (1208)
33. mál, friðun á laxi
Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):
Jeg vil enn lýsa yfir þeirri skoðun minni, að jeg tel þessu máli betur komið í sambandi við væntanlegt frumvarp um laxveiði, sem án efa verður lagt fyrir næsta þing. Geri jeg því að tillögu minni, að málinu verði vísað til stjórnarinnar og hæstv. stjórn láti rannsaka það í sambandi við væntanleg laxveiðilög og leggi það fyrir næsta þing.