25.03.1924
Neðri deild: 32. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 292 í B-deild Alþingistíðinda. (124)
1. mál, fjárlög 1925
Jón Baldvinsson:
Jeg á tvær brtt, við þennan kafla fjárlaganna, og mun jeg nú tala um þær nokkur orð. Jeg hafði ætlað mjer að minnast nokkuð á ýmsar till. hv. fjvn., og má vera, að jeg geri það síðar. Fyrsta till., sem jeg vil tala um, er XVII, till. á þskj. 196, um styrk til kvöldskóla verkalýðsfjelaganna hjer í Reykjavík. Það var ætlun fulltrúaráðs fjelaganna að senda háttv. fjvn. erindi um þetta efni, en það fórst þó fyrir, að það yrði nógu snemma tilbúið, og kom það ekki í mínar hendur fyr en nokkrum dögum eftir það, að hv. fjvn. hafði lokið störfum sínum. Og varð jeg þá til þess að taka upp þessa till. Verkalýðsfjelögin hafa að undanförnu haldið uppi nokkurri alþýðufræðslu, fengið menn til þess að flytja fyrirlestra um ýms efni. Og það hefir komið í ljós, að það er mikil þörf fyrir og löngun eftir slíkri fræðslu, sjerstaklega meðal hinna yngri manna. Það hefir því verið ákveðið að stofna slíkan skóla næsta haust, og hefir verið leitað eftir styrk hjá bæjarstjórn í þessu skyni. Og því hefir verið tekið svo vel þar, að á fjárhagsáætlun bæjarins fyrir yfirstandandi ár, sem samþykt var fyrir áramót síðastl., voru veittar til skólans 500 kr. Þess var vænst, að fást mundi einhver lítilsháttar styrkur frá Alþingi, þó ekki væri það gert að skilyrði í bæjarstjórn. Enn vil jeg taka það fram, að í þessum skóla er ætlast til að kent verði íslenska, danska, enska, saga, þjóðmegunarfræði og reikningur. Líka vil jeg geta þess, að námsskrá og áform skólans verður lagt undir skólanefnd Reykjavíkurbæjar. Eftir þeirri stefnu, sem nú ríkir hjer á Alþingi, þá vænti jeg, að háttv. fjvn. sje ljúft að mæla með þessum styrk, því á undanförnum árum hefir hún verið þeirrar skoðunar, að auka beri sem mest alþýðufræðsluna með því að styrkja unglingaskólana. Jeg þarf því ekki að fara fleiri orðum um þetta, en vænti hins besta af háttv. deild, að hún veiti þennan litla styrk, og viðurkenni þannig viðleitni fjelaganna í þessu efni.
Önnur brtt. mín er á þskj. 207 og fer fram á litla hækkun á 31. lið 16. gr. í fjárlagafrv. stjórnarinnar. Það er styrkur til Þórðar Flóventssonar, til þess að leiðbeina við laxa- og silungaklak. Honum eru ætlaðar í 31. lið 16. gr. 600 kr. til þess að leiðbeina um silungaklak, en okkur háttv. 2. þm. Árn. (JörB) fanst þetta of lítið, eftir því gagni, sem þegar er orðið af starfi þessa manns og vænta má, að verði í framtíðinni. Það er ekki minsti vafi á því, að laxa- og silungaklak veitir fjarska mikla möguleika til þess að efla framleiðslu í landinu. Það er nærri eins gott fyrir bændur að efla laxa- og silungaklak eins og að ala upp fjenað til slátrunar. Silunginn hafa þeir í vötnunum hjá sjer og laxinn gengur altaf í þær ár, sem honum er klakið upp í, þótt hann fari til sjávar í bili. Sá maður, sem hjer er um að ræða, er svo mikill áhugamaður og svo ant um málefnið, að ómögulegt er annað en að áhrifa hans gæti mjög mikið. Hann þrýstir mönnum blátt áfram til þess að hefjast handa. Jeg hefi gert litla breytingu á orðalagi liðsins í stjfrv., þannig, að í stað „silungaklak“ komi: laxa- og silungaklak, því hann getur leiðbeint um þetta hvorttveggja jafnt. Margir háttv. þm. þekkja þennan mann og starfsemi hans, og þeir munu ekki sjá eftir 1000 kr. handa honum. Jeg geri að vísu ráð fyrir, að honum sjeu ferðirnar ekki dýrar, en hann þarf eitthvað sjer til uppihalds, er hann dvelur hjer í Reykjavík, enda er hjer ekki um mikið fje að ræða. Jeg hygg líka, eftir því, sem jeg hefi kynt mjer hug háttv. þdm., þá muni þessi brtt. ekki mæta mikilli mótspyrnu.
Þá hefi jeg lokið að tala um þær brtt., sem jeg hefi flutt hjer að þessu sinni, fyrir utan brtt. XVI á þskj. 196, um hækkun á námsstyrk við kvennaskólann. En um þá till. hefir háttv. samþm. minn, 4. þm. Reykv. (MJ) áður talað, og hefi jeg engu við það að bæta.
Þá vildi jeg minnast nokkrum orðum á ýmsar brtt. háttv. fjvn. Þó vil jeg, áður en jeg vík að því, minnast nokkuð á orð háttv. þm. Ak. (BL). Jeg tel það enga dygð hjá hv. þm., þótt hann eigi enga brtt. við fjárlögin. Tillögur um fjárútlát úr ríkissjóði eiga fullan rjett á sjer, ef það, sem fjeð er lagt til, miðar til þjóðþrifa og er ætlað að skila meiru verðmæti, andlegu eða efnalegu, en annars mundi fást, ef fje væri ekki veitt. Annars hefi jeg ekki tilhneigingu til að fara út í ræðu þessa háttv. þm., þó að full ástæða væri til þess, að hún sje athuguð.
Á síðasta þingi kom inn í fjárlögin ákvæði um það, að taka skyldi skólagjald af nemendum í skólum ríkisins. Jeg verð nú að álíta, að þetta sje óheppilegt og rangt að leggja slíkan skatt á nemendur, sem flestir eru fátækir. Og það bætir lítið úr skák, þótt heimilað sje að endurgreiða þennan styrk efnilegum nemendum, sem þá verða að sækja um hann. Og er þá litið á styrkinn sem nokkurskonar ölmusu. Og heyrst hefir, að það hafi gengið erfiðlega að fá eftirgjöf á skólagjaldinu, þó eftir því hafi verið leitað og allar ástæður mælt með. Nú vill háttv. fjvn. ekki láta við þetta sitja, heldur leggur hún það til, að þetta gjald sje hækkað upp í 150 kr. á nemendum lærdómsdeildar mentaskólans. Jeg verð að telja það ófært að leggja slíkan skatt á nemendur, sem yfirleitt eru fátækir, og er jeg þessu því mótfallinn, þó að jeg hafi ekki komið með brtt. til að fella skólagjaldið alveg niður; en það getur verið, að hún komi síðar.
Þá kem jeg að 66.–68. brtt. fjvn. á þskj. 163. Hæstv. fjármálaráðherra (JÞ) og háttv. 1. þm. Árn. (MT) hafa talað um þær till., og þarf jeg þar ekki við að bæta. En jeg vil undirstrika það, sem hæstv. fjrh. sagði, að það er mjög erfitt fyrir bæjarfjelögin að halda uppi skólum, því þau eiga sína tekjustofna undir þinginu og það hefir gengið allstirt að fá aðstoð þess í þeim efnum. Þannig var frv. um bæjargjöld í Reykjavík fyrir þinginu í fyrra, og liggur nú enn fyrir þessu þingi, hver sem þess afdrif verða nú. Aðstaða bæjanna til þess að auka tekjur sínar, svo þeir geti styrkt þau fyrirtæki, sem þess eru makleg, er mjög erfið. Alþingi getur aftur á móti aflað sjer þeirra tekna, er því sýnist. Það gefur út lög, sem heimila ríkinu tekjur, hvort sem rjettlætinu er altaf fullnægt í slíkum álögum. Þetta geta bæjarfjelögin ekki. Þetta er almenn athugasemd á móti þeirri stefnu, að færa gjöld yfir á bæjarfjelögin, til uppihalds stofnunum, sem raunar eru starfræktar fyrir landið alt, þó þær starfi í bæjunum.
Ein af sparnaðartillögum hv. nefndar á að koma niður á Þjóðmenjasafninu. Er það 88. brtt. og á við 15. gr. Er þar gert ráð fyrir að færa kostnaðinn við aðstoð safnsins úr 2400 kr. niður í 1200 kr., eða lækka hann um helming. Er gert ráð fyrir, að safnið verði nú aðeins opið 4 stundir tvisvar í viku. Að undanförnu hefir það verið opið 6 stundir þrisvar í viku, og aðsóknin verið mikil. T. d. kom þangað á sunnudaginn var á þriðja hundrað manns. Yrði nú fækkað þeim stundum, sem safnið, væri opið, mundi aðsóknin rjena. Og undarlegt er það, að nefndinni skuli detta í hug að lækka kaup þeirra, sem í safninu vinna, þegar öll önnur laun fara hækkandi. Eða gengur nefndin að því gruflandi, að svo muni verða, þegar allar vörur í landinu hækka! Jeg býst við, að flestum sje það þó ljóst, að dýrtíðaruppbót embættismanna mun verða hærri á næstunni en að undanförnu. En nefndin hefir sem víðast viljað koma við með sparnaðinn. En sparnaðurinn kemur hjer niður á nokkrum fátækum konum, sem undanfarið hafa starfað við safnið.
Þá ætlar nefndin sjer að spara nokkuð af því fje, sem veitt hefir verið til veðurathugana. Skil jeg ekki, hvernig veðurathuganastöðin á að starfa að nokkru gagni, ef till. nefndarinnar um lækkun verður samþykt. Og jeg vildi vekja eftirtekt hennar á því, að nokkuð af útgjöldum stöðvarinnar rennur aftur í ríkissjóð, þar sem hún borgar landssímanum fyrir öll veðurskeyti. En hv. nefnd mun einmitt ætlast til, að veðurspárnar falli niður. Þó að menn trúi kannske ekki yfirleitt á þær og vilji gera lítið úr þeim, þá býst jeg þó við, að þegar stöðin var stofnuð, hafi einmitt verið tilgangurinn að geta með dálitlum fyrirvara vitað um veðrabrigði. Og þó að margt misjafnt sje sagt um veðurspárnar, er talsvert mark tekið á þeim. Þeir, sem til þekkja, segja líka, að töluvert meira gagn verði að stöðinni, þegar hægt verði að fá skeyti frá Grænlandi, en þar mun nú bráðlega verða sett upp loftskeytastöð. Jeg tel því vafasamt, að rjett sje að samþykkja till. nefndarinnar um þetta atriði. Það gerir að minsta kosti að engu hinn upphaflega tilgang stöðvarinnar. Og jeg býst ekki við, að þær ályktanir, sem hinir og þessir draga af veðurskeytunum, verði ábyggilegri en ályktanir þess manns, sem veitir veðurathuganastöðinni forstöðu.
Þá minnist nefndin á, að kaupa þyrfti fallbyssur á „Þór“. Já, jeg er nú ekki svo mikill hernaðarsinni eða tel að fallbyssurnar muni koma að svo miklu gagni, að jeg geti farið að ljá því mitt fylgi.
Þá er tillagan um að fella niður styrkinn til ekkju Jóhanns Sigurjónssonar. Því fylgja ummæli frá nefndinni, sem jeg tel, að ekki hefðu átt að sjást. Nefndin hefir aðeins heyrt einhvern orðróm, en hann hafa fleiri heyrt, og það líka fylgt, að þar væri um að ræða helberar slúðursögur. Það má vel vera, að Kaupmannahafnarbær væri nógu ríkur til þess að sjá fyrir þessari ekkju; en jeg hjelt, að menn vildu heiðra minningu skáldsins með því að sjá ekkju hans fyrir styrk. Ef nefndin vildi ekki binda styrkinn við nafn hennar, þá mætti breyta um orðalag og veita hann til ekkju Jóhanns Sigurjónssonar, og friða með því samviskuna.
Loks kem jeg að till. um að fella niður styrk Þórbergs Þórðarsonar. Finst mjer sú till. misráðin, þar sem orðasöfnun Þórbergs er svo vel á veg komin, sem raun ber vitni um. Hann hefir sambönd við ýmsa menn víðsvegar um land, sem safna fyrir hann orðum. Síðan tekur hann við og vinnur úr. Að sumrinu ferðast hann sjálfur og safnar einkennilegum orðum og orðatiltækjum. Hefir hann nú í safni sínu milli 10 og 20 þúsund orð úr alþýðumáli. Jeg vil einnig taka það fram, að hann hefir til þessa starfs meðmæli margra okkar bestu manna á þessu sviði, svo sem Sigurðar Nordals, Jóns Ófeigssonar og Magnúsar Helgasonar. Telja þeir hann allir vel færan til starfsins. Hann er áhugasamur og skyldurækinn. En þetta starf er þess eðlis, að til að rækja það þarf alveg sjerstakar gáfur, en slíkum gáfum er Þórbergur gæddur. Og menn kunnugir þessu segja, að ekki muni á hverjum 100 árum koma fram meira en einn maður, sem sje fær um þessi störf, svo að vel sje. Jeg vil bæta því við, að Sigfús Blöndal, orðabókarhöfundur, telur starf hans mjög mikilsvert. Jeg vil loks mælast til þess við hv. deild, að hún fallist ekki á till. nefndarinnar, því að jeg tel mjög misráðið að koma í veg fyrir, að starf geti haldið áfram, sem svona er vel á veg komið. Samböndin mundu falla niður og alt fara í mola. Ennfremur ber að gæta þess, að starfið þarf að vinna sem fyrst, því að gamla fólkið deyr og það tekur með sjer mikinn slíkan fróðleik í gröfina, sem þarna er verið að reyna að bjarga frá gleymsku.
Að síðustu ætla jeg að minnast á eina brtt. á þskj. 196, um hafskipabryggju á Ísafirði. Háttv. þm. Ísaf. (SigurjJ) mælti með þessari till. og sagði, að það væri búhnykkur að veita fje til hafskipabryggju á Ísafirði. Jeg er alveg á sama máli og þessi háttv. þm. Ísafjarðarkaupstaður hefir stóran hag af því að fá þessa bryggju, og ríkissjóður mundi fyr eða síðar þurfa að veita fje til þessa. En nú stendur svo á, að hann þarf ekkert að leggja út. (ÁF: Af því að hann er búinn að því). Og það er þó auðvitað nokkurs vert, að geta styrkt hjerað án þess að þurfa að borga nokkuð út. Og hvað eru það mörg hjeruð, sem ríkissjóður hefir orðið að gefa upp skuldir? Þau eru víst þó nokkur. Hjer er ekki um neina peningaútborgun að ræða, heldur aðeins skuldaskifti við Ísafjarðarkaupstað. Auðvitað getur ríkissjóður fengið þessa skuld hjá Ísafjarðarkaupstað endurgreidda, þó það verði ekki á næstu árum. Það er ekki tapað. En ríkissjóður á líka að leggja fram fje til hafnargerðar á Ísafirði samkvæmt lögum. En það kæmi sjer vel, að þessi skuldaskifti færu fram nú. Vil jeg því mæla fast fram með því, að fjeð verði veitt sem tillagan fer fram á.
Jeg hefi nú lokið þeim athugasemdum, sem jeg ætlaði að gera, og get því látið hjer staðar numið.