03.04.1924
Neðri deild: 41. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1804 í B-deild Alþingistíðinda. (1246)

90. mál, bæjarstjórn í Hafnarfirði

Jakob Möller:

Jeg á víst þá hnútu, að hafa gert þetta mál að hitamáli. En jeg verð að játa það, að jeg á ákaflega bágt með að stilla skap mitt þegar heimska manna keyrir úr hófi fram. Hv. þm. Barð. (HK) var að hafa eftir mjer ummæli, en eftirtektin var ekki meiri en það, að hann gat ekki haft þau rjett eftir. Jeg sagði, að þeir menn kyntu mest undir stjettarígspottinum, sem spyrntu á móti slíkum jafnrjettismálum sem þessu. Jeg sagði ekki, að þeir gerðu það viljandi, heldur blátt áfram af heimsku, skammsýni og ofsa. (HK: Svona geta vitrir menn talað). Einn sjer það, sem annar sjer ekki. Það getur verið, að óvitrir menn eins og jeg sjái ýmislegt í þessu, sem hv. þm. Barð. (HK) sjer ekki, af því að jeg er persónulega kunnugri þeim ástæðum, sem hjer ræðir um.

Hv. 4. þm. Reykv. (MJ) talaði um undirbúningsleysi í þessu máli. Hvaða undirbúningur er það, sem hann saknar? Hv. allshn. hefir útvegað umsögn bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, sem liggur nú hjer prentuð fyrir, og af henni sjest, að það er vilji 4 fulltrúa af 9, að frv. gangi fram. En hverjir ætli sjeu bærari til umsagnar í þessu máli en einmitt bæjarfulltrúarnir sjálfir? Álit þeirra er miklu meira virði en 20–100 annara bæjarmanna. Málið er því eins vel undirbúið nú eins og hægt er.

Sami hv. þm. (MJ) sagði, að engin ástæða væri til þess að kaupa sjer frið á þennan hátt. Jeg er honum samdóma um það, að ekki sje rjett að selja stór atriði fyrir friðinn einan. En það á ekki að láta standa á smáatriðunum, ekki að halda niðri smábreytingum, sem í raun og veru skifta litlu máli, ef þær miða í áttina til þess að efla frið. Það er vitanlega rjett, að meiri hluti ræður eftir sem áður í bæjarstjórninni, þó hlutfallskosning sje innleidd. En þá er líka engin hætta þessu samfara. Meiri hlutinn verður sá sami, hvort sem þetta frv. verður samþykt eða ekki. Fyrst í stað verður hann sá sami, en það veit enginn, hver meiri hlutinn kann að verða á hverjum tíma. Og verði þetta mál gert að þrætumáli, þá getur það flýtt fyrir því, að meiri hlutinn yrði annar. Jeg er ekki meðmæltur þessu frv. vegna þess minni hluta, sem nú er, sjerstaklega, heldur vegna minni hlutans, sem verður á hvaða tíma sem er. Það gæti snúist svo, að meiri hlutinn, sem nú er, yrði minni hluti, og yrði þá áhugamál að njóta síns rjettar gagnvart minni hlutanum, sem nú er. Sami hv. þm. sagði, að það væri engin skynsamleg ástæða til þess að útiloka minni hlutann frá nefndum. Það er náttúrlega rjett. En hvernig er reynslan? Lítum nær okkur; lítum á sjálft þingið. Jeg held það ætti að geta vakið efa hjá hv. þm. (MJ) um það, að skynsemin ráði alstaðar við nefndakosningar. Hjer hafa gerst þau dæmi, að menn eru útilokaðir frá nefndum, og það menn, sem alls ekki eru að almannadómi meðal óstarfhæfari manna þingins. En þetta mundi því fremur koma fyrir, ef ekki væri hægt að beita hlutfallskosningu. — Nei, það er engin skynsamleg ástæða gegn því að tryggja það sem best, að þeir menn sjeu settir í nefndir, sem hæfir eru til starfanna, en það verður nú ekki betur trygt en einmitt með hlutfallskosningu.