11.04.1924
Efri deild: 46. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1827 í B-deild Alþingistíðinda. (1294)
120. mál, Landhelgissjóður Íslands
Ingvar Pálmason:
Jeg get tekið það strax fram, að jeg lít svo á, að með þessu frv. sje gengið inn á mjög varhugaverða braut. Eins og hv. deild, og reyndar öllum, er kunnugt, eru strandvarnir hjer við land að mestu leyti framkvæmdar af Dönum. Að vísu hefir verið mjög að því fundið, hversu ófullnægjandi strandvarnir Dana væru hjer við land — og eru sjálfsagt rjettmætar ástæður fyrir þeim umkvörtunum. Úr þessu hefir líka verið reynt að bæta á síðustu árum, með því að koma á fót innlendum strandvörnum nokkuð víða við landið. Þegar þess nú er gætt, að við höfum engin tök á að leysa þessar strandvarnir af hendi sem stendur, nema með mjög ófullkomnum tækjum, þá verður strax ljóst, hversu brýn þörf okkur er á að eignast fullkomin strandvarnarskip, — og með það fyrir augum var sjóður þessi stofnaður. Hygg jeg, að ekki orki tvímælis, að okkur sje lífsnauðsyn, að þetta geti orðið sem allra fyrst. Hitt er og sjálfsagt að líta á, að þessar strandvarnir sjálfra okkar virðast hafa komið að mjög góðum notum, og er engum frekar en mjer það á móti skapi, að nokkuð verði úr þeim dregið.
En ef við förum nú að verja tekjum landhelgissjóðsins til þessara strandvarna, þá föllum við um leið frá því að leggja aðaláhersluna á það, að fengið verði sem allra fyrst fullkomið skip í þessu skyni, og það tefur sýnilega fyrir því, að við getum tekið allar strandvarnirnar í okkar hendur, svo að við megi una.
Jeg skal játa, að fjárhagur ríkissjóðs er síst glæsilegur nú sem stendur, en þrátt fyrir það lít jeg svo á, að ríkissjóður megi til að leggja fram fje til þeirra strandvarna, sem við höldum sjálfir upp. Þegar um það er að ræða að rjetta við fjárhag ríkissjóðs, þá eru ekki öll meðul jafnheimil í þeim efnum. Ef við göngum inn á þessa braut og veitum nú fje úr landhelgissjóði, þó ekki væri nema 60–70 þúsund kr., þá er það ekki svo lítil upphæð, og mun seinka því mjög, að við getum eignast 1–2 fullkomin strandvarnaskip sjálfir. Auk þess álít jeg, að slíkir sjóðir sem þessi sjeu okkur mjög til hagsbóta, þó að við, því miður, höfum sýnt þeim of litla ræktarsemi. Jeg vil benda á það, að til þess að við á sínum tíma getum tekið í okkar hendur, svo fullnægjandi verði, allar strandvarnir hjer við land, þá þurfum við annað og fleira en að eignast strandvarnaskip. Við þurfum einnig að ala upp menn til að stjórna slíkum skipum, og verður það ekki gert nema með bæði töluverðum tíma og fje. Virðist sanngjarnt að ætla landhelgissjóði að greiða kostnað þann, er af því leiðir. Enda óvíst, að hagur ríkissjóðs verði þá orðinn það góður, að tiltækilegt þætti, að hann tæki á sínar herðar allan þann kostnað, ásamt árlegri starfrækslu strandvarnanna. Landhelgissjóðurinn þarf að aukast það, að hann ekki einungis nægi til skipakaupa, heldur einnig að hann gæti af árlegum vöxtum sínum lagt fje fram til starfrækslu strandvarnanna.
Það er því spor aftur á bak að gera þær breytingar, sem frv. fer fram á, og hefði jeg helst óskað, að til þeirra hefði ekki þurft að taka. Þrátt fyrir það mun jeg greiða frv. atkv. til 2. umr. og nefndar, sem jeg tel eðlilegast, að verði sjútvn. Sje jeg svo ekki ástæðu til að orðlengja frekar um frv. nú við 1. umr. enda þykist jeg hafa bent hv. deild og væntanlegri nefnd á það, hvað fyrir mjer vakir í þessu máli.